Morgunblaðið - 22.01.2006, Síða 25

Morgunblaðið - 22.01.2006, Síða 25
ráðsins er mér það auðvitað ánægjuefni. Það má nefna sem dæmi að ógreiddar innistæður íslenskra fyr- irtækja vegna sölu á sjávarafurð- um voru gerðar upp að fullu áður en Sovétríkin hrundu og því náði ekkert annað OECD-ríki. Til dæm- is voru stórfelldar skuldir, sem Finnar náðu ekki að innheimta.“ Misreiknuðu sig í Smugudeilu Ólafur sagði að náðst hefði gott samband við stjórnvöld í Moskvu á þessum tíma. „Þegar Smugudeilan kom upp undir lok starfstíma míns í Moskvu voru samskipti okkar við þann ráð- herra, sem fór með sjávarútvegs- mál, einkar góð. Ég áleit því væn- legt og lagði til að málið yrði rætt jöfnum höndum við norsk og rúss- nesk stjórnvöld. Hins vegar var tekin sú ákvörðun hér heima að fyrst væri rétt, eins og það var orðað, „að leysa málið við Norð- menn og láta þá svo hjálpa okkur við að leysa það gagnvart Rúss- um“. Allir þekkja söguna. Norð- menn urðu okkur ennþá þyngri í skauti en Rússar. Og ég hef vissu fyrir því að norski sendiherrann í Moskvu vann að því ötullega að fá Rússa upp á móti okkur. Það kem- ur fyrir að við sendiherrarnir er- lendis kysum að betur væri hlustað á ráðleggingar okkar, en sem bet- ur fer eru ekki mörg dæmi af þessu tagi.“ Valdseigla kínverska kommúnistaflokksins Sovétríkin hrundu, en kommún- istaflokkurinn hefur haldið velli í Kína. „Í sjálfu sér átti sama þróunin sér stað í Sovétríkjunum og Kína,“ sagði Ólafur. „Frá kommúnisma yfir í markaðshagkerfi. Það er enginn vafi á því að Kínverjar litu mjög til þróunarinnar í Rússlandi sem víti til að varast. Þeir höfðu í rauninni mikið gagn af því að geta haft slíkt fordæmi. Gorbatsjov vildi ’En ég mætti yfirleitt – yfirleitt – fullkom-inni háttvísi á þessum fundum. Ég myndi ekki segja að soðið hefði upp úr, en ég minn- ist hryssingslegrar framkomu í tvígang.‘ hagsáætlunin var 55 milljónir danskra króna [rúmlega 550 millj- ónir íslenskra króna]. Fjögur Norðurlandanna greiddu 24%, en Íslendingar 4%. Okkar eigin fjár- veiting var 57 milljónir íslenskra króna. Þar af eru þessi fjögur pró- sent rúmlega 20 milljónir íslenskra króna, en hitt kostnaður við ýmsan undirbúning og sérstaklega við einkar velheppnaða menningar- kynningu á Íslandsdegi sýningar- innar 15. júlí síðastliðinn þar sem 3000 manna áhorfendasvæði var nánast fullskipað. Það er sérstök ánægja að segja frá því að það tókst að halda útgjöldum innan við þessar fjárveitingar bæði hvað snertir norræna þáttinn og þann íslenska. Það þykir töluvert afrek og er of fátítt. Þema sýningarinnar í þetta skipti var „Viska náttúrunnar“. Af Norðurlandanna hálfu var meðal annars kynnt vistvæn orka: jarð- hiti, vindorka og vatnsorka. Líka var lögð áhersla á hönnun og mik- ilvægi hafsins. Þykir hafa komið í ljós að það sem þarna var sýnt hafi náð vel til sýningargesta, vakið að- dáun þeirra og áhuga margra á að heimsækja löndin. Hörð sam- keppni var um að halda næstu sýn- ingar. Sameiginlegur skáli í Sjanghæ? Það verður minni heimssýning í Saragossa 2008, en næsta stórsýn- ing verður í Sjanghæ 2010. Enginn vafi leikur á því að okkur yrði hag- ur af því ef norrænt samstarf héld- ist í einhverju formi. Framundan er að taka afstöðu til þess. Það má ganga út frá að Norðurlöndin flest telji sig þurfa að leggja meiri áherslu en þurfti núna á það sem þau hafa sérstaklega fram að færa, til dæmis er Kína langstærsti markaðurinn fyrir farsíma Nokia og Ericsson og líka framleiðslu- land. Það var því rætt um eitthvað sem bæri keim af samstarfinu um sendiráðin í Berlín þannig að nor- rænn skáli yrði ef til vill að hluta til sameiginlegur, en löndin hefðu síðan eins og botnlanga út af fyrir sig, misstóra, þar sem þau réðu sjálf hvað sýnt væri.“ Stormasamur tími í Moskvu Ólafur hefur komið víða við í störfum sínum fyrir utanríkisráðu- neytið. Hann var sendiherra í Moskvu frá 1990 til 1994 þegar Sovétríkin leystust upp og fylgdist því með í návígi þegar heimsmynd- in breyttist. Síðar varð hann sendi- herra í Peking og hefur fylgst með því hvernig kínverski risinn hefur rumskað eftir langan svefn. „Það var náttúrulega einstakt að vera í Moskvu á þessum tíma,“ sagði Ólafur. „Valdaránstilraunin í ágúst 1991 og aftur umsátrið um þinghúsið í október 1993 voru at- burðir sem gerðust í minni tíð. Sendiráðið var á næstu grösum við vettvang þessara atburða. Morg- uninn eftir að Gorbatsjov hafði verið færður nauðugur suður í land og fluttur í stofufangelsi komu boð frá Jeltsín í sendiráðið. Hann ósk- aði eftir að hitta nokkra sendi- herra. Ég fór á þennan fund í Hvíta húsinu þennan morgun, rétt áður en hann steig upp á skrið- drekann úti fyrir og ávarpaði fólk- ið. Þarna útskýrði Jeltsín sína stöðu og bað sendiherrana um að koma henni til skila. Í lokin bað hann sendiherrana að hraða sér til sendiráða sinna því hann ætti von á að gerð yrði tilraun til að taka húsið nánast hvenær sem væri. Þetta voru sögulegir tímar. Ég hafði áður hitt Jeltsín, setið hjá honum í þrjú kortér, aðallega til að fá álit hans á stöðunni í Eystrasaltsríkjunum. Þetta var eftir að hann var orðinn forseti Rússlands og var í áþekkri aðstöðu og Eystrasaltsríkin. Hann var að reyna að fá meira frjálsræði fyrir Rússland undan Sovétstjórninni. Þetta var líka nokkrum dögum áð- ur en Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra, fór til Eystrasaltsríkjanna. Það var gagn- legt þá að heyra hvernig Jeltsín mat stöðuna í Eystrasaltsríkjun- um, en honum hafði verið ráðið frá því að fara til Litháen vegna ástandsins. Atbeini Íslands og stuðningur við Eystrasaltsríkin og endurheimt þeirra á sjálfstæði varð til þess að ég þurfti að hafa mun meiri samskipti við ráðamenn en íslenskur sendiherra þarf alla- jafna og þá í þeim tilgangi að skýra stefnu okkar og vinna að því að framganga okkar til stuðnings Eystrasaltsríkjunum yrði ekki til að skaða hagsmuni okkar gagnvart Sovétríkjunum. Ég mætti yfirleitt – yfirleitt – fullkominni háttvísi á þessum fundum. Ég myndi ekki segja að soðið hafi upp úr, en ég minnist hryssingslegrar framkomu í tvígang. Á tímabili var búist við að Sovétstjórnin sliti stjórnmála- sambandi og óskaði eftir því að ís- lenski sendiherrann færi úr landi. Ég man eftir blaðamanni, sem kom til mín til viðtals, og fyrsta spurn- ingin var hvort ég væri byrjaður að pakka. Þessu var spáð af því að það sem Ísland væri að gera kæmi Sovétstjórninni illa, en sem betur fer var ekki hægt að greina nein merki þess að við værum látin gjalda afstöðu okkar. Að því leyti, sem það er árangur af starfi sendi- reyna að breyta bæði hagkerfinu og kommúnistaflokknum um leið þannig að flokkurinn gæti haldið áfram að vera forustuafl. Íhalds- öflin í kommúnistaflokki Sovétríkj- anna urðu honum hins vegar of- viða. Honum tókst ekki að fara þá leið, sem verið er að fara í Kína. Það er mjög athyglisvert að sjá hvernig Kínverjar hafa þróað mál- in. Þeim hefur tekist að koma á miklu virkari þátttöku alþjóðlegra og vestrænna fyrirtækja í upp- byggingunni. Ég er þeirrar skoð- unar að ein ástæðan til þess að svona ógæfulega fór í Sovétríkj- unum og Rússlandi hafi verið að vestrænar ríkisstjórnir og alþjóð- leg fyrirtæki voru afskaplega sein til samstarfs og héldu að sér hönd- um. Sumar ráðleggingar alþjóð- legra stofnana voru líka óraunsæj- ar miðað við þær erfiðu aðstæður sem almenningur bjó við.“ Ólafur sagði að í þessu ljósi væri fróðlegt að íhuga þá stefnu sem Jiang Zemin forseti, sá er kom í heimsókn til Íslands, markaði um þróun kommúnistaflokksins í Kína, en til hans teljast um 66 milljónir félagsmanna. „Jiang setti fram þrjár áherslur fyrir starfi flokks- ins: Að gæta hagsmuna meirihluta þjóðarinnar, standa vörð um fram- leiðsluöflin og menningarþróunina. Um leið var flokkurinn opnaður fyrir kaupsýslumönnum, var í raun gerður nánast að flokki allra stétta. Með öðrum orðum, bæði varðandi stefnuna og svo þessa opnun voru sköpuð skilyrði til að hann gæti áfram verið forystu- flokkur í algerlega breyttu þjóð- félagi. Þetta er raunar ágætt dæmi um þau hyggindi sem vart verður í mörgum kínverskum stjórnarat- höfnum og ráða miklu um vel- gengni þeirra,“ sagði Ólafur að lokum – og kemur í því sambandi upp í hugann að milljónamæringar á dollaravísu í Kína hafi fyrir ári síðan verið orðnir 236 þúsund. kbl@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 25

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.