Fréttablaðið - 28.03.2009, Qupperneq 36
36 28. mars 2009 LAUGARDAGUR
V
ið höfum bundið enda
á spillta og ömurlega
tilvist Hanns-Mart-
ins Schleyers, eftir
43 daga.“ Þannig
hófst ti lkynning
sem barst franska blaðinu Libér-
ation 19. október 1977. Tilkynn-
ingin kom fáum á óvart, líflíkur
Schleyers voru ekki miklar eftir að
hryðjuverkamenn Rauðu herdeild-
anna rændu honum rúmum mánuði
fyrr. Hann var líka fráleitt fyrsta
fórnarlamb samtakanna, 20 manns
höfðu verið drepnir frá árinu 1971
og fimm lögreglumenn höfðu látið
lífið í átökum.
Rauðu herdeildirnar, Rote Arme
Fraktion, voru gjarnan kenndar við
tvo mest áberandi leiðtoga þeirra;
Andreas Baader og Ulriku Mein-
hof. Sú síðarnefnda gekk þó síðar
til liðs við hópinn og þótti mörgum,
þar með talið Gudrun Ensslin, unn-
ustu Baaders, sem hennar hlutur
væri gerður helst til mikill. En
Ulrika Meinhof var vel þekkt and-
lit, vinstrisinnaður pistlahöfundur
sem gaf borgaralegt líf sitt upp á
bátinn, þar með talið tvö ung börn,
til að gerast borgarskæruliði.
Andreas Baader var eirðar-
laus unglingur og komst snemma í
kast við lögin. Hann hætti í skóla á
menntaskólaaldri og lifði lífi smá-
krimmans. Hann smitaðist af hinu
róttæka andrúmslofti sem ein-
kenndi seinni hluta sjöunda áratug-
arins og dróst að vinstrisinnuðum
stúdentafélögum. Hugmyndafræð-
in var honum að skapi, en það var
ekki síst spennan og æsingurinn
sem heilluðu.
Í byrjun júní 1967 kom shahinn af
Íran í opinbera heimsókn til Berlín-
ar. Hann beitti þegna sína miskunn-
arlaust ofbeldi og stúdentahreyf-
ingin þýska mótmælti komu hans.
2. júní voru mikil mótmæli og vest-
ur-þýska lögreglan brást við af mik-
illi hörku. Hún skaut á mótmælend-
ur og Benno Ohnesorg, 27 ára nemi
og nýbakaður faðir, var drepinn.
Með því öðlaðist stúdentahreyfing-
in sinn píslarvott og fylgi við hug-
myndir hennar jókst mjög.
Píslarvottur
Morðið á Ohnesorg var fyrir mörg-
um staðfesting á þeirri staðreynd
að grunnt væri á leifum fasismans
eftir fall þriðja ríkisins. Róttækl ing-
ar töldu að stjórnvöld hefðu í raun
lítið breyst frá tímum Hitlers; þau
fælu fasismann á bak við grímu lýð-
ræðis og borgararéttinda. Um leið
og þeim væri ögrað, líkt og með
mótmælum, sýndu þau sitt rétta
andlit eins og lík Ohnesorg væri
glöggt dæmi um. Sú skoðun fékk
byr undir báða vængi þegar borg-
arstjórnin í Vestur-Berlín bannaði
öll mótmæli í kjölfar morðsins.
Stúdentum, einkanlega vinstri-
sinnuðum, þykir fátt skemmtilegra
en að tala. Baader og Ensslin fengu
hins vegar leiða á öllum hugmynda-
fræðilegum deilum. Þeim fannst
einboðið að grípa yrði til beinna
aðgerða til að ríkisvaldið sýndi sitt
rétta andlit á ný. Sæi þýska þjóðin
þá ásjónu myndi hún losa sig við
fasistastjórnina.
Skötuhjúin létu hendur standa
fram úr ermum og 2. apríl 1968
kveiktu þau, í félagi við Horst Söhn-
lein og Thorwald Proll, í verslunar-
miðstöð í Frankfurt am Main. Eng-
inn slasaðist en gríðarlegt eignatjón
varð. Lögreglan handtók fjórmenn-
ingana og þau voru dæmd í þriggja
ára fangelsi hvert.
Farið í felur
Ulrika Meier hafði getið sér góðs
orðs sem pistlahöfundur. Hún gagn-
rýndi samfélagið á beittan hátt og
varð æ sannfærðari um að mikilla
breytinga væri þörf. Henni fannst
hún ekki áorka nægu með skrifum
sínum. Árið 1969 skildi hún við eig-
inmann sinn og flutti til Berlínar. Í
júní var fjórmenningunum sleppt
til reynslu, en dómstóll krafðist
þess í nóvember að þau yrðu sett
inn aftur. Þau voru hins vegar flúin
til Ítalíu.
Í febrúar 1970 laumuðust Baader
og Ensslin aftur til Berlínar og
fengu þá inni hjá Meier. Baader
var handtekinn skömmu síðar.
Ulrika Meier samþykkti að taka
þátt í áætlun um að frelsa hann.
Hún þóttist vera að taka viðtal við
hann og hann var færður í húsnæði
þar sem öryggisgæsla var minni.
Þangað komu fjórir vopnaðir vit-
orðsmenn og einn vörður varð fyrir
skoti. Baader stökk út um glugga og
Ulrika Meier fylgdi honum og stökk
um leið úr samfélaginu og í felur
sem eftirlýstur glæpamaður.
Bankarán og morð
Á næstu árum fjölgaði í hópnum og
fjöldi hreyfinga spratt upp til hlið-
ar og utan við Rauðu herdeildirn-
ar. Af þeim var Hreyfingin 2. nóv-
ember virkust, en hún kenndi sig
við dánardægur Benny Ohnesorg.
Félagar
frömdu
fjölda
glæpa,
rændu
banka,
sprengdu sprengjur
og í átökunum lét
fjöldi fólks lífið.
Hluti hópsins fór
í þjálfunarbúð-
ir hryðjuverka-
manna í Jórdaníu
og þjálfaðist þar í
vopnameðferð og sprengjugerð. Þá
lærðu þau að breyta útliti sínu, lifa
lífinu í felum og falsa skilríki.
Morð, sprengingar, flugrán og
mannrán einkenndu starfsemi
samtakanna. Þegar yfir lauk lágu
32 fórnarlömb Rauðu herdeildanna
og tengdra samtaka í valnum, fimm
særðust alvarlega og tveimur var
rænt en skilað ómeiddum.
Hóparnir gátu af sér nýja hópa. Í
hvert sinn sem leiðtogar voru fang-
elsaðir beið ungt, reitt og örvænt-
ingarfullt fólk eftir að fylla skarð
þeirra. Síðasta hryðjuverk tengt
samtökunum varð þegar nýtt
kvennafangelsi í Wieterstadt var
sprengt upp árið 1993. Síðan hefur
hópurinn ekki framið hryðjuverk.
Hinn meinti fasismi
Lögregluyfirvöld í Vestur-Þýska-
landi tóku hryðjuverkasamtökin
engum vettlingatökum. Landið
skiptist upp í fjölda sambands-
landa og innan hvers og eins var
sérlöggæsla. Þrátt fyrir tregðu
til samvinnu og tilhneigingar til
að vernda eigin svæði var komið
á fót sameiginlegri hryðjuverka-
lögreglu.
Í raun tókst hryðjuverkafólkinu
ætlunarverk sitt; að afhjúpa vald-
beitingu ríkisins. Settir voru upp
vegartálmar og handahófskennd-
ar leitir fóru fram víða um landið.
Gríðarlega vel vopnum búin lög-
regla var á vappi í helstu borgum
og brynvarðir bílar, sem líktust
helst skriðdrekum, urðu algeng
sjón. Vald ríkisins – fasisminn
eins og vinstrimenn nefndu það
– var því öllum ljós.
Gallinn var bara sá að í ljós
kom að hinn venjulegi borg-
ari mat eigið öryggi framar lífi
án valdboða. Vísitölufjölskyld-
an vildi frekar bíða í biðröðum
á hraðbrautunum, sýna vopn-
aðri lögreglu skilríki sín og vera
meinaður aðgangur að vissum
hverfum ef það þýddi að spreng-
ingar, skotbardagar og íkveikjur
heyrðu sögunni til.
Samúð með málstaðnum
Engu síður var viss samúð með
málstað Rauðu herdeildanna og
skyldra samtaka. Ekki má gleyma
þeim tíðaranda sem samtökin
spruttu upp úr. Byltingarandinn
sveif yfir vötnum og allt sem
áður var álitið greypt í stein var
nú véfengt. Ný samfélagsgerð
var boðorð dagsins. Og þó að
menn fordæmdu ofbeldið og
morðin þá var mikill fjöldi
sem hafði skilning á því sem
bjó
þeim
að baki.
Í júl í
1971
gerði þýska fyr-
irtækið Allensbach,
sem sérhæfði sig í
skoðanakönnunum,
ekki ósvipað Gallup,
skoðanakönnun. Í
henni kom fram
að um 20 pró-
sent fólks undir
þrítugu höfðu
ákveðna samúð
með málstað
hryðjuverkamannanna. Að sönnu
var könnunin gerð áður en blóðug-
asta skeið samtakanna rann upp,
en hlutfallið er engu síður ótrú-
lega hátt. Þegar líkin hrönnuð-
ust upp fjaraði hins vegar undan
samúðinni.
Ungt fólk víða um heim sá bar-
áttu borgarskæruliðanna hins
vegar sem framhald af eigin bar-
áttu. Að sönnu ekki endilega rök-
rétt framhald, en margir af yngri
kynslóðinni deildu skoðunum
hópsins á nauðsyn á gjörbreyttu
samfélagi. Eftir dauða helstu
forsprakkanna í fangelsi flykkt-
ist ungt fólk út á götur Vestur-
Þýskalands, fullvisst um að ríkið
hefði tekið þá af lífi.
Vildu afhjúpa andlit fasismans
Þýska Óskarsverðlaunamyndin Baader-Meinhof Komplex verður frumsýnd hér á landi um næstu helgi. Hún segir sögu Rauðu
herdeildanna, hóps borgarskæruliða sem spruttu upp úr róttækni sjöunda áratugarins. Þrátt fyrir blóðuga sögu og fjölda morða
hlaut málstaður hryðjuverkamannanna töluverðan hljómgrunn. Kolbeinn Óttarsson Proppé rýnir í sögu samtakanna.
Ulrika Meinhof fannst látin í klefa
sínum á mæðradag 1976. Hún hafði
hengt sig í reipi sem hún gerði úr
handklæði sem hún reif í ræmur.
Talið var að hún hafi farið að efast
um tilganginn og eigin þátttöku og
þeim aðferðum sem beitt var.
Aðfaranótt 18. október 1977
varð síðar nefnd dauðanóttin. Um
morguninn fundust lík Baader, með
byssukúlu í hnakkanum, og Enssil,
hangandi í snöru. Jan-Carl Raspe,
fannst í sínum klefa við dauðans
dyr af völdum skotsára og lést síðar.
Irmgard Möller, sú eina sem lifði af,
hafði stungið sig fjórum sinnum í
bringuna með hníf, eða hvað?
Tveimur dögum fyrir dauðanóttina
höfðu palestínskir hryðjuverkamenn
rænt flugvél Lufthansa og lent henni
í Sómalíu og kröfðust frelsis félaga í
Rauðu herdeildinni. Aðgerðin fór út
um þúfur og yfirvöld staðhæfðu að
fregnir af því hefðu borist föngunum
og þeir hrint sjálfsmorðsáætluninni í
framkvæmd.
Sú skýring var hins vegar strax
dregin í efa, ekki síst af þeim sem
voru hliðhollir málstað róttækling-
anna. Rannsóknir og krufningar
gáfu þó ekki annað til kynna en að
um sjálfsmorð hefði verið að ræða.
Sagan um morð stjórnvalda hefur
hins vegar aldrei horfið.
„Menn töldu að það hefði verið
gengið frá þeim. Í fjölmiðlum hafði
því verið spáð að þau óttuðust
að þau yrðu drepin. Menn höfðu
persónulega samúð með þeim,
frekar en að þeir hefðu samúð
með aðferðum þeirra,“ segir Össur
Skarphéðinsson, núverandi utan-
ríkisráðherra. Össur sótti fund sem
haldinn var í Árnagarði í kjölfar
dauðanæturinnar. „Mér er tvennt
minnisstætt; Birna Þórðardóttir
hélt aðalræðu fundarins og svo
það að það var troðfullt út úr
dyrum. Þarna hafa verið nokkur
hundruð manns og staðið var með
veggjum og langt fram á gang.“
Hann segir hópinn hafa verið
að berjast gegn kapítalismanum
og sú barátta hafi hlotið mikinn
hljómgrunn á meðal ungs fólks
um allan heim, líka hér á landi.
Menn hafi hins vegar fordæmt
ofbeldið. „Íslenskir stúdentar
beittu aldrei ofbeldi,“ segir Össur.
BAADER OG ENSSLING Þau Gudrun Enssling og Andreas Baader kynntust undir lok sjöunda áratugarins. Þeim þótti lítið varið
í endalaust tal um breytingar og byltingu og vildu aðgerðir. Baader var leiðtogi hópsins og Enssling stóð honum næst, þó hún
hafi fallið í skuggann á Meinhof. Franski heimspekingurinn Jean-Paul Sartre heimsótti Baader í fangelsi og fannst ekki mikið til
vitsmuna hans koma og kallaði hann fífl.
MYRTUR Hanns-Martin Schleyer var
formaður Samtaka atvinnulífsins í Vest-
ur-Þýskalandi og Sambands þýskra iðn-
rekanda. Hann var myrtur daginn eftir
dauðanóttina eftir 43 daga í varðhaldi.
Mótmæli eru að segja að mér hugnist ekki eitthvað.
Andstaða er þegar ég tryggi að það sem mér hugnast
ekki gerist ekki aftur. Ulrika Meinhof
Dauðanóttin Áhrifa gætti víða
RÁÐUNEYTI TEKIÐ Íslenskir stúdentar
„hertóku“ menntamálaráðuneytið
á áttunda áratugnum. Engu ofbeldi
var beitt. Össur Skarphéðinsson situr
fremstur í flokki.