Morgunblaðið - 22.01.2006, Qupperneq 68
68 SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Golden Globe-hátíðin varhaldin í vikunni í Holly-wood í 63. skiptið en þar
verðlauna erlendir blaðamenn og
kvikmyndaspekúlantar þær kvik-
myndir og sjónvarpsþætti sem að
þeirra mati hafa staðið upp úr á
árinu. Hátíðin hefur oft þótt gefa
góðar vísbendingar um árangur
kvikmynda á Óskarsverðlaunahá-
tíðinni sem fram fer eftir rúman
mánuð en Óskarinn telst enn vera
áhrifamesta verðlaunahátíð heims
á sviði kvikmynda
Þar sem Golden Globe tekur
bæði til kvikmynda og sjónvarps
hefur hátíðin ávallt verið setin
fleiri stjörnum en Óskarinn. Á
henni er ennfremur borðhald þar
sem boðið er upp á mat og léttvín
og það hefur í gegnum árin skapað
frjálslega stemningu í kringum
verðlaunahátíðina. Harrison Ford
rétti til að mynda aðstoðarmanni
sínum á sviðinu hvítvínsglasið sitt
áður en hann opnaði umslagið sem
geymdi nafn verðlaunahafans –
eitthvað sem mun seint sjást á Ósk-
arnum.
En þrátt fyrir þetta afslappaðaandrúmsloft á hátíðinni var
alvarlegri umræða í gangi bak-
sviðs og við borðhaldið, þ.e.a.s. ef
eitthvað er að marka frásagnir er-
lendra fjölmiðla. Í stað hinnar
hefðbundnu Hollywood-umræðu
um kjólasídd og bindishnúta, sner-
ust umræðuefnin að þessu sinni um
fordóma í garð samkynhneigðra,
hlutverk kvikmynda í þjóðfélags-
umræðunni og það hvort að leið-
togi hins frjálsa heims ætti skilið
að verða ákærður fyrir embættis-
glöp í starfi.
Í fyrstu hljómar svona frásögn
af þjóðfélagslegri vitund ríka og
fræga fólksins í Hollywood eins og
nútímaútgáfa af næmum félags-
skilningi Maríu Antoinette en þeg-
ar kvikmyndalandslagið í Banda-
ríkjunum er skoðað af alvöru og í
ljósi þeirra kvikmynda sem verð-
launaðar voru, er ekki hægt að
neita því að bæði pólitísk og fé-
lagsleg vakning virðist vera að
eiga sér stað í Hollywood.
Tveir karlkyns kúrekar fellahugi saman á fjallinu Broke-
back í Wyoming-ríki, er söguþráð-
ur kvikmyndarinnar sem hlaut
flest verðlaun á Golden Globe í ár.
Kvikmyndin hefur vakið miklar
deilur í Bandaríkjunum, sér í lagi í
mormónafylkinu Utah, þar sem
mörg kvikmyndahús neituðu að
taka myndina til sýningar. Önnur
verðlaunamynd sem fjallar um
samkynhneigð að miklu leyti, var
Capote sem er byggð á ævi hins lit-
ríka og samkynhneigða rithöf-
undar Truman Capote og ef þessar
tvær voru ekki nægar til að hrikta
í stoðum hinna íhaldssömu Banda-
ríkja þá var aðalleikkona Trans-
america, Felicity Huffman, verð-
launuð fyrir bestan leik í aðal-
hlutverki í kvikmynd sem fjallar
um afleiðingar kynskiptiaðgerðar.
(Óneitanlega sérstakt hafandi það í
huga að stærsta myndin árið á
undan fjallaði um Hobbitana Fróða
og Sám sem leitast við að kasta
töfrahring ofan í iður eldfjalls í
landinu Mordor.)
En það voru líka hápólitískarmyndir sem hlutu náð fyrir
augum hinnar 84 sæta dómnefndar
erlendra blaðamanna. George
Clooney fékk verðlaun fyrir bestan
leik í aukahlutverki í myndinni
Syriana sem tekur meðal annars á
pólitískri spillingu, olíuiðnaðinum
og bandarísku leyniþjónustunni og
Clooney var þar að auki tilnefndur
fyrir mynd sína Good Night, and
Good Luck sem fjallar um pólitísk
endalok öldungadeildarþingmanns-
ins Joseph McCarthy sem ofsótti
pólitíska andstæðinga sína á sjötta
áratug seinustu aldar. Leikkonan
Rachel Weiss fékk síðan verðlaun
fyrir bestan leik í aukahlutverki í
kvikmyndinni Constant Gardener
en sú mynd deilir á óforskamm-
aðar viðskiptaaðferðir lyfjafyrir-
tækja í alþjóðavæddum heimi.
(Annar áhugaverður punktur í
þessu samhengi er að King Kong,
nýjasta mynd Peters Jackson, hins
sama og leikstýrði Hringadrótt-
inssögu, var meira eða minna
hunsuð af dómnefndinni.)
Hvort að þessi tiltekna GoldenGlobe-hátíð í ár sé vísbending
um að bitur raunveruleikinn sé að
ýta ævintýraheiminum út af borð-
inu í Hollywood, verður tíminn að
leiða í ljós. Hafa verður í huga að
myndirnar sem verðlaunaðar voru
í vikunni gefa okkur í raun og veru
aðeins innsýn í kvikmyndaiðnaðinn
eins og hann leit út fyrir 18 mán-
uðum eða svo, þegar framleiðslan
á myndunum hófst. Það verður
samt sem áður að teljast ákveðin
yfirlýsing hjá hinni siðvöndu Aka-
demíu© að grínarinn Jon Stewart
sem haldið hefur úti pólitískum
ádeiluþætti í bandarísku sjónvarpi
undanfarin ár, hafi verið valinn til
að kynna 77. Óskarshátíðina sem
fram fer hinn 5. mars næstkom-
andi.
„Leyfið þeim að
borða … popp!“
’[Í því ljósi …] er ekkihægt að neita því að
bæði pólitísk og fé-
lagsleg vakning virðist
vera að eiga sér stað í
Hollywood.‘
AF LISTUM
Höskuldur Ólafsson
Reuters
George Clooney í hlutverki sínu í kvikmyndinni Syriana.
hoskuldur@mbl.is
Heath Ledger og Jake Gyllenhaal leika kúrekana í Brokeback Mountain.
Philip Seymor Hoffman í hlutverki Truman Capote.
FYRSTA SÝNING: FÖSTUDAGINN 27. JANÚAR,VERIÐ AÐ SELJA ÓSÓTTAR PANTANIR
ÖNNUR SÝNING: LAUGARDAGINN 28. JANÚAR, ÖRFÁ SÆTI LAUS
5 DAGAR Í
THE SHNEEDLES!
20% afsláttur til allra með GSM númer hjá Símanum.
Jólagjöfin í ár er að gráta af hlátri 27. janúar
Þett'er
SHNIIIILLD!