Réttur


Réttur - 01.04.1971, Page 40

Réttur - 01.04.1971, Page 40
HJALTI KRISTGEIRSSON: HUGLEIÐINGAR UM STEFNUSKRÁ Eftirfarandi hugleiðingar voru teknar saman i febrúarmánuði siðast liðnum og fluttar þá á mið- stjórnarfundi Alþýðubandalagsins, þar sem störf stefnuskrárnefndar voru til umræðu. Sú nefnd á, eins og nafnið bendir til, að vinna drög að langtima stefnuskrá flokksins, og verða hlutar að slikum drögum væntanlega sendir flokksfélögum á næst- unni og síðan teknir til meðferðar á landsfundi að hausti. Þessi stefnuskrármótun er beint framhald af nefndarstarfi er unnið var fyrir landsfund 1968, er Alþýðubandalagið var gert að formlegum stjórn- málaflokki, sósíaliskum verkalýðsflokki. Á þeim landsfundi var samþykkt i meginatriðum stefna sú er í framlögðum stefnuskrárdrögum fólst, og jafn- framt var gengið frá styttri stefnuyfirlýsingu. Rétt þótti að gerð itarlegrar stefnuskrár um fræðileg viðhorf og framtiðar verkefni flokksins biði betri tíma og meira næðis. Hefur verið unnið að því verki siðan, en það reynzt æði seinlegt. Stóran þátt i seinaganginum á það, hve haldgóðar upp- lýsingar um íslenzkt þjóðfélag, efnahagsskipan þess og félagsgerð, eru torfengnar. Virðist mikið starf biða þeirra er vildu taka að sér það nauð- synjaverk að kryfja þjóðfélagsástandið, eins og það er nú, til mergjar með marxiskum rannsóknar- aðferðum. — Sú samantekt, sem hér fer á eftir, er ekki stefnuskráin sjálf hvorki í heild né að hluta, heldur aðeins sjónarmið mín um ýmsar forsendur að gerð stefnuskrár og spjall i kringum hana. Fé- lagar mínir í stefnuskrárnefnd eiga engan hlut i þessum hugleiðingum, heldur eru þær mínar eigin. Að sjálfsögðu er hér drepið á margt sem nefndin hefur fjallað um og samþykkt, en ýmis önnur atriði eru tekin persónulegum tökum. Þetta efni var upp- haflega flutt sem innlegg i umræður og ég hef fengið RÉTTI það til birtingar með sama hugarfari. Þegar unnið er að stefnuskrá hins unga og litt reynda flokks, Alþýðubandalagsins, koma ýmsar spurningar upp í hugann. I hvers þágu er verið að vinna þetta verk? Ég vil svara: Það er í þágu þjóðfélagshreyfingar. I hvaða skyni? Til að breyta þjóðfélaginu. En hvað er þá þjóðfélag? Þjóðfélag mætti skilgreina svo, að það sé kerfi tengsla milli manna. Þessi tengsl eru æði margbrotin, en í stór- um dráttum má skipta þeim í þrennt: • Efnahagsleg tengsl • Stjórnmálaleg tengsl • Félagsleg tengsl Mun ég nú fara örfáum orðum um hvert tengsla- kerfi fyrir sig. Efnahagsleg íengsl taka til sköpunar, dreifingar og neyzlu efnis'egra verðmæta. Við þetta fara efnisleg verðmæti hönd úr hendi, og þau við- skipti er hægt við nútíma aðstæður að skil- greina og setja fram í formi peninga. Hins vegar verða stjórnmálaleg og félagsleg tengsl aldrei fyllilega skilgreind með peningum. 96

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.