Réttur - 01.04.1985, Page 10
PÁLL BERGÞÓRSSON:
Kj arnorkuvetur
Sólskin gæti orðið einn hundraðshluti af meðallagi eða minna og lofthiti gæti
orðið 20-40 stigum lægri en í meðallagi, og þetta ástand gæti staöið svo vikum
eða mánuðum skipti, ef kjarnorkustríð verður að veruleika. Vísindamenn um all-
an heim eru nú orðnir nokkurn veginn sammála um þessa skoöun.
Það var á ráðstefnu í Washington D.C. 31. október og 1. nóvember 1983, sem
þessar niðurstöður voru fyrst gerðar heyrum kunnar almenningi. Þarna voru
saman komnir meira en 500 vísindamenn frá Bandaríkjunum, Sovétríkjunum,
Bretlandi, Kanada, Vestur-Þýskalandi og tylft annarra ríkja. Allar síðari rann-
sóknir hafa staðfest, að þær niðurstöður séu í öllum meginatriðum sennilegar,
þó að í fyrstu væri reynt að gera þær tortryggilegar af þeim, sem töldu, að með
þessu væri að hagsmunum sínum vegið.
Aðalástæðan: reykur og ryk
í svonefndu 5000 megatonna stríði væri
„aðeins" notaður þriðjungur af þeim
kjarnorkusprengjum, sem nú eru til. En
þetta stríð gæti þyrlað 1000 miljónum
tonna af ryki upp í lægri og hærri loftlög,
og 200-250 miljónum tonna af reyk,
vegna brunninna skóga og borga. Af
þessu yrði þykkur mökkur, sem hleypti
ekki nema hundraðasta hluta af venju-
legu sólskini til yfirborðs jarðar. Mökkur-
inn mundi hins vegar ekki standa mikið í
vegi hitageislunar frá jörðunni út í geim-
inn. Afleiðingin yrði 20-40 stiga kæling á
meginlöndum, þar á meðal í mestu korn-
ræktarhéruðum heims. Til samanburðar
má geta þess, að eins stigs hitalækkun
mundi útrýma kornrækt í Kanada, eftir
því sem þarlendir sérfræðingar telja.
74