Fréttablaðið - 28.03.2009, Síða 71

Fréttablaðið - 28.03.2009, Síða 71
Þegar ég var sjálf í sumar-búðum sem barn fannst mér stundum leiðinlegt hvað allir þurftu að gera það sama. Þá hugsaði ég með mér að þegar ég yrði stór myndi ég stofna sumarbúðir þar sem börnin gætu valið hvað þau gerðu á dag- inn,“ segir Svanhildur sem stofn- aði sumarbúðirnar Ævintýraland ásamt bróður sínum árið 1998, en hann rak búðirnar með henni tvö fyrstu árin. Svanhildur er beðin um að lýsa dæmmigerðum degi í lífi barn- anna í Ævintýralandi. „Dagur barnanna hefst á því að umsjón- armaður vekur hópinn sinn. Síðan er morgunverðarhlaðborð og fram að hádegismat er boðið upp á ýmsa afþreyingu. Börnin geta valið um að fara í sund, íþróttahúsið og fleira,“ segir Svanhildur, en 70 til 90 börn geta verið í sumarbúðun- um í hverri viku en þeim er síðan skipt niður í hópa eftir aldri. „Eftir hádegismat er hver hópur með hádegisfund með sínum umsjónarmanni í um klukkutíma. Þar er valið umræðuefni og farið í uppbyggjandi leiki. Þá er líka gengið úr skugga um að öllum líði vel og enginn sé útundan,“ útskýr- ir Svanhildur og segir öll börnin eignist góða vini. Eftir fundinn fara börnin á þau námskeið sem þau völdu sér í upp- hafi vikunnar. „Námskeiðin eru rauði þráðurinn í starfi búðanna og geta börnin valið milli fjöl- margra námskeiða. Meðal annars kvikmyndagerð, myndlist, leiklist, grímugerð, survivor-námskeið, dans og tónlist,“ segir Svanhildur og tekur fram að auk alls þessa sé hægt að panta reiðnámskeið sam- hliða sumarbúðunum. Svanhildur heldur áfram að útlista degi í búðunum. „Eftir kaffi er frjáls tími en á kvöldin er föst dagskrá með ýmsum uppákomum, þar má nefna draugaatriði, diskó- tek og karókí.“ Dagurinn endar svo á kvöldkaffi og kvöldsögu áður en farið er í háttinn. Starfsmenn í sumarbúðunum, sem rekinn er í grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum í Borgar- firði, eru allt frá 15 til 20 en í það minnsta einn starfsmaður er fyrir hver fimm börn. Svanhildur segir mikið sama starfsfólk vera í búð- unum frá ári til árs. Þá fara allir starfsmenn á námskeið í sumar- byrjun þar sem kennd er meðal annars skyndihjálp. Þá er einn- ig haldið námskeið með sálfræð- ingi. „Við notum aðferðina 1,2,3 töfrar og krökkunum líkar hún mjög vel, þá fá þau alltaf tæki- færi til að stoppa sig sjálf og við þurfum aldrei að skamma neinn,“ segir Svanhildur, sem segir allt of algengt að börn fái of litla athygli fyrir jákvæða og góða hegðun. „Með því að veita þeirri hegðun mikla athygli og minnast oft á það flotta sem við sjáum hjá krökkun- um, en hunsa og gera lítið úr nei- kvæðri hegðun, erum við að byggja upp sterka sjálfsmynd barnanna og kenna þeim að sjá og meta eigin styrkleika,“ segir Svanhild- ur en fleiri upplýsingar má finna á www.sumarbudir.is. - sg Börn fá að velja Sumarbúðirnar Ævintýraland voru nokkurs konar æsku- draumur Svanhildar Sifjar Haraldsdóttur, stofnanda þeirra. Gleði Sundlaugin er afar vinsæl meðal barnanna. MYND/ÚR EINKASAFNI Sumarbúðastjóri Svanhildur Sif Haraldsdóttir stofnaði sumarbúðirn- ar Ævintýraland árið 1998 og leggur áherslu á að börnin hafi úr nógu að velja. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA Góðir vinir Krökkunum er skipt niður í hópa eftir aldri. FÖNDUR Á www.isholf.is/arndisk/fondur.htm er að finna margar hugmyndir á borð við þessa hér. Sandmynd: Þú þarft pappír (karton), lím, þurran fínan sand. Leyfið barninu að „teikna“ með lími á blað, leyfið því þá að strá sandi yfir myndina svo það þeki hana. Sturtið svo sandi af blaðinu og þá kemur sandmyndin í ljós. Með leyfi AVALON PROMOTIONS & LIBERTY BELL GRUMPY OLD WOMEN LIVE Miðasala í síma 4 600 200 I www.leikfelag.is ALLIR Í LEIKHÚS Á AKUREYRI! Aukasýning vegna fjölda áskoranaföstudaginn langa 10. apríl. Aukasýningar um páskana komnar í sölu TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Í TÍMA Tenórinn 35 uppsel dar sýning ar. Fúlar á móti eftir Guðmund Ólafsson Örfáar sýningar. Skoppa og Skrítla í söng-leik
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.