Réttur - 01.10.1971, Page 39
ERLEND i i
VÍÐSJÁ wammU
BANGLA DESH
I síðasta hefti Réttar var rætt um kosning-
arnar í Pakistan og múgmorð Yahya Khan.
Síðan hefur það gerzt sem alkunna er að
Indland skarst í leikinn með frelsisherjum
Bangla Desh og sigraði her Yahya Khan í
Austur-Pakistan á hálfum mánuði og frelsaði
landið. Hefur stjórn Bangla Desh nú tekið
við þar og í janúar 1972 kom Mujibar Raha-
man, leiðtogi þeirra og forseti Bangla Desh,
heim til höfuðborgarinnar Dacca, en í Vest-
ur-Pakistan, var Yahya Khan steypt eftir ó-
farirnar. Tók Bhutto þar við forsetavöldum
og hefur látið þjóðnýta stórfyrirtæki og hand-
taka mikið af einokunarherrum hinna 22 fjöl-
skyldna (sjá Rétt síðast bls. 166—167).
Auk allra almennra morða vestur-pakist-
anska hersins í Austur-Pakistan, kom og í
ljós að þeir höfðu myrt um 200 helztu
menntamenn Bangla Desh til þess að reyna
þannig að brjóta þjóðina á bak aftur með
því að uppræta blómann af menntalýð henn-
ar.
Róttækir stúdentarskæruliðar Bangla Desh
neituðu að afhenda ríkisstjórninni vopn sín.
Þeir eru margir taldir kommúnistar. Hins-
vegar virðast jafnt þeir sem stjórnarliðið
treysta á að Mujibar Rahaman takist að sam-
eina þjóðina eftir heimkomuna. En það getur
orðið erfitt verk. Reynslan sýnir að þótt hægt
sé að halda þjóð saman í frelsisbaráttu hennar
Svipmyndir frá hryðjuverkum vestur-pakistanskra
hersins i Bangla Desh.
215