Morgunblaðið - 22.01.2006, Page 37

Morgunblaðið - 22.01.2006, Page 37
eltast við að kaupa hluti eftir fræga hönnuði og talað um að þeir séu bara að sýnast sem berist svona mikið á að eiga fræga hluti. En hvað er þá sá sem kaupir eftirlíkingar af frægum hlutum að meina? Það er alveg hægt að velta því fyrir sér hvor sé að sýn- ast meira, sá sem fjárfestir í alvöru eða hinn sem eyðir í eftirlíkingar. Það er nefnilega fjárfesting í klass- ískum hönnunargripum alveg eins og það er fjárfesting að eiga klassíska myndlist og kannski er þetta ekki einu sinni spurning um hvort hlutur er klassík eða ekki heldur einfaldlega um alvöru og eftirlíkingu. Saga hlutarins skiptir máli Þegar ég las þessa frétt um dóm- inn útaf Bombo-stólnum fór ég að velta því fyrir mér hvað eftirlíkingar væru og hvað er það sem gefur ein- um hlut gildi en ekki öðrum ef þeir eru alveg eins. Í hverju liggja verð- mætin og getur maður gert sig ánægðan með eitthvað sem maður veit að er ekki ekta? Mig langar til dæmis í einn hæg- indastól með skemli sem var hann- aður eitthvað í kringum 1950 af frægum hönnuðum í Ameríku. Mér finnst stóllinn alveg rosalega fallegur og eftir að ég las bók um hönnuðina langaði mig ennþá meira í hann. Þessi stóll er meira að segja oft not- aður sem tákn um „góðan smekk“ einhvers í bíómyndum og til dæmis á Fraiser einn svona stól. Það er hægt að fá stólinn í einni búð hér í bænum, eða láta þá panta hann fyrir sig og hann kostar þá rétt yfir hálfa milljón. En nú er komin önnur búð í bæinn sem selur eftirlíkingu af stólnum á u.þ.b. einn fjórða úr verði hins. Ég viðurkenni að ég varð spennt yfir því að geta nú kannski keypt mér stólinn fyrir viðráðanlegt verð og á myndinni í auglýsingunni sást varla nokkur munur á þessum stól og svo alvöru stólnum. En ég fæ það ekki af mér. Ég get ekki réttlætt það fyrir sjálfri mér sem vöruhönnuði að kaupa eftirlíkingu jafnvel þótt enginn þyrfti að komast að því að þetta er ekki alvöru stóllinn. Svarið liggur að einhverjum hluta í þeirri staðreynd sem ég nefndi áðan að eftir að ég las bók um hönnuðina og kynnti mér sögu stólsins, þá langar mig enn meira í hann. Saga stólsins skiptir máli. Virðing gagnvart hæfileikum fólks Það sem skilur á milli alvöru hluta og eftirlíkinga er sú saga sem alvöru hluturinn geymir. Á bakvið hann er hugsjón og tilgangur og í honum liggur vinna sem heillar mig. Öll rannsóknarvinnan, allar tæknilegu hindranirnar sem hönnuðirnir þurftu að leysa og allar tilraunirnar sem þau gerðu og hvernig formið mót- aðist í höndunum á þeim. Mér finnst þetta merkilegur stóll fyrir það og þess vegna langar mig í hann. Þetta er það sem skilur á milli al- vöru hluta og eftirlíkinga, alvöru hlutirnir eiga sér sögu sem eftirlík- ingin á sér ekki. Eftirlíking er ein- hver að stytta sér leið og hún getur aldrei staðið fyrir neitt. Þetta snýst einfaldlega um virðingu gagnvart vinnu fólks og hæfileikum þess og trú á því að faglært fólk hafi vit á því sem það er að gera. Eftirlíkingar gefa manni ekkert, þær segja í mesta lagi til um hvaða stöðu þig langar að hafa í samfélag- inu og hvaða augum þig langar að aðrir líti þig, en ekki hvaða stöðu þú raunverulega hefur. Svo eru þær ekki einu sinni það ódýrar að hægt sé að réttlæta kaupin þannig. Hugs- anlega mun þessi nýfallni dómur um sölu eftirlíkinga, hjálpa til við þá hugarfarsbreytingu sem þörf er á hér á Íslandi gagnvart hönnun svo hún getir blómstrað sem alvöru fag. Morgunblaðið/Ásdís Hinn frægi Bombo-barstóll eftir Stefano Giovannoni. Stóllinn hefur mikið verið falsaður og hægt var að fá eftirlíkingar af þessum stól hér í bænum þangað til nú fyrir skemmstu. Alvöru Bombo-stól færðu hinsvegar í Epal. Höfundur er vöruhönnuður. Morgunblaðið/Ásdís MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 37 Barnaleiksýning ársins 2005 ÚTSALA 50% afsláttur af öllum vörum v/Laugalæk • sími 553 3755

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.