Morgunblaðið - 22.01.2006, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 29
FISKELDISSTÖÐ TIL SÖLU!
Miklilax að Hrauni I í Fljótum
Fiskeldisstöðin Miklilax er staðsett á jörðinni
Hraun I, Fljótahreppi, skammt frá Siglufirði.
Húsakostur:
Vandað sláturhús úr límtré, 485,3 m2 stálklætt.
Rafstöðvarhús 153,7 m2 (steypt).
Djúpdæluhús 38,8 m2 (steypt ) og skúrar.
Fiskeldisker:
Steyptur botn og hliðar úr glerjungshúðuðu stáli:
8 stk. Ø 23,9 m og 3 stk. Ø 12,9 m.
Véla- og tækjabúnaður:
Rafstöð Cummins 820 hp, keyrð 900 klst., Rafall Leroy-Somer 516 kw,
4 stk. Framo djúpdælur, 4-5 stk. loftdælur, krapavél Type B105 o.m.fl.
Lausamunir:
Talsvert magn af plaströrum Ø600 mm og 170 mm og ýmsu
öðru efni og búnaði.
Upplýsingar verða gefnar í síma 444 8706 og einnig má senda fyrirspurnir
á faxnúmerið 444 8709 og á netfangið henry@kbbanki.is.
Óskað er eftir tilboðum í alla stöðina eða hluta
þ.e. byggingar, vélar eða lausamuni
Senda skal inn formleg tilboð ásamt greiðsluskilmálum.
Tilboðsfrestur er til 10. febrúar 2006.
Tilboð sendist til KB banka, Sóltúni 26, 105 R. c/o Henrý Þór.
Kaupþing banki hf. áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er,
eða hafna öllum.
X
RÝMINGARSALA
Gegnheilar flísar frá kr. 1.090.- m
Smellt plastparket frá kr. 790.- m
Verðdæmi:
2
2
Skútuvogi 6 Sími 568 6755 www.alfaborg.is
25% afsláttur af
Nordsjö málningu
Flísaafgangar frá
kr. 600 m2
Þúsundir fermetra af flísum
á lækkuðu verði
Það er svo margt semmennirnir vita ekki, tildæmis hver skapaðistjörnurnar og setti þærþarna og af hverju,“ segir
vinur minn ákafur. Ég er í þungum
þönkum um fátækt í heiminum, frið-
arhorfur og ástandið í Súdan, og
finn ekkert gáfulegra til að segja en:
„Ha?“
„Já, af hverju eru stjörnurnar
þarna? Sjáðu þær!“ segir hann og
bendir heillaður upp í himininn.
Hann er frá Suður-Súdan og heitir
Michael. Við sitjum á plaststólum
úti í náttmyrkrinu. Himinhvolfið er
eins og þykkt teppi sem er þakið
fallegu, silfruðu glimmeri. Í raf-
magnsleysi úti á landi í Suður-Súd-
an sé ég margfalt fleiri stjörnur en
ég á að venjast. Þær sjást ekki
svona vel í ljósamergðinni í Reykja-
vík.
Michael bendir upp í himininn og
segir hugsi: „Ef Guð skapaði stjörn-
urnar og heiminn – hver skapaði þá
Guð? Og ef Guð er ekki til og heim-
urinn er samsettur úr efni og engu
öðru, hvernig varð þá veröldin til?
Ég meina, segja ekki vísindamenn-
irnir að ekkert geti orðið til af engu?
En hvernig byrjaði þá eitthvað í
fyrstu?“ spyr Michael, ranghvolfir í
sér augunum og fer að hlæja.
Þegar tónlist táknar frelsi
Seinna sama kvöld berst ómur af
trumbuslætti utan úr náttmyrkrinu.
Á kvöldin heyrist iðulega í einhverj-
um syngja og spila á trommur.
Stundum berst tónlist frá mörgum
stöðum í einu.
„Veistu, þetta er nýtt,“ hvíslar
strákur á mínum aldri að mér, þar
sem við sitjum við lítinn varðeld.
„Í stríðinu var ekki sungið svona
og spilað. Þetta er nýtt. Núna erum
við nefnilega frjáls. Við erum
kannski fátæk en við erum frjáls,“
segir hann. „Þegar ég heyri tónlist-
ina þá veit ég að ég er frjáls. Þetta
er svona frelsistónlist!“
Ég kinka kolli. Fyrir utan kofann
þar sem ég gisti er skotbyrgi en í
dag vappa geitur þar í kring. Það er
tímanna tákn. Rétt hjá skotbyrginu
er vatnsdæla þar sem fólk af svæð-
inu nær í vatn. Konur og börn bera
stóra brúsa á höfðinu og veifa út-
lendingnum feimin.
Skordýr og híenur
Nóttin á dvalarstað mínum hefur
sín eigin hljóð. Ég skríð upp í rúm
undir trumbuslætti og söng. Stund-
um tekst mér að heyra tónlistina
þagna, stundum hefur hún hins veg-
ar fleytt mér inn í draumaheiminn.
Þegar tónlistin hættir taka hljóðin í
skordýrunum við. Þau eru hávær.
Híenurnar sem byrja að væla þar á
eftir eru þó enn háværari. Eða eru
þær að góla, jafnvel hlæja? Ég bylti
mér undir moskítónetinu í rúminu.
Það birtir af degi og fuglarnir
byrja að syngja. Að lokum heyri ég
mannamál við vatnsdæluna. Þá er
kominn dagur.
Morgunblaðið/Sigríður Víðis
Konur og barn ræða lífið og tilveruna fyrir utan heimili sitt í Rumbek í Suður-Súdan. „Ef Guð skapaði stjörnurnar og
heiminn — hver skapaði þá Guð?“ spurði félagi minn mig um kvöldið. Við sátum undir stjörnubjörtum himni.
Stjörnur, Guð og skotbyrgi
sigridurv@mbl.is
Svipmynd frá Súdan
Sigríður Víðis Jónsdóttir
Fréttasíminn 904 1100