Réttur


Réttur - 01.10.1971, Page 30

Réttur - 01.10.1971, Page 30
V. SJAPOSNIKOV HLUTVERK ALMENNINGS I ÖRYGGISMÁLUM EVRÓPU V. Sjaposnikov er fulltrúi Sovétrikjanna i nefnd, sem fjallar um öryggismál Evrópu. Birtist grein þessi eftir hann nýlega i „New Times", timariti, sem fjallar mjög um utanrikismál. Greinin á mikið erindi til alþýðu sökum mikilvægis þessa máls. f málefnasamningi núverandi rikisstjórnar segir: „Rik- isstjórnin er samþykk því að boðað verði til sér- stakrar öryggisráðstefnu Evrópu". Á siðustu mánuðum hafa ýmsir þeir atburðir gerzt í alþjóðamálum, er haft hafa í för með sér verulegar jákvæðar breytingar, sem þó eru mest áberandi i Evrópu. Þær hugmyndir, sem felast í friðar- og samstarfsstefnuskrá 24. þings KFS (Kommúnistaflokks Sovétríkjanna), halda áfram að öðlast hljómgrunn víða um lönd, bæði meðal ríkis- stjórna og almennings. Ný viðhorf — nýjar horfur Ef nefna skal helztu tíðindi, er orðið hafa til að hreinsa pólitískt andrúmsloft í Evrópu, þá skal fyrst telja sáttmála Vestur-Þýzkalands við Sovétrík- in og við Pólland, sem að vísu hafa ekki enn verið staðfestir, þótt undirritaðir séu. Þessir sáttmálar grundvallast fyrst og fremst á viðurkenningu frið- helgi landamæra, sem dregin voru eftir stríð. Þá ber að geta fjórveldasamkomulagsins um Vestur- Berlín, sem miðar að því að útrýma einni helztu orsökinni fyrir spennu í Evrópu. Samfara auknu pólitísku raunsæi færast samskipti Evrópuríkja með ólíku stjórnarfari æ meira í eðlilegt horf, þar með samskipti Austur- og Vestur-Þýzkalands. I fyrsta skipti, síðan styrjöldinni lauk — og ef til vill í fyrsta skipti í allri sögu álfunnar — gerir nú ekkert Evrópuriki opinberar landakröfur á hend- ur öðrum. Segja má, að aldrei fyrr hafi jafn miklir möguleikar verið að efla friðinn og nú, á að hefja marghliða viðræður til undirbúnings að ráðstefnu Evrópurikja um öryggis- og samstarfsmál. Jafnframt þessari mikilvægu framvindu á sviði utanrikismála — og að nokkru leyti fyrir áhrif frá henni — fer fram breyting á styrkleikahlutföllum pólitískra afla í ýmsum löndum Vestur-Evrópu; að- staða aflanna yzt til hægri hefur versnað nokkuð. Hafa nú skapazt enn betri horfur á, að hægt verði að mynda breiða samfylkingu lýðræðisaflanna á grundvelli ýmissa samtaka almennings og alþýðu- hreyfinga, en að undanförnu hefur tekið að bera á áhuga á auknu samstarfi meðal þessara afla. Sú hugmynd kom upp að halda víðtæka ráð- 206 j

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.