Réttur - 01.10.1971, Síða 47
skotið hann til bana út á götu og
allir möguleikar á að slíkt sé úr-
skurðað réttlætanlegt manndráp
við likskoðun."
Bettina Aptheker i ,,Þjóðfé-
lagshlutverk fangelsa I
Bandaríkjunum."
Blý — vald
„Litið er vald þess blýs, sem
varð að kúlum, i samanburði við
valdið í því blýi, sem varð að
letri".
Georg Brandes i minningar-
ræðu um Gutenberg.
Að hugsa —
,,Ef hermenn mínir skyldu fara
að hugsa, þá yrði ekki einn ein-
asti af þeim eftir í hernum."
Friðrik „mikli“
Prússakonungur.
Agi og
skilningur
,,Á hverju grundvallast agi i
byltingarflokki verkalýðsins?
Hvernig verður hann sannreyndur?
Og hvernig treystur? I fyrsta lagi
grundvallast hann á stéttarvitund
framvarðasveitar verkalýðsins,
hollustu hennar við byltinguna, þol-
gæði, fórnfýsi og hetjulund. i öðru
lagi hæfni hennar til að tengjast,
komast i náið samband við og
— ef svo má segja — renna að
vissu marki inn i hinar breiðu fylk-
ingar vinnandi fólks — einkum
verkalýðsins, en einnig þess
fjölda, sem ekki telst til verkalýðs.
I þriðja lagi á þvi að rétt sé sú
pólitiska forysta, sem þessi fram
varðarsveit veitir og að hún beiti
réttri stjórnlist og baráttuaðferð-
um, að þvi tilskyldu, að þessi
vinnandi fjöldi hafi sannfærst af
eigin reynd um réttmæti þeirra.
Án þessara skilyrða verður ekki
haldið uppi aga í byltingarflokki,
sem raunverulega sé þess umkom-
inn að vera flokkur hinnar fram-
sæknu stéttar, er á sér það ætl-
unarverk að steypa borgarastétt-
inni og umskapa þjóðfélagið i
heild. Án þessara skilyrða munu
allar tilraunir til að koma á aga
falla um sjálfar sig og enda i
slagorðaþvælu og blekkingaleik
Þessi skilyrði verða á hinn bóg-
inn ekki til í einu vetfangi. Þau
skapast aðeins með langvarandi
starfi og dýrkeyptri reynslu".
Lenin i ,, „Vinstri róttækni".
Barnasjúkdómar kommúnism-
ans". 1921.
Svört
ákæra
„Það er greinilegt að löggjafar-
og framkvæmdavald Bandaríkj-
anna var skapað til að vernda
auðmannastétt, sem er minnihluti,
og ennfremur hina hvítu íbúa, en
þessu valdi er alltaf beint gegn
negrunum. Við höfum lengi vitað
að blökkumaðurinn er frá upphafi,
— frá fæðingu — hinn seki. Við
getum verið vissir um að ef
blökkumenn ekki sjálfir afla sér
frelsis, — í krafti máttar sins, vits,
skáldskapar og alls þess, sem
safnast hefur fyrir í hugarheimi
þeirra á þeim öldum, sem þeir
þöglir horfðu á fyrri herra sína, —
þá munu þeir hvitu ekkert gera
til að veita þeim frelsi.
Jean Genet í formála að bóK
George Jackson: Soledad-
bræðurnir.
Þrælahald hefur efnahagslegar
forsendur. — Þrællinn sem einn
maður á, er eign, þannig að einn
maður neytir eignaréttarins í
George Jackson
myrtur af amerísku lögreglunni
1971
krafti hinna viðurkendu reglna, en
hinn er eignarhluturinn. Eigandinn
getur flutt þessa eign sína eða
bundið hana við ákveðinn stað á
jörðinni; hann getur látið hann
geta aðra þræla eða þvingað hann
til þess; hann getur selt hann, sett
hann í vinnu, limlest hann, svivirt
hann, drepið hann. En ef hann vill
njóta góðs af svona eign, verður
hann að fóðra hann, klæða hann,
láta hann hafa þak yfir höfuðið.
Samkvæmt hinum nýja þræl-
dómi, — þessari nútíma mynd
gamla þrælahaldsins, sem er
fegrað til að dylja það, — er fórn-
ardýrið sett í verksmiðju, eða
hvað negra snertir í alls konar
þjónustuverk og látið vinna fyrir
launum. En ef vinnu er ekki að fá,
þá sér nútíma þrælahaldið ekki
fyrir mat og húsnæði. Maður hef-
ur sitt frelsi — til að deyja úr
hungri".
George Jackson í bréfi í bók
sinni „Soldadbræðurnir".
223