Réttur - 01.04.1985, Page 19
Utifundur á Austurvelli til stuðnings félögum í launabaráttu Hins íslenska kennarafélags.
Hamrahlíö var stofnaður 1965 og síðan
hefur bæst við drjúgur tugur framhalds-
skóla). Menntaskólanám hafði fram að
Þeirn tíma verið forréttindanám:
Menntaskólinn og menntunin, sem
hann veitti, var stöðu- og valdatæki í
gamla daga. F*á var stúdent tákn og
allt að því tignarheiti, enda hlálega
sjálfgæf manntegund.
Björn Þorsteinsson:
„Brot úr skólasögu",
TMM 1978,4. h. 417-18.
Allir sem komnir eru til vits og ára
rnuna hvernig að því var staðið að velja
iólk til menntaskólanáms. Aðalsían var
landspróf en aukasía í þriðja bekk mennta-
skólans, þar sem álitlegur hópur féll út.
Með þessum hætti varð „úrvals-“ eða
„elít-skólinn“ lykill borgarastéttarinnar
að sérréttindum þeim sem fólgin voru í að
„eiga“ embættismennina. Prófin sjálf sem
notuð voru til þess að velja kjarann frá
hisminu voru reyndar grundvölluð á hug-
myndafræði þessarar sömu borgarastéttar
og nauðsynlegur partur af öllu saman.
Þekkingarsprengingin sem á var minnst
opnaði mönnum nýja sýn að mörgu leyti.
Þannig var t.d. ljóst að skilgreiningai
fyrri tíðar á nauðsynlegum þekkingar-
forða mannsins fengu ekki staðist.
Mönnum skildist meira að segja, sumum
83