Réttur


Réttur - 01.04.1971, Page 41

Réttur - 01.04.1971, Page 41
Stjórnmálaleg tengsl eru ekki stjórnun eða kosn- ingafyrirkomulag, heldur er þar um að ræða tengsl i formi yfirráða og undirgefni, valds og hlýðni. Hér er því ætíð drottnandi aðili annars vegar. Félagsleg tengsl þá öll önnur tengsl en þau sem skilgreind eru sem efnahagsleg eða stjórn- málaleg. Félagstengsl milli manna er mjög við- tæk og fjölbreytileg og má sundurskilja þau í nokkra liði: • Menningarlif, en þar undir kemur listsköpun útbreiðsla listaverka i hinum ýmsu formum. • Upplýsingastreymi: flutningur frétta og ann- ars tímabundins fróðleiks frá manni til manns. • Fræðslukerfi, en þar er um að ræða þau skipulögðu tengsl sem miðla þekkingu og reynslu einnar kynslóðar og þess sem hún hefur erft til hinnar næstu. • Umgengnishættir fólks, þ.e.a.s. undir hvern- ig kringumstæðum fólk hittist, deilir geði og slæst í hópa til framdráttar einhverjum mál- efnum eða til að iðka hugðarefni sin. • Sambýlis- eða heimilishættir í þeim skiln- ingi, hvernig sá hópur er samsettur, sem kýs að fylgjast að gegnum lífið hvað snertir tóm- stundir, hvíld, svefn, matseld og æxlun. Ég hef rissað upp mjög grófa mynd af þjóðfélag- inu með þvi að skipta tengslum milli fólks i 3 aðal- flokka; efnahagsleg, stjórnmálaleg og félagsleg tengsl. Félagstengsl hef ég aftur leyst upp í nokkra liði til frekari skýringar, og mætti þar vissulega mörgu við þæta, því upptalningin var ekki tæm- andi. Þessi mynd af tengslunum var gróf og einföld- uð, veruleikinn sjálfur er miklu flóknari. Það liggja Eignarréttur — vald — hugmyndafræði nefnilega þræðir milli hinna ýmsu tengslaflokka, t.d. af efnahagslegum tengslum sprettur valda-aðstaða eins á kostnað annars, og þannig myndast stjórn- málatengsl. Af stjórnmálatengslum stafar hins veg- ar, að sá lægra setti tileinkar sér lifsstíl og lifs- skoðun hins æðra setta, þetta mótar semsé félags- leg tengsl ákveðinnar gerðar. Og sá flötur félags- legra tengsla sem nefnist hugmyndafræði, orkar á margvíslegan hátt á stjórnmálaleg og efnahagsleg tengsl. Um þetta mætti vafalaust skrifa óendanlega langt mál og sifellt finna ný dæmi og nýja fleti. Yfir haf timans liggja þræðir, sem tryggja sam- hengi í hverju tengslakerfi fyrir sig og valda því að sagan er annað og meira en uppröðun sundur- lausra atvika. Þar eru ef til vill merkilegastir þeir þræðir, sem liggja milli aldursþrepanna, ekki sízt þeirrar kynslóðar sem er að kveðja og hinnar sem er að vaxa upp á hverjum tima. Þá þræði ber eink- um þeim að styrkja sem trúa á gildi menningar- arfleifðar. Þá er rétt að vekia athygli á því, að varðandi öll tengsl liggja þræðir útúr þessu þjóðfélagi og til umheimsins: Utanrikisverzlun og gjaldeyrishreyf- ingar inn og útúr landinu tengja efnahag okkar við Varúð — tengslin út á við eru við ráðandi öfl! efnahag annarra þjóða. Islenzka ríkið skiptist á sendimönnum við önnur ríki, það á fulltrúa á ýms- um fjölþjóðlegum samkundum og færir stjórnmála- tengslin þannig út fyrir landssteinana, auk þess sem hér situr erlent herlið, svosem til að auka á fjölbreytnina. Á sviði félagslegra tengsla eru sam- böndin meðal annars í formi daglegs fréttaflutn- ings frá útlöndum, þýddra bóka, innflutts lesefnis auk persónulegra samskipta. Fyrst og fremst orka þessi sambönd á hvers kyns hugmyndafræðilegum vettvangi. — Það sem gerir samböndin út á við sérstaklega varhugaverð er það, að þau eru yfir- leitt við ráðandi öfl erlendis á hveriu sviði fyrir sig. I því liggur hætta fyrir sjálfsforræði okkar og þjóð- legt áhrifavald. Með sömu rökum leggjast hin er- lendu sambönd yfirleitt á sveif með þeim sem meira má sín hér heima fyrir og hjálpar honum við að halda minn'máttar í skefjum. Þvi var slegið föstu í upphafi þessa skrifs, að tilgangurinn bak við stefnuskrá okkar væri sá að breyta þjóðfélaginu. En þreyta hverju nánar tiltek- Jöfnuður: Lykilorð í manngildisstefnu ið? Hvað er það sem við erum óánægð með? Það held ég sé hægt að skilgreina þannig, að það sé kúgun og lítillækkun mannsins. Við viljum setja 97

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.