Morgunblaðið - 22.01.2006, Side 70
70 SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Vinsældir eru sjaldnastkeppikefli hljómsveita, þóþær séu vitanlega mik-ilvægar að einhverju
marki ef menn ætla að lifa af tónlist.
Miklar vinsældir geta verið mikill
kostur og þær geta líka verið bölvun
eins og sannaðist á bandaríska
tríóinu Nada Surf sem sló í gegn
með laginu „Popular“ fyrir níu árum
eða þar um bil. Í kjölfarið lenti
sveitin í glímu við plötufyrirtæki sitt
sem vildi meira af því sama og fjöldi
tónlistaráhugamanna sneri baki við
sveitinni fyrir það helst að hafa sleg-
ið í gegn. Árunum sem liðin eru síð-
an hefur sveitin svo eytt í að byggja
sig upp aftur, sanna sig ef svo má
segja, og tók reyndar stórt skref í
þá átt á síðasta ári með ágætis
plötu, The Weight is a Gift.
Þeir félagarnir Matthew Caws,
sem leikur á gítar og syngur, og
Daniel Lorca, sem leikur á bassa,
kynntust í miðskóla í New York,
báðir miklir tónlistaráhugamenn og
snemma farnir að spila saman, ým-
ist bara tveir eða með öðrum. Þeir
stofnuðu tríóið Because Because
Because og síðar fékk nafnið Nada
Surf. Undir því nafni sendi sveitin
frá sér smáskífu 1993 og komst á
samning. Um líkt leyti gekk til liðs
við hana trymbillinn Ira Elliot, sem
var í þeirri rómuðu sveit Fuzztones.
Áður en þeir þremenningar náðu
að ljúka við breiðskífuna gaf útgáfan
sem samdi við þá upp öndina og þeir
stóðu uppi samningslausir. Ric
Ocasek, sem frægur er fyrir spila-
mennsku í Cars og upptökustjórn á
svo ólíkum sveitum sem Bad Relig-
ion, Guided By Voices, Hole, Jon-
athan Richman og Weezer, heyrði
upptökurnar og tók sveitina að sér.
Elektra gaf síðan út fyrstu breið-
skífuna sem Ocasek vélaði um, og
sú, High/Low, sló rækilega í gegn.
Í kjölfarið fylgdu dagar víns og
rósa, spilamennska og stjörnustæl-
ar, en síðan var haldið í hljóðver að
taka upp nýja plötu. Þegar þar var
komið sögu var áhugi aftur á móti
með minna móti innan Elektra;
menn þar á bæ þóttust sjá teikn á
lofti um að tónlist á við þá sem Nada
Surf léki væri búin að syngja sitt
síðasta. Þeir tregðuðust því við að
gefa plötuna út í þeirri mynd sem
sveitin skilaði henni og lögðu hart að
þeim félögum að poppa hana upp og
helst kasta dótinu og taka upp nýja
grípandi létta skífu. Nada Surf-
menn þráuðust við og fyrir vikið
sátu upptökurnar fastar ofaní skúffu
hjá Elektra um hríð, en komu svo út
á plötunni The Proximty Effect. Sú
þótti ekki vel heppnuð og hefur ekki
elst vel. Plötunni var að vonum ekki
vel tekið og flestir gerðu því skóna
að Nada Surf væri búin að vera.
Annað kom á daginn.
Evrópa bjargar málunum
Þeir Nada Surf félagar höfðu ver-
ið venju fremur iðnir við tónleika-
hald í ýmsum Evrópulöndum og
náðu að byggja þar upp traustan
áheyrendahóp sem brást þeim ekki.
Þannig gat sveitin ferðast um álfuna
og spilað eins og hana lysti og plötur
hennar seldust alla jafna betur þar
en á heimaslóðum. Þetta gaf þeim
Nada Surf-þremenningum nennu til
að halda áfram og fjórum árum síð-
ar, 2003, kom út platan Let Go sem
var, öllum að óvörum, hreinasta af-
bragð.
Getur nærri að Let Go hafi stapp-
að stálinu í aðdáendur sveitarinnar
víða í Evrópu og meira að segja
tóku ýmsir Ameríkanar að sperra
eyrun. Seint á síðasta ári kom svo út
fjórða stóra plata Nada Surf, The
Weight Is a Gift. Þeirri plötu hefur
ekki verið síður tekið en Let Go og á
það svo sem skilið því hún er betri
um margt. Einn af lyklunum að því
er sjálfsagt að hún var hljóðrituð í
hljóðveri John Vanderslice, sem er
með hæfileikamestu mönnum sem
plötur hans sanna (heyr til að
mynda Pixel Revolt frá síðasta ári).
Annar sem lagði hönd á plóginn er
Christopher Walla úr þeirri mætu
sveit Death Cab for Cutie, sem
skýrir væntanlega samhljóminn
með sveitunum í sumum laganna.
The Weight is a Gift er einskonar
framhald Let Go, en tónlistin öllu
meitlaðri en forðum, útsetningar
tærari og minna um tildur. Það
skrifa þeir félagar á það að þeir
hljóðrituðu megið af plötunni vestur
í San Francisco, en sjálfir eru þeir
búsettir austur í New York. Fyrir
vikið gátu þeir einbeitt sér að tón-
listinni, en þeir tóku sér líka hálfs ár
frí frá plötunni er upptökum var
lokið áður en haldið var aftur vestur
til að hljóðblanda og gera frum-
eintak.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Nada Surf
snýr aftur
Nada Surf skaut upp á stjörnuhimininn fyrir ára-
tug og hvarf síðan sjónum manna um hríð. Sveitin
hélt þó velli og sendi fyrir skemmstu frá sér fram-
úrskarandi skífu.
Seint á síðasta ári kom svo út fjórða stóra plata Nada Surf, The Weight Is a Gift. Þeirri plötu hefur ekki verið síður tekið
en Let Go og á það svo sem skilið því hún er betri um margt.
VELJIÐ HÉR AÐ NEÐAN KVIKMYNDAHÚS OG SÝNINGARTÍMA SEM****
THE
FOG
Stranglega bönnuð
innan 16 ára
eeee
Ó.Ö.H. / DV
A.G. / BLAÐIÐ
eee
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
eeee
“…mikið og skem-
mtilegt sjónarspil...”
H.J. / MBL
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
Þegar þokan skellur á…er enginn óhultur!
Mögnuð
hrollvekja
sem fær
hárin til
að rísa!
4Golden Globe verðlaun m.a. besta mynd, besti leikstjóri
og besta handrit
eeee
MMJ Kvikmyndir.com
„... ástarsaga eins og
þær gerast bestar -
hreinskilin, margbrotin
og tilfinningarík...“
eeeee
L.I.B. - Topp5.is
„…langbesta mynd Ang
Lee til þessa og sennilega
besta mynd sem gerð var á
síðasta ári.“
eeeee
S.K. - DV
„Mannbætandi Gullmoli“
„…Mynd sem þú verður
að sjá [...] Magnþrungið
listaverk sem mun fylgja
áhorfandanum um ókomin ár“
eeeee
S.V. MBL
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
STÓRKOSTLEG SAGA UM ÁSTIR OG ÁTÖK
BYGGÐ Á HINNI ÓGLEYMANLEGU
METSÖLUBÓK EFTIR ARTHUR GOLDEN
2GOLDEN GLOBE TILNEFNINGARBESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI: ZIYI ZHANGBESTA KVIKMYNDATÓNLIST: JOHN WILLIAMS
FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNA-
LEIKSTJÓRA "CHICAGO"
BESTA TÓNLISTIN,
JOHN WILLIAMS
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUN
N ý t t í b í ó
THE FOG kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 2, 5, 8 og 10.45 B.I. 12 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN Í LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 10.45
MEMOIRS OF A GEISHA kl. 5 og 10
CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 2, 4, og 6
HOSTEL kl. 8 og 10.10 B.I. 16 ÁRA
LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6, og 8 B.I. 14 ÁRA
DRAUMALANDIÐ kl. 2 og 4
BROTHERS GRIMM kl. 2 B.I. 12 ÁRA
THE FOG kl. 8 B.I. 16 ÁRA
HOSTEL kl. 10 B.I. 16 ÁRA
CHEAPER BY THE DOZEN 2 kl. 2, 4, 6 og 8
JUST FRIENDS kl. 4
DRAUMALANDIÐ kl. 2 ÍSL. TAL
Epískt meist