Morgunblaðið - 22.01.2006, Side 41
en það gerði félagi hans og skipti ég
um bíl. Ranghalarnir þó viðlíka
margir ásamt óvæntum sjónarhorn-
um, en skáldið safnaði munum frá
öllum heimshornum.
Draumahúsið í Isla Negra tekur
hinum tveim mikið fram og er sem
heilt safn fágætra muna, einkum
tengdra hafinu, einnig útskornar
grímur og hvers konar tréskúlptúr-
ar víða að. Sjálf staðsetningin stór-
brotin og myndræn, klettótt bað-
strönd fyrir neðan, hvítfyssandi
öldur úthafsins leika um sanda og
freyða um sker. Vinir Neruda
nefndu hann sjáandann, Gabriel
Garcia Marques, mesta skáld tutt-
ugustu aldarinnar, þá var hann
kommúnisti og and-„intellektúal“.
Hann var nemandi Gabrielu Mistral
sem hjálpaði honum að fá styrk til að
nema frönsku við háskólann í Sant-
iago. Neruda var tilnefndur erind-
reki utanríkisþjónustunnar og sem
slíkur konsúll víða í Austurlöndum
fjær og ferðaðist vítt og breitt um
þau. Kom til greina sem forsetaefni í
Chile en mælti með vini sínum Salva-
dor Allende sem náði naumlega kjöri
og útnefndi skáldið sendiherra í Par-
ís. Sneri heim eftir að hafa frétt af
valdatöku herforingjanna en lést 12
dögum eftir morðið á Allende.
Hér í þessu fjarlæga landikemst maður betur að þvíen víða annars staðar hvemikillar virðingar Nóbels-
verðlaunin njóta sem eitthvað alveg
sérstakt og hámark þess sem mögu-
legt er að afreka í bókmenntum.
Norðurlöndin verða að vera sér bet-
ur vitandi um sérstöðu sína í heim-
inum, og að stórum auðveldara er að
glata henni en viðhalda. Þessu þurfa
stjórnmálamenn að gera sér betri
grein fyrir og að samviskunni og
þjóðarstoltinu megi ekki drekkja í
múgmennsku né gera að söluvöru á
heimsmarkaði.
Minningu Gabrielu Mistral ekki
síður sómi sýndur, til að mynda er
minnisvarði um skáldkonuna og
verk hennar á Sánkti Luciuhæð í
Santiago. Mistral var barnakennari
að mennt og afburða bráðger sem
skáld og hóf feril sinn aðeins fimm-
tán ára. Sautján ára kynntist hún
tuttugu og þriggja ára gömlum járn-
brautarstarfsmanni sem var fyrsta
stóra ástin í lífi hennar. Þremur ár-
um seinna framdi hann sjálfsmorð
sem tók mjög á hana og hún orti sig
frá með mögnuðum ljóðum. Viðföng
hennar voru þunglyndisleg og harm-
ræns eðlis þar sem vitundin um
dauðann var jafnaðarlega innan seil-
ingar, sem er raunar kennimark suð-
ur-amerískrar listar í það heila. En
er lífið ekki í eðli sínu harmræns eðl-
is og vitundin um tómið sem bíður
allra á stundum áleitin? Dauðinn við
næsta horn og menn fjarlægjast
hann ekki með því að setja upp sól-
gleraugu. Athafnir Gabríelu Mistral
á vettvangi barnafræðslu í heima-
landi sínu, allt frá Antofagasta í
norðri til Punta Arenas í suðri, sem
og í Mexíkó, sýndu allt aðra hlið á
persónunni, þrungna eldmóði og
bjartsýni. Formið sem hún valdi
ljóðum sínum var þannig öðru frem-
ur listræns eðlis, sprottið upp af rót-
um hefða og alþýðumenningar.
Straumhvörf urðu á lífi skáldkon-
unnar eftir Nóbelsverðlaunin sem
nú gegndi ýmsum störfum á vegum
utanríkisþjónustunnar, var konsúll á
Spáni, Portúgal og Brasilíu. Ferðað-
ist mikið, skrifaði, flutti fyrirlestra
og vann að málefnum barna, og þeg-
ar hún lést í Hempstead, New York
1957 var hún löngu virtasti fulltrúi
Suður-Ameríku í heiminum.
Við hæfi að auka hér við, að konur
virðast sækja stíft fram í Chile um
þessar mundir, kemur ekki einungis
fram varðandi fyrsta kvenforseta
landsins Michelle Bachelet, heldur
einnig hvað snertir sjónvarpsþulurn-
ar, sem stjórnuðu flestum kappræð-
um fyrir kosningar. Þær virtust að
best varð séð standa sig frábærlega,
kunna sitt fag til hlítar. Skaðar
trauðla að dömurnar voru til viðbót-
ar fjallmyndarlegar, látlaust og vel
til hafðar.
Þróun sem hefði glatt Gabrielu
Mistral og Pablo Neruda um leið.
bragi@internet.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 41
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
Rannsóknarnámssjóður
Umsóknarfrestur til 1. mars 2006
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
www.rannis.is
Stjórn Rannsóknarnámssjóðs auglýsir almenna styrki úr sjóðnum 2006
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2006
Hlutverk Rannsóknarnámssjóðs er að styrkja rannsóknatengt framhaldsnám að loknu grunn-
námi við háskóla.
Veittir eru styrkir til framfærslu nemenda í rannsóknatengdu framhaldsnámi, sem stundað er
við háskóla eða á ábyrgð hans í samvinnu við rannsóknastofnanir eða fyrirtæki. Styrkurinn til
framfærslu miðast einungis við þann tíma sem nemendur vinna að meistara- eða doktorsverk-
efni sínu. Rannsóknaverkefni skal nema að minnsta kosti 30 einingum af náminu (60 ECTS ein-
ingum) og tengjast rannsóknasviði leiðbeinanda. Sé námið stundað við háskóla erlendis skal
rannsóknaverkefnið lúta að íslensku viðfangsefni og vísindamaður með starfsaðstöðu á Íslandi
taka virkan þátt í leiðbeiningu nemandans. Framlag leiðbeinanda hér á landi þarf að vera veru-
legt og vel skilgreint.
Tilhögun námsins fer eftir reglum einstakra deilda og eftir almennum reglum háskóla. Umsókn-
ir þurfa að áritast af aðalleiðbeinanda og forstöðumanni deildar/stofnunar. Stjórn Rannsóknar-
námssjóðs leitar faglegrar umsagnar um vísindalegt gildi verkefna, framkvæmda- og fjárhags-
áætlun og vísindalega hæfni leiðbeinenda hjá óháðum aðilum með aðstoð vísindanefnda við-
komandi háskóla eða samsvarandi aðila, áður er stjórnin úthlutar styrkjum. Umsækjendur, leið-
beinendur jafnt sem nemendur, eru hvattir til að kynna sér vandlega reglur sjóðsins og þær
kröfur sem gerðar eru til umsækjenda.
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar fyrir umsækjendur fást á heimasíðu Rannís: www.rann-
is.is eða á skrifstofu Rannís, Laugavegi 13, 101 Reykjavík. Allar nánari upplýsingar veitir Ingi-
björg Björnsdóttir, sími 515 5819, netfang ingibjorg@rannis.is. Umsóknir skal senda í þríriti til
Rannís merktar „Rannsóknarnámssjóður“.
Auk almennra styrkja veitir Rannsóknarnámssjóður FS-styrki í samvinnu við fyrirtæki og stofn-
anir. Sjá nánari upplýsingar um FS-styrki á heimasíðu Rannís.