Réttur - 01.10.1971, Blaðsíða 11
hersins eins og Björn Þorsteinsson lýsti hér
áðan.
Söguleg reynsla íslenzku þjóðarinnar af er-
lendri áþján knýr hana sem vopnlausa þjóð
til baráttu fyrir friðhelgun. Það er skylda okk-
ar að hefja öfluga baráttu fyrir því, að Island
verði á ný friðlýst land. I því sambandi er
vert að kanna rækilega hugmynd eyþjóðanna
við Indlandshaf, sem á vettvangi Sameinuðu
þjóðanna hafa flutt tillögu um friðlýsingu
Indlandshafs. Krafa þeirra er að banna allt
hernaðarbrölt og hersiglingar stórveldaflota
á Indlandshafi og hrekja þannig fulltrúa er-
lendrar ásælni út í yzta hafsauga. Þessi krafa
er vissulega verðug til eftirbreytni fyrir þjóð-
irnar við Norður-Atlantshaf. Þeir sem mest
tala um stækkun stórveldaflotanna ættu því
að geta tekið undir þessa kröfu: Að Island
og hafið verði friðlýst og hrinda þannig af
okkur erlendri ásælni.
Stúdentar hafa valið fullveldisdaginn til að
brýna þjóðina til baráttu fyrir algeru fullveldi
— fyrir brottför hersins. Þeir vilja fullvissa
þá valdhafa, sem lýst hafa yfir þeim vilja
sínum að herinn fari af íslenzkri grund, að
íslenzkir stúdentar styðja þá í því máli. Hin
nýja sókn ' baráttunni fyrir brottför hersins,
sem loforðin um brottför hans hafa kveikt,
er jafnframt áminning til ríkisstjórnar Islands
um að halda vöku sinni í þessu máli.
Þessi nýja kynslóÖ, sem jyllt hefur Há-
skólabíó á þessari baráttusamkomu og þaö
námsfólk, sem víÖa út um land og íslenzkir
námsmenn erlendis, sem efnt hefur til fundar-
halda á fullveldisdaginn — viö erum aÖ hefja
nýja sókn fyrir endurheimt landsréttinda, Viö
vitum að nauÖsynlegt er aÖ fylkja liÖi til bar-
áttu fyrir brottför hersins,
Við viljum á fullveldisdegi þjóÖarinnar
vekja hana til umhugsunar og skilnings á
sjálfstœðismáli sínu, ViÖ vitum aö fólkið i
landinu verður að sýna hug sinn í þessu máli
og knýja á um brottför hersins.
Við höfum í dag sýnt vilja okkar í verki.
Við krefjumst þess að erlendur her hverfi
af íslenzkri grund!
Við eigum okkur draum um friölýst land!
ViÖ vitum einnig aÖ viÖ berjumst til sigurs!
Myndirnar á bls. 185 eru frá herstöðinni á Kefla-
vikurflugvelli.
187