Réttur - 01.10.1971, Blaðsíða 21
3. Joe Hill
Hann hét réttu nafni Josepli Hillström og var
sænskur, innflytjandi til Bandarikjanna 1902. Hann
varð einhver vinsælasti söngvari verklýðshreyfing-
arinnar, hann bjó til vísurnar og oft lögin líka,
en stundum orti hann við alkunn lög, t.d. Hjálpræð-
ishersins, svo sem hinn fræga söng ,,Dark haired
preachers" með viðlaginu „You will eat by and by"
(„Hvcrja helgi um hádegisstund ..").
Dark-haired preacbers come out every night
try to tell you whafs wrong and what’s right,
but if you ask about something to eat,
they will answer with voices so sweet:
Y011 will eat by and by,
in the glorious land above the sky,
work and pray, live on hay,
you’ll get pie in the sky when you die.
Gömul stæling:
Hverja helgi um hádegisstund,
herrans þjónar oss tóna guðs dóm,
ef þú öreigi ferð á þann fund,
fxrðu svarið með kimneskum róm:
Bittu gras, blessuð stund
bráðum nálgast, ó sæl er þín bið,
þú fcerð föt, þá fcvrð kjöt,
þegar upp Ijúkast himinsins hlið.
Joe Hill gerðist félagi í hinum róttæku verklýðs-
samtökum Industrial workers of the world (I.W.W.)
og varð brátt hataður af afturhaldinu, enda virkur
i skipulagningu verkfalla og annarrar baráttu. En
fyrst og fremst fyltu þó Ijóð hans burgeisana of-
stæki og hatri gegn honum.
Kaupmaður var drepinn í Salt Lake City, mor-
mónaborginni, i janúar 1914. Lögreglan greip tæki-
færið til að reyna að brjóta I.W.W. á bak aftur
með þvi að kenna Joe Hill morðið, sem hann var
saklaus af. Var hann dæmdur til dauða. Róttækir
sósialistar reyndu að bjarga lifi hans. Meðal þeirra
mörgu, sem börðust vel fyrir honum var Elisabet
Flynn (sjá um hana í Rétti 1964, bls. 209—212).
Hún segir i æviminningum sinum frá fyrstu heim-
sókn sinni til hans í fangelsið. „Hann var hár,
grannur, mjög Ijóshærður með djúpblá augu. Hann
var þrjátiu og eins árs. „Aldurinn, þegar Jesús var
negldur á krossinn" sagði hann við mig.“ — Elisa-
bet var 25 ára, er þau hittust. Joe Hill gaf henni
viðurnefnið „The rebel girl' uppreisnarstúlkan.
Um tíma voru félagarnir bjartsýnir um að unt
yrði að bjarga lífi hans. En Joe Hill var það ekki.
Hann sagði við Elisabet: „Ég óttast ekki dauðann,
en ég vildi gjarnan vera dálitið lengur með í bar-
attunni."
Leið Elisabetar og fleiri lá alla leið tii Washing-
ton, er þau voru að berjast fyrir lífi Joe Hill. Þau
fengu áheyrn hjá Wilson Bandaríkjaforseta, sem
reyndi að fá málið tekið upp á ný. En rikisstjóri
Utah-fylkis vísaði öllum slíkum afskiptum frá.
Þann 19. nóvember 1915 var Joe Hill tekinn af
lifi, skotinn samkvæmt dómi. Síðustu orð hans
voru: „Syrgið ekki, bindist samtökum."
Joe Hill er ef til vill sá af píslarvottum ameriskr-
ar verklýðshreyfingar, sem frægastur hefur orðið.
Er það eigi aðeins vegna Ijóða hans og söngva,
heldur hefur og líf hans allt orðið tilefni listaverka.
Paul Robeson gerði nafn hans ódauðlegt með söng
sinum „I dreamt, I saw Joe Hill tonight," sem birtist
í þessu hefti í þýðingu Einars Braga. Og nú hefur
Bo Widerberg, sænski rithöfundurinn og kvik-
myndastjórinn, búið til kvikmynd um Joe Hill, sem
tekið er að sýna á Norðurlöndum. Leikur Thommy
Berggren Joe Hill.
4. Mooney og Billings
Þann 22. júní 1916 sprakk sprengja i San Frans-
isco i kröfugöngu hernaðarsinna. Niu manns létu
lífið, en fjörutiu særðust. Flugumaður mun hafa
kastað sprengjunni, en lögreglan handtók nokkra
197