Morgunblaðið - 22.01.2006, Side 59

Morgunblaðið - 22.01.2006, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 59 Verkfæri Milwaukee V28 volt. Meiri orka - Lengri keyrslutími. Iðnaðar- mannapakkar við allra hæfi. Verkfærasalan ehf., Síðumúla 11, sími 568 6899, fax 568 6893, net- fang vfs@vfs.is. Bátar STK-tæki. Erum kaupendur að notuðum STK-tækjum. Vinsam- lega hafið samband í síma 565 2680. Bátaland ehf. www.bata- land.is, Óseyrarbraut 2, Hafnar- firði. Bílar Toyota Yaris árg. '02. Til sölu Yaris. Silfurgrár, álfelgur, cd player, samlitir stuðarar o.fl. Ek- inn 61 þ. km. Einstaklega spar- neytinn risa smábíll. Verð 890 þús. Uppl. Pétur s. 893 2523. Til sölu Explorer XLT árg. 1991. Leður, topplúga, á nýlegum 35", breyttur f. 38", ekinn 96.000 mílur, aukatankur, CB, loftdæla, lækkað drif, loftsplittanir o.fl. Upplýsingar í síma 824 2050. Land Cruiser 90 VX bensín, breyttur 35. Árg. '03. Ek. 65 þ. km. 250hp, loftdæla, 2 bensínt., sum- ar- og vetrard. á felgum, dráttar- beisli framan og aftan+rafm. Verð 4.900.000. Bein sala, engin skipti. Sími 863 7499. Frábær fjallabíll. Toyota LC90GX, alger gullmoli, mikið breyttur og mikið bættur. Árg. 1997, ek. 220 þ. en 100 þ. á vél. Verð 2,4 m. Nánari uppl. í síma 895 9990. Jeppar Ford Escape Ltd. árg. 2005. Silf- urgrár, ek. 23 þús. km. Sumar- og vetrardekk. Viðbót við staðalbún- að er lúxuspakki, dráttarbeisli, glertopplúga og bakkskynjari. Verð 2.950.000. Upplýsingar í síma 896 2362. Bílaþjónusta Kringlubón, Kringlan 8 (beygt inn hjá stóra og litla turni). Tökum að okkur þvott, bón, alþrif, möss- un og djúphreinsun. Bónaðu bílinn meðan þú verslar í Kringlunni. Tímapantanir, s. 534 2455. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla akstursmat. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason BMW 116i, nýr, 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat, '05 892 4449/557 2940. Vagn Gunnarsson Mersedes Benz, 894 5200/565 2877. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza, 696 0042/566 6442. Fellihýsi Óska eftir notuðu fellihýsi. Óska eftir notuðu fellýsi, helst 8 feta, vel með förnu, ekki eldra en '97. Uppl. sendar með síma og mynd, helst á habrekka@hotmail.com og í síma 899 2407. Mótorhjól Frábær léttfjórhjól á léttverði. 150 þ. + vsk. Hjólin eru ný 150cc 9 hp (7kw) 5 gíra og einnig til sjálfskipt. Viðgerðarþjónusta. Sjá Haninn.is, Búvélaverkstæðið Holti, sími 435 6662. Varahlutir JEPPAPARTAR EHF., Tangarhöfða 2, sími 587 5058 Nýlega rifnir Patrol '91-95, Terr- ano II '99, Subaru Legacy '90-'04, Impreza '97-04, Kia Sportage '03 og fleiri japanskir jeppar. Þjónustuauglýsingar 5691100 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Smáauglýsingar sími 569 1100 FRÉTTIR EFTIRFARANDI yfirlýsing sam- vinnuhóps margra kristinna trúar- samfélaga vegna stjórnarfrum- varps um málefni samkynhneigðra verður send Alþingi, segir í frétta- tilkynningu sem borist hefur blaðinu. Yfirlýsingin fer hér á eftir: Við undirrituð lýsum eindregn- um stuðningi við biskup Íslands, þegar hann segir að hjónaband sé sáttmáli milli eins karls og einnar konu, og teljum að nú beri að standa vörð um hina upprunalegu fjölskyldumynd og velferð fjöl- skyldna og barna í íslensku sam- félagi. Um leið hörmum við það fráhvarf frá kristnum siðferðisgild- um sem ríkisstjórn Íslands sýnir með frumvarpi til laga um rétt- arstöðu samkynhneigðra. Frá því að þjóðin gerðist kristin, hefur hún haft fyrrnefnd siðferðisgildi sem grundvallarviðmiðun í löggjöf landsins. Að lögleiða aðra skipan er fráhvarf frá skýru og kláru boði Heilagrar ritningar og í andstöðu við siðfræði kristinnar kirkju í heild sinni. Með tilvísun til þeirra greina frumvarpsins sem fjalla um ætt- leiðingar barna til para í staðfestri samvist og tæknifrjóvgun hjá kon- um í staðfestri samvist, þá teljum við í ljósi kristinnar grundvallaraf- stöðu okkar hvort tveggja vera frá- leitt. Við teljum að réttur barna sé skertur með nefndu frumvarpi og samband barns við föður og móður ekki virt. Við minnum á að sam- kvæmt upphafsgrein Barnalag- anna, nr. 76/2003, á barn rétt á að þekkja báða foreldra sína. Breytingartillögu við frumvarp- ið, sem felur í sér heimild forstöðu- manna trúfélaga til hjúskapar- vígslu tveggja einstaklinga af sama kyni, teljum við fráleita og höfnum henni alfarið. Rök okkar eru þau sömu og áður: Hin boðaða löggjöf fer þvert gegn kristinni kenningu um hjónabandið og samband for- eldra og barns. Þau trúfélög og trúarhópar sem standa að þessu (og gera það í heild) eru: Hvítasunnukirkjan Fíla- delfía, Reykjavík, Hvítasunnukirkj- an í Keflavík, Hvítasunnukirkjan á Akureyri, Hvítasunnukirkjan Bet- el, Vestmannaeyjum, Hvítasunnu- kirkjan Salem, Ísafirði, Hvíta- sunnukirkjan Selfossi, Hvítasunnu- kirkjan Kirkjulækjarkoti, Íslenska Kristskirkjan, Grafarvogi, Frí- kirkjan Kefas, Krossinn í Kópa- vogi, Fríkirkjan Vegurinn, Bet- anía, kristið samfélag, Hjálpræðis- herinn á Íslandi, Sjónarhæðar- söfnuður, Akureyri, Akurinn, kristið samfélag, Kópavogi, Sam- félag trúaðra, Reykjavík, Sam- félagið Hörgshlíð 12, Vinyard, kristið samfélag, Reykjavík, Að- ventkirkjan á Íslandi, Rússneska rétttrúnaðarkirkjan: Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins í Reykjavík (Ísland – prestur Timur Zolot- uskiy). Og þar að auki einstaklingar í (öðrum) trúfélögum: Anton Ingi- marsson verslunarstjóri, dr. Arn- grímur Jónsson fyrrv. sóknar- prestur, Eva S. Einarsdóttir ljósmóðir í Kópavogi, Flóki Krist- insson sóknarprestur á Hvanneyri, Guðlaugur L. Aðalsteinsson og k.h. Kolbrún B. Jónsdóttir, Guðmundur Óli Ólafsson fyrrv. prófastur í Skálholti, Guðmundur Pálsson sér- fræðingur í heimilislækningum, Gústaf Níelsson sagnfræðingur í Reykjavík, og k.h. Bergþóra Sig- urbjörnsdóttir forstjóri, Halldór S. Gröndal fyrrv. sóknarprestur, Jak- ob Rolland kanslari kaþólsku kirkj- unnar, Jón Oddgeir Guðmundsson, Akureyri, Jón Valur Jensson guð- fræðingur í Reykjavík, Jón Rafn Jóhannsson OCDS, Laufey Jens- dóttir húsmóðir, Lilja Kristjáns- dóttir húsmóðir, fyrrv. kennari, dr. Loftur R. Gissurarson, gæðastjóri OR, Mosfellsbæ, Patrick Breen sóknarprestur kaþólskra á Akur- eyri. Yfirlýsing til stuðnings biskupi RAFIÐNAÐARSAMBAND Íslands (RSÍ), Samiðn og Starfsgreinasam- band Íslands (SGS) hafa gert með sér samkomulag um samstarf í þeim tilgangi að styðja við uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar í Eystra- saltslöndunum og er þetta liður í stuðningi Norrænu verkalýðshreyf- ingarinnar við uppbygginguna þar. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem félögin efndu til. Fram kom að íslenska verkalýðs- hreyfingin hefur skuldbundið sig til að leggja sitt af mörkum, einkum í matvæla-, bygginga-, efna-, málm- og almennum iðnaði, en áætlað er að hátt í fjögur þúsund íbúar Eystra- saltslandanna vinni hjá íslenskum fyrirtækjum í fyrrgreindum iðnaði. Kynna kjarasamninga og norrænt vinnuumhverfi Í máli Skúla Thoroddsen, fram- kvæmdastjóra SGS, sem ásamt Guð- mundi Gunnarssyni, formanni RSÍ, og Þorbirni Guðmundssyni, fram- kvæmdastjóra Samiðnar, skipar samráðshópinn sem hefur yfirum- sjón með verkefninu, kom fram að í samkomulaginu felst að fulltrúar ís- lensku verkalýðsfélaganna munu m.a. heimsækja og halda fundi um verkefnið með forráðamönnum þeirra íslensku fyrirtækja sem hasl- að hafa sér völl í Eystrasaltslöndun- um. Einnig verður fundað með starfsmönnum íslensku fyrirtækj- anna sem starfrækt eru í Eystra- saltslöndunum og þeim kynnt grund- vallaratriði kjarasamninga og vinnuumhverfis á jafnt Íslandi sem og hinum Norðurlöndunum. Ís- lensku félögin munu beita sér fyrir því að gerðir verði kjarasamningar við starfsmenn viðkomandi fyrir- tækja og að verkalýðsfélög verði við- urkennd sem samningsaðilar fyrir starfsfólk fyrirtækjanna sem og að starfsmenn verði félagar verkalýðs- félaga. Jafnframt verður lögð áhersla á að styrkja færnisþróun, sí- menntun og tengslanet. Mikilvægt að endurheimta traust almennings „Með þessu erum við að leggja okkar sameiginlega lóð á vogarskál- ar hinnar norrænu hreyfingar og ætlum að stuðla að þeirri jákvæðu þróun þar sem komið verður á þetta mikilvæga samspil sem við köllum hornsteina hér á íslenskum vinnu- markaði, þar sem takast á annars vegar sterk launþegahreyfing og hins vegar sterk hreyfingu atvinnu- rekenda með aðkomu ríkisvaldsins með það að markmiði að þróa vel- ferðarsamfélagið. Þannig að þetta fjallar í raun um þróun Evrópu á næstu árum og áratugum,“ sagði Skúli. Benti hann á að eftir fall Sovétríkj- anna hefði verkalýðshreyfingin í mörgum fyrrum Austur-Evrópuríkj- um nánast verið í lamasessi og í Eystrasaltsríkjunum væri aðeins um 7–15% almenn þátttaka verkalýðs- hreyfingunni. Sagði hann mikilvægt að endurheimta traust almennings á verkalýðshreyfingunni sem þyrfti að taka að sér æ mikilvægara hlutverk í því að standa vörð um réttindi fólks á vinnumarkaði. „Sökum þessa er gífurlega mikil- vægt að við komum okkar þekkingu á framfæri til launþega í þessum löndum á nákvæmlega sama hátt og fyrirtækin eru að koma sinni þekk- ingu um markaðssetningu og rekst- ur fyrirtækja inn í þessi lönd. Þannig að útrás fyrirtækjanna fylgi okkar útrás í leiðinni,“ sagði Skúli og tók fram að íslenska verkalýðshreyfing- in hefði þegar átt góðar viðræður við íslenska atvinnurekendur um að þróa íslenska velferðarkerfið. „Og af hverju skyldum við ekki líka geta gert það í þessum löndum, þar sem félagslega velferðarkerfið er í mol- um sem stendur.“ Þorbjörn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samiðnar, tók undir þessi orð Skúla og bætti við: „Við teljum mikilvægt að þau íslensku fyrirtæki sem hasla sér völl í Eystra- saltslöndunum geri það á jákvæðum forsendum, þ.e. ætli sér að vera þarna áfram í þessari uppbyggingu en ekki bara að koma inn á löndin með starfsemi sína meðan launin eru svona lág eins og raun ber vitni.“ „Snýst um þróun Evrópu til frambúðar“ Samkomulag um stuðning við uppbyggingu verkalýðs- hreyfingar í Eystrasaltslöndunum Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is SÍÐASTLIÐNA helgi var opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi sýning Gabríelu Friðriksdóttur, Versations / Tetralógía, að við- stöddu miklu fjölmenni. Í dag, sunnu- daginn 22. janúar, kl. 15 mun Gabr- íela fara um sýningu sína og segja gestum frá verkinu og ferli sínum. Verkið sýndi Gabríela fyrst í ís- lenska skálanum sem fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum síðastliðið sumar. Sýningin stendur til 26. febr- úar. Listamanns- spjall Gabríelu Morgunblaðið/Ómar Úr Feneyjaverki Gabríelu. KVENRÉTTINDAFÉLAG Íslands, KRFÍ, heldur sína árlegu jan- úarráðstefnu, föstudaginn 27. jan- úar, í Tjarnarsal Ráðhúss Reykja- víkur. Ráðstefnan hefst kl. 14 og stendur til 16 og er öllum opin. Boð- ið er upp á veitingar fyrir ráð- stefnugesti. Á ráðstefnunni verður fjallað um goðsagnir tengdar kvenhlutverk- inu og birtingarmyndir þeirra mið- að við mismunandi stöðu konunnar í þjóðlífinu. M.a. verður fjallað um goðsögn konunnar í viðskiptalífinu, fjallað um kynlífsgervingu á konum og hvernig það hafi áhrif á ofbeldi gagnvart konum. Þá verður fjallað um ímynd jafnréttisins og vinnu- markaðinn út frá staðalímyndum. Ráðstefna KRFÍ um jafnréttismál

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.