Morgunblaðið - 22.01.2006, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 43
Nú bjóðum við til
janúarveislu á Kanarí á
frábærum kjörum. Við
bjóðum stökktu tilboð á
ótrúlegu verði. Bókaðu
strax og tryggðu þér
sæti og fjórum dögum
fyrir brottför færðu að
vita hvar þú gistir.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Kanarí
24. eða 31. janúar
frá kr. 29.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin
Verð kr.29.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
í íbúð í viku, stökktu tilboð 24. og 31. janúar.
Innifalið flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn. Aukavika kr. 10.000 á mann.
Verð kr.39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/íbúð/stúdíó
í viku, stökktu tilboð 24. og 31. janúar.
Innifalið flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn. Aukavika kr. 10.000 á mann.
Þetta var í miðri ólgu stöðugraleynisamninga við önnur ríki
og pólitískra æsinga innanlands í
Englandi. Málalok urðu stöðugt
tvísýnni og uggvænlegri, segir í
ævisögu Viktoríu
eftir Lytton
Strachey. Þegar
hinir löngu og
hættulegu samn-
ingar voru komnir
á úrslitastig kom
sú fregn að Palm-
erston lávarður
utanríkisráðherra
væri farinn frá. Hann var mjög
vinsæll með þjóð sinni og því gaf
fólk reiði sinni lausan tauminn
enda þol þjóðarinnar að bresta
vegna ógna sem að steðjuðu úr öll-
um áttum, segir í ævisögunni enn-
fremur.
Hugir manna í Englandi þá voru
æstir og reiðir og þá grunaði sam-
særi og jafnvel landráð. Þessir ór-
ar um handtöku Alberts og Viktor-
íu stöfuðu af þeim æsingum sem í
lofti lágu að mati Strachey. Rann-
sóknir hans og annarra síðar sýndu
ekki að Albert hefði á nokkurn hátt
verið viðriðinn landráð, – en búið
var að hrakyrða hann verulega í
umræðum og blöðum um nokkra
hríð þegar orðrómurinn komst af
stað.
Svo kom að því að óvissan sem
fólkið skynjaði varð að vissu, Krím-
stríðið skall á. En þá reyndist Al-
bert trúr Englandi og fékk upp-
reisn æru.
Því get ég þessa hér að mér hef-
ur fundist loftið hér á Íslandi hafa
að undanförnu verið ærið lævi
blandið. Svo æstar hafa umræður
manna verið að halda mætti að ein-
hver ógn ægilegri en DV steðjaði
að þjóð vorri. Hver gæti sú ógn
verið?
Helst dettur manni í hug hið
undarlega ástand á kauphallar-
markaðinum og víðar í viðskiptalíf-
inu. Það er undarleg spenna á
þeim vettvangi sem gæti bent til
þess að eitthvað háskalegt væri í
aðsigi. Hugurinn reikar næstum
eins og ósjálfrátt til hins mikla
verðfalls á hlutabréfum sem var
undanfari kreppuáranna illræmdu.
Fólk hefur þá hæfileika, rétt
eins og dýr, að skynja hættu í um-
hverfi sínu. Það er eins og fólk
núna óri fyrir hættu, það eitt finnst
mér geta skýrt nógsamlega hina
miklu múgæsingu sem ríkt hefur
en er að því er virðist í rénum í
bili. Margt líkar almenningi ekki,
svo sem hinir himinháu starfsloka-
samningar sem sumir fá, ofsagróði
banka og annarra fjármálafyrir-
tækja og óeining þeirra sem mest
hafa völdin í krafti peninga í þessu
samfélagi. Kannski er það þessi
grunur um að eitthvað háskalegt
sé í aðsigi sem meðfram veldur æs-
ingi fólks, einhvers staðar þarf
innri óróinn að fá útrás. Með þessu
er þó ekki verið að gera lítið úr
þeim tilefnum sem gefin hafa verið
fyrir æsingnum, víst hefur mörgum
mislíkað – en fyrr má nú fyrr vera.
Það er stundum fjarskalega óþægi-
legt að vera staddur mitt í ólgu
hins lifandi lífs, miklu þægilegra er
að lesa um ólgu fyrri tíma, hana er
hægt að kortleggja og skoða fyrir
tilstilli þeirrar framvindu sem mál-
in fengu og heimildir eru um. Það
bíður því betri tíma og líklega
seinni tíma manna að kortleggja
það sem nú er að gerast í íslensku
þjóðfélagi.
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Hvað er að gerast?
Ólga fyrr og nú
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
Í janúar 1854 ríkti mikil múgæsing í
London. Orðrómur var um að Albert
prins, eiginmaður Viktoríu drottn-
ingar, hefði verið tekinn fastur fyrir
landráð og ætti að flytja hann í
Tower. Sumir sögðu að drottningin
hefði líka verið handtekin.
Í allar lúgur á höfuðborgarsvæðinu