Morgunblaðið - 22.01.2006, Page 11

Morgunblaðið - 22.01.2006, Page 11
að með tímanum fari greiðslurnar að einhverju leyti til bænda sem gerðu ekki annað en að halda jörð- inni í rækt og stunduðu vinnu ann- ars staðar. Tilgangur greiðslnanna er þar með miklu frekar orðinn að halda jörðum í byggð en að lækka vöruverð. Í umræðu síðustu vikna um mat- arverð á Íslandi hefur stundum ver- ið nefnt að við eigum að breyta styrkjakerfinu og taka upp grænar greiðslur. Þessi málflutningur byggist að einhverju leyti á mis- skilningi því að grænar greiðslur mega ekki og geta ekki haft áhrif á verðið. Það má jafnvel halda því fram að grænar greiðslur séu falln- ar til að hækka matarverð vegna þess að greiðslurnar eiga í ein- hverjum mæli eftir að flæða frá bændum sem framleiða mjólk til bænda sem eru að gera eitthvað allt annað. Þeir bændur sem Morgunblaðið ræddi við sögðust spyrja sig hvort almenningur í landinu yrði þegar fram í sækti tilbúinn til að styðja styrkjakerfi þar sem hluti styrkj- anna færi til bænda sem framleiddu ekki neitt og gerðu ekkert annað en að sitja jarðirnar. Þessir bændur benda jafnframt á að upphaflegur tilgangur beingreiðslnanna hafi verið að stuðla að lægra matar- verði. Óhjákvæmilegt sé að hluti grænu greiðslnanna fari til annarra hluta en að hafa áhrif á verð bú- varanna, enda sé það beinlínis til- gangur þeirra að trufla ekki verðið. Einn viðmælandi blaðsins sagðist vera sannfærður um að ef búið yrði til styrkjakerfi þar sem kúabændur gætu fengið áfram styrki þó að þeir hættu mjólkurframleiðslu myndu margir nýta sér það. Kúabúskapur væri bindandi og erfið atvinnugrein og menn hlytu að spyrja sig hvers vegna þeir ættu að standa í þessu erfiði ef þeir gætu fengið styrki fyr- ir að gera ekki annað en að halda jörðinni í rækt. Hér má skjóta því að, að innan ESB er löng hefð fyrir styrkjum sem ekki tengjast framleiðslu (grænum greiðslum). Hér á landi hefur hins vegar verið lítið um slík- ar greiðslur í gegnum tíðina. Styrk- irnir hafa að langstærstum hluta verið framleiðslutengdir. Sumir forystumenn bænda sem Morgunblaðið ræddi við segjast gera sér grein fyrir ókostum grænna greiðslna, en segja jafn- framt að á vettvangi WTO sé verið að leggja þessar leikreglur og að ís- lenskur landbúnaður verði að spila eftir þeim. 20% færð frá beingreiðslum Niðurstaða samninga ríkis og bænda varð sú að upphæð bein- greiðslna verður óbreytt fyrsta ár- ið, en síðan lækka þær um 1% á ári út samningstímann, en hann er sjö ár. Á árinu 2006 verða teknar upp svokallaðar gripagreiðslur og 2007 verður tekinn upp „óframleiðslu- tengdur stuðningur“ en enn hefur ekki verið ákveðið hvernig hann verður útfærður, en í samningnum segir að hann fari „m.a. til eflingar jarðræktar“. Samningurinn gerir ráð fyrir að í lok samningstímans fari 20% af stuðningi ríkisins í svo- kallaðar grænar greiðslur, þ.e. til kynbóta og þróunar, í gripa- greiðslur og í óframleiðslutengdan stuðning sem eftir er að skilgreina. Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra lagði áherslu á það í við- ræðum ríkisins og bænda að sett yrðu í samninginn ákvæði um há- marksbústærð, þ.e. að ríkið dragi úr stuðningi eða hætti stuðningi þegar bú næðu vissri stærð. Guðni rökstuddi afstöðu sína með því að benda á að við ættum áfram að byggja á fjölskyldubúum en ekki verksmiðjubúum. Talsverð and- staða var við slíkt ákvæði hjá sum- um kúabændum sem lögðu áherslu á að ekki mætti takmarka þá hag- ræðingu sem hægt væri að ná fram með stærri búum. Niðurstaðan varð sú að sett var visst hámark á gripagreiðslur. Þær byrja að skerð- ast þegar fjöldi kúa er kominn upp fyrir 40 og falla algerlega niður þegar kýrnar eru orðnar fleiri en 100. Gripagreiðslurnar verða um 10% af stuðningi ríkisins þegar þær koma til framkvæmda. Kvótasamningar upp á 4,5 milljarða Guðni taldi einnig nauðsynlegt að setja inn í samninginn ákvæði sem væri fallið til að lækka verð á greiðslumarki. Hann var ekki einn um að hafa áhyggjur af þessu. Á síðasta verðlagsári gerðu kúabænd- ur samninga um kvótakaup fyrir 4,5 milljarða króna. Það má því kannski segja að stór hluti af bein- greiðslunum fari í reynd ekki til bænda sem eru að framleiða mjólk heldur til bænda sem eru hættir að framleiða mjólk. Þó að flestir séu sammála um að kvótaverð sé óeðlilega hátt hafa bændur jafnframt ekki áhuga á að kvótaverð hrynji. Fyrir bændur er kvóti þeirra mikilvægasta eign sem tiltölulega auðvelt er að koma í verð. Að nokkru leyti líta bændur á hann sem lífeyrissjóð. Það eru skiptar skoðanir um hvort það geti borgað sig að kaupa kvóta á 300–400 kr/l. Það liggur a.m.k. fyrir að bændur eru að gera fjárskuldbindingar með kvótakaup- um sem ná til miklu lengri tíma en þeirra sjö ára sem núverandi mjólk- ursamningur gildir. Sama má raunar segja um ýmsar aðrar fjárfestingar kúabænda í fjósum og mjaltaþjónum. „Stærstur hluti þessara fjárfestinga byggist á því að mjólkurverð til bænda verði 80–90 krónur á lítra næstu 10 árin,“ sagði einn viðmælandi blaðsins og spurði hvort slík forsenda væri raunhæf þegar bændur í nágranna- löndum okkar fengju 40–50 kr/l. Annar viðmælandi blaðsins sagði að þótt það væri ánægjulegt að það væri dugur í íslenskum kúabænd- um þá væru sumar þessara fjárfest- inga glórulausar. Það væri t.d. ekk- ert vit að kaupa mjaltaþjón fyrir 14–15 milljónir á bú með aðeins 200 þúsund lítra framleiðslu. Bændum í öðrum löndum dytti slíkt ekki í hug. Fengu ekki tryggingu fyrir óbreyttum tollum Nefndin sem skilaði skýrslu um mjólkurframleiðsluna í febrúar 2004 taldi brýnt að í nýjum mjólk- ursamningi yrðu mótuð skýr skil- yrði fyrir frjálsari verðlagningu t.a.m. með hagræðingarkröfu á vinnslustöðvar „og/eða í gegnum lækkun innflutningstolla og aukn- ingu tollkvóta“. Í eldri mjólkursamningi var að finna ákvæði þar sem ríkið hét því að breyta ekki tollum á samnings- tímanum. Ríkið vildi hins vegar ekki að slíkt ákvæði væri sett í nýj- an samning, ekki síst þar sem hugs- anlegt væri að samkomulag næðist á vettvangi WTO sem fæli í sér skuldbindingu fyrir Ísland að breyta tollum. Bændur hafa því ekki lengur tryggingu fyrir því að tollum verði ekki breytt, líkt og þeir höfðu í gamla samningnum. Ekkert hefur þó komið fram um að stjórn- völd áformi að lækka tolla líkt og nefndin lagði til, en sú tillaga var sett í skýrsluna, ekki síst vegna þrýstings frá fulltrúum launþega- hreyfingarinnar í nefndinni. Munur á tollheimildum og tollum Það er vert að benda á að þó að samkomulag náist hjá WTO um verulega lækkun tolla þá hafa ís- lensk stjórnvöld eftir sem áður tals- vert svigrúm til að láta slíka lækk- un koma til framkvæmda. Ástæðan fyrir þessu er sú að það er talsvert mikill munur á tollheimildum sem Ísland hefur og þeim tollum sem raunverulega eru lagðir á. Þetta er reyndar nokkuð mismunandi milli tollnúmera, en almennt má segja að Ísland hafi mjög ríflegar heimildir til að leggja á tolla. Þegar WTO samþykkir að lækka þessar heim- ildir, hvenær svo sem það verður, er ekki sjálfgefið að tollarnir á Ís- landi þurfi að lækka eins mikið. Þó að um þetta sé ekki hægt að full- yrða með afgerandi hætti, vegna þess að niðurstaða WTO liggur ekki fyrir, er ljóst að það verður áfram pólitískt átakamál á Íslandi hversu miklir tollar verða lagðir á innflutt- ar landbúnaðarvörur. Sama á við um beingreiðslurnar. Við nýtum að vísu um 95% af þeim heimildum sem við höfum til gulra greiðslna. Heimildirnar nema í dag um 12 milljörðum króna, en þar af er opinber verðlagning á mjólkur- vörum metin á rúmlega fjóra millj- arða. Ef stjórnvöld ákveða að af- nema opinbera verðlagningu myndast svigrúm sem fer langt með að duga til að halda bein- greiðslum óbreyttum þó að sam- komulag verði á vettvangi WTO um að lækka gular greiðslur um 40– 50%. ASÍ lagðist gegn því að búvörunefnd yrði lögð niður Í dag er heildsöluverð á um helm- ingi mjólkurafurða ákveðið af bú- vörunefnd, en í henni sitja fulltrúar bænda, mjólkuriðnaðarins, ríkisins og launþegahreyfingarinnar. Þetta eru liðir eins og mjólk, smjör, brauðostur og fleira. Verðlagning á unnum mjólkurvörum er hins veg- ar að mestu leyti frjáls. Sá mjólkursamningur sem rann úr gildi 1. september á síðasta ári gerði ráð fyrir að allri opinberri verðlagningu á mjólkurvörum yrði hætt 30. júní 2001. Framkvæmd þessa var hins vegar frestað til árs- ins 2004. Samkeppnisstofnun kvartaði yfir þessu í áliti sem hún sendi frá sér. Stjórnvöld létu vinna lögfræðiálit um málið þar sem kom- ist er að þeirri niðurstöðu að rétt- aróvissa sé í málinu vegna þess að ákvæði búvörulaga og samkeppn- islaga stangist á. Niðurstaðan varð því sú að bíða með ákvörðun í mál- inu þar til nýr mjólkursamningur hefði verið gerður. Í skýrslu nefndar um mjólkur- framleiðsluna, sem skilaði áliti í febrúar 2004, er ekki lagt til að gerðar verði breytingar í þessu máli. „Nefndin leggur þó áherslu á að óskynsamlegt væri að afnema opinbera verðlagningu við þau skil- yrði sem nú ríkja, enda ljóst að það starfsumhverfi sem samningsaðilar gengu út frá að yrði raunin eftir af- nám opinberrar verðlagningar verður ekki tryggt nema með laga- breytingu.“ Ástæðan fyrir því að nefndin lagði ekki til breytingar á þessu, þrátt fyrir að nefndin bendi á að „opinberar verðákvarðanir séu al- mennt á undanhaldi“, er sú að fulltrúar launþegahreyfingarinnar lögðust gegn því. Björn Snæbjörnsson, sem sæti á í búvörunefnd fyrir hönd ASÍ, segir að ASÍ hafi lagt áherslu á að geta áfram haft áhrif á verðlagningu mjólkurafurða. Þetta fyrirkomulag hafi gefist vel. Búvörunefnd hafi ekki hækkað heildsöluverð í þrjú ár sem þýði verulega kjarabót fyrir neytendur. Nefndin hafi í lok síð- asta árs samþykkt 2,5% hækkun og það sé ótvírætt mikill árangur að þetta skuli vera eina hækkunin á mjólkurverði í fjögur ár. Hann seg- ist ekki í vafa um að þróunin hefði orðið önnur ef verðið hefði verið frjálst. Þó að afnám opinberrar verð- lagningar hafi verið talsvert rætt í viðræðum ríkisins og bænda um nýjan mjólkursamning reyndi aldr- ei alvarlega á það hvort samkomu- lag næðist um að breyta þessu. Ástæðan var sú að hvorugur aðili vildi gera breytingar í þessa veru í andstöðu við launþegahreyfinguna. Nýr sauðfjársamningur í undirbúningi Núverandi samningur ríkisins við sauðfjárbændur rennur út á næsta ári og reiknað er með að undirbúningur undir gerð nýs samnings hefjist í vetur. Bændur hafa þegar skipað fulltrúa í samn- inganefnd, en beðið er eftir tilnefn- ingum af hálfu ríkisins. Ekkert liggur því fyrir um hvernig nýr samningur kemur til með að líta út. Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra segist vilja setja þessa vinnu á fullan skrið í vetur. Það þurfi að fara yfir það hvernig útlitið í þessum alþjóðasamningum sé. „Ég er hins vegar alveg klár á því að sauðfjársamningurinn hefur skilað bændum miklu, bæði í því að undirbúa sauðfjárbúskapinn undir nýja tíma og að afkoma sauðfjár- bænda er að batna. Ég held að þetta hafi verið mjög góður samn- ingur og að við eigum ekkert að breyta honum meira en nauðsyn- legt er.“ ur notað tímann? Morgunblaðið/Golli Geir H. Haarde, fyrrverandi fjár- málaráðherra, og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra fengu sér mjólk að drekka eftir að hafa skrifað undir nýjan samning við bændur um stuðn- ing við mjólkurframleiðsluna. Samn- ingurinn gildir til sjö ára eða fram yfir næsta kjörtímabil. egol@mbl.is en búvöruverðið er engu að síður viðkvæmasta málið. Nefndinni er ekki einungis ætlað að skila skýrslu um orsakir hás mat- vælaverðs. Hún á að „gera tillögur sem miða að því að færa matvæla- verð nær því sem gengur og gerist í helstu nágrannaríkjunum“, eins og segir í fréttatilkynningu frá forsæt- isráðuneytinu. Forsendur nefndar- innar eru því alveg skýrar. Henni er ætlað að gera tillögur um lækkun matarverðs. Tillögurnar eiga að liggja fyrir um mitt ár þannig að hægt verði að leggja fram lagafrum- varp næsta haust. Fróðlegt verður að sjá hvort nefndinni tekst að upp- fylla erindisbréfið án þess að leggja til lækkun tolla og/eða lækkun á vörugjöldum. Í þessu samhengi benda viðmæl- endur blaðsins á að Halldór Ás- grímsson sé í framboði í Reykjavík þar sem fylgi Framsóknarflokksins er í sögulegu lágmarki ef marka má skoðanakannanir. Með því að koma til móts við þá sem gagnrýna hátt matvælaverð á Íslandi, ekki síst verð á búvörum, sé hann m.a. að koma á móts við kjósendur sína í borginni. Þá má nefna að stjórnvöld hafa sett af stað vinnu sem miðar að því að breyta skipulagi stjórnarráðsins. Í þeirri vinnu hlýtur sú hugmynd, sem lengi hefur verið rædd, að verða skoðuð, að sameina öll at- vinnuvegaráðuneytin. Verði það gert er hætt við að staða landbún- aðarins innan stjórnkerfisins veik- ist. Davíðs egol@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.