Morgunblaðið - 22.01.2006, Síða 33

Morgunblaðið - 22.01.2006, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 33 Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur • Borgartún 3 • 105 Reykjavík • Sími 411 3000 Reitirnir sem um ræðir eru Lögreglustöðvarreitur, Skúlagarður, Hampiðjureitur, KB bankareitur, Tryggingastofnunarreitur og reitur sem afmarkast af Einholti og Þverholti, en síðast taldi reiturinn hefur þegar verið auglýstur með athugasemdafresti til 1. mars. Auk formanns skipulagsráðs, Dags B. Eggertssonar, og embættismanna munu skipulagsráðgjafar mæta á fundinn og kynna nýjar tillögur að deiliskipulagi svæðisins. Einnig mun verða stutt umfjöllun um skipulag Miklatúns. Íbúar á svæðinu og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta og kynna sér og ræða hinar nýju tillögur. Fundurinn verður haldinn að Kjarvalsstöðum á Miklatúni þriðjudaginn 24. janúar n.k. og hefst kl. 17:00. Hlemmur plús kynningarfundur Skipulagsráð og Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur boða til almenns fundar þar sem kynntar verða tillögur að nýju deiliskipulagi á 6 reitum umhverfis Hlemm. Í tillögunum er m.a. gert ráð fyrir talsverðri endurnýjun og uppbyggingu nýrra bygginga. Um daginn færði bisk-up Íslands, einn afæðstu embættis-mönnum þjóðarinnar,okkur öllum þann boðskap að ef samkynhneigðir gætu gengið í heilagt hjónaband í guðs nafni, jafngilti það því að henda hjónabandi okkar hinna á haugana. Þegar fólk brást ókvæða við, kallaði hann við- brögðin moldviðri. Jamm. Hann má sem sagt bendla ástamál hluta þjóðarinnar við ruslahauga, en andmælendur eiga að skammast sín fyrir að halda ekki kjafti. Eins og segir í hinni góðu bók: „Guð, ég þakka þér, að ég er ekki eins og aðrir menn …“ (Lk.18.11) Af því að ég ber virðingu fyrir bisk- upnum, hef ég að undanförnu verið að velta því mikið fyrir mér hvernig kirkjuleg hjónavígsla samkyn- hneigðs pars muni eyðileggja mitt hjónaband. Hvernig gerist það? Koma hommar og lesbíur þá upp á milli okkar hjóna? Kem- ur haugalykt af rúmfötunum okk- ar? Ég hef satt að segja ekki náð að átta mig á þessu. En í heila- brotum mínum um þennan að- steðjandi voða, hef ég staðnæmst við eitt. Ef hjónabandi mínu stendur ógn af samkynhneigðum í hjónabandi, hvað þá með ferm- inguna mína og alla þá homma og þær lesbíur sem prestar landsins hafa fermt í gegnum ár- in? Það er löngu ljóst að fjöldinn allur af þessum bólugröfnu englabörnum sem staðfest hafa skírnarheitið frammi fyrir guði almáttugum í kirkjum landsins á liðnum árum, eru samkyn- hneigðir einstaklingar. Er ekki alveg borðleggjandi að fermingin er fyrir löngu orðin haugamatur? Eða, hver er munurinn? Er hann kannski sá að við fermingu er samkynhneigð viðkomandi sjaldnast opinber? Er allt í lagi að ferma homma og lesbíur af því að presturinn veit ekki að þau eru hommar og lesbíur? Ætti kirkjan ekki að afturkalla ferm- ingu þeirra sem koma út úr skápnum, eftir að hafa verið bætt í raðir liðsmanna Jesú frá Nas- aret, sem reyndar var ógiftur og barnlaus samkvæmt frásögn bibl- íunnar og aldrei við kvenmann kenndur samkvæmt sömu heim- ild? Ég verð að játa að ég finn reyndar ekki fyrir því að það beri skugga á þá staðreynd að ég er fermdur, þó út um allt land sé fullt af sam- kynhneigðu fólki sem einnig er fermt. Ég er jafnfermdur samt. Eins sýnist mér, að ég verði jafn- ágætlega kvæntur, þótt samkyn- hneigt par gifti sig líka. Ef ein- hver getur skemmt mitt hjónaband er það ég sjálfur. Það er í sjálfu sér ekkert óeðli- legt, hvað þá óvænt, að kirkjan sé ekki í takt við tímann. Hún hefur ekki verið það síðan hún missti ægivald sitt yfir lýðnum og þar með möguleikann til að láta hann þramma í takt við sig. Þess vegna er staðan sú að auðvitað mega hommar og lesb- íur gifta sig í íslenskum guðs- húsum. Þau mega bara ekki gift- ast þeim sem þau elska. Og þannig á það að vera að mati biskups. Þannig hljóðar hin heila forpokun. Ég held að því sé þannig varið með marga nútímamenn að þeim finnist yfirleitt ekkert mikið um kirkjuna, hvorki gott né slæmt, en líti alls ekki á sig sem and- stæðinga hennar eða óvini. En nú hefur kirkjan, gegnum yfirmann sinn, sjálfan besta vin aðal, lagt sitt af mörkum til að eignast fjölda beinna andstæð- inga með því að tengja ástir sam- kynhneigðra guðs barna við úr- gang og eyðileggingu. Ég segi bara: Sá sem á slíka vini, hefur ekkert að gera við óvini. Hin heilaga forpokun HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Svein- björn I. Bald- vinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.