Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 74
Stóra svið
SALKA VALKA
Fi 16/2 kl. 20 SÍÐASTA SÝNING!
WOYZECK
AUKASÝNINGAR
Í kvöld kl. 20 Fö 17/2 kl. 20
Lau 18/2 kl. 20
KALLI Á ÞAKINU
AUKASÝNINGAR UM PÁSKANA!
CARMEN
Su 19/2 kl. 20 Lau 25/2 kl. 20 UPPS.
Fö 3/3 kl. 20 Lau 4/3 kl. 20
Lau 11/3 kl. 20 Lau 18/3 kl. 20
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Í dag kl. 14 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 18/2 kl. 14 UPPSELT Su 19/2 kl. 14
Su 26/2 kl. 14 UPPS. Su 26/2 kl. 17: 30
Lau 4/3 kl. 14 Su 5/3 kl. 14
Lau 11/3 kl. 14 Su 12/3 kl. 14
Nýja svið / Litla svið
MANNTAFL
Mi 22/2 kl. 20 AUKASÝNING
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 16/2 kl. 20 UPPS. Fö 17/2 kl. 20 UPPS.
Lau 25/2 kl. 20 UPPS. Su 26/2 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Lau 18/2 kl. 20 UPPS. Su 19/2 kl. 20 UPPS.
Fi 23/2 kl. 20 Fö 24/2 kl. 20
Lau 4/3 kl. 20 Su 5/3 kl. 20
Fö 10/3 kl. 20 Su 12/3 kl. 20
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
Í kvöld kl. 20 Mi 1/3 kl. 20
NAGLINN
Í kvöld kl. 20 Su 19/2 kl. 20 UPPS.
Fö 24/2 kl. 40 Lau 25/2 kl. 20
HUNGUR
FORSÝNINGAR, MIÐAV. 1.200- Kr.
Má 13/2 kl. 20 Mi 15/2 kl. 20 UPPSELT
Fi 16/2 kl. 20 Fö 17/2 kl. 17
Lau 18/2 FRUMSÝNING UPPSELT
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200
MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17
W.LEIKFELAWW G.IS
ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS
Fullkomið brúðkaup
Fös. 17. feb kl. 19 AUKASÝNING - Laus sæti
Fös. 17. feb kl. 22 AUKAS. - Örfá sæti laus
Lau. 18. feb kl. 20 UPPSELT
Lau. 18. feb kl. 22 Öfrá sæti - Síðasta sýning!
Miðasala opin allan sólarhringinn á netinu.
Maríubjallan
Mið. 15. feb. kl. 20 FORSÝNING - UPPSELT
Fim. 16. feb. kl. 20 FRUMSÝNING - UPPSELT
Sun. 19. feb. kl. 20 2.kortas - UPPSELT
Fim. 23. feb kl. 20 3.kortas - UPPSELT
Fös. 24. feb. kl. 19 4.kortas
Lau. 25. feb. kl. 19 5.kortas - UPPSELT
Lau. 25. feb. kl. 22 AUKASÝNING - Laus sæti
Fim. 2. mars kl. 20 6.kortas
Fös. 3. mars kl. 19 7.kortas - UPPSELT
Lau. 4. mars kl. 19 8.kortas - UPPSELT
Lau. 4. mars kl. 22 AUKASÝNING - Laus sæti3
10/3, 11/3, 17/3, 18/3
FÖS. 17. FEB. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS
FIM. 23. FEB. kl. 20
FÖS. 3. MAR. kl. 20
MIND CAMP
eftir Jón Atla Jónasson
SUN. 12. FEB.
SUN. 19. FEB.
SÍÐUSTU SÝNINGAR
EF
eftir Valgeir Skagfjörð/
Einar Má Guðmundsson
VESTMANNAEYJAR
ÞRI. 21. FEB KL. 9 - UPPSELT
KL. 11 - UPPSELT
KL. 13 - UPPSELT
Námsmenn og vörðufélagar frá miðann
á 1000 kr. í boði Landsbankans
TAKMARKAÐUR SÝNINGARFJÖLDI
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
ÖSKUBUSKA - La Cenerentola eftir ROSSINI
3. sýn. sun. 12. feb. kl. 20 - NOKKUR SÆTI LAUS
4. sýn. sun. 19. feb. kl. 20 - 5. sýn. fös. 24. feb. kl. 20
6. sýn. sun. 26. feb. kl. 20- 7. sýn. 3. fös. 3. mars kl 20
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
KYNNING FYRIR SÝNINGU - KL. 19.15
Kynning á verkinu og uppsetningu þess er í boði Vinafélags Íslensku óperunnar.
Kynningin hefst kl.19.15 og er innifalin í miðaverði.
„Á meðan jafn vel tekst til og á þessu
kvöldi þarf vart að hafa áhyggjur
af framtíð Ízlensku óperunnar”
Ríkharður Örn Pálsson, Morgunblaðinu
Sýnt á NASA við Austurvöll
Föstudagur 17. febrúar Sæti laus
Föstudagur 24. febrúar Sæti laus
Laugardagur 25. febrúar Sæti laus
Húsið opnar kl. 20:00 - Sýningar hefjast kl. 20:30
Miðasala í verslunum Skífunnar,
www.midi.is og í síma: 575 1550
Norræna húsið, kl. 14
Ný verk eftir Lars Graugaard fyrir einleikshljóðfæri og
gagnvirka tölvu.
Kolbeinn Bjarnason leikur á flautu, Guðni Franzson á
klarinettu, Eydís Franzdóttir á óbó og Lars Graugaard á
tölvu.
Lars Graugaard er tónskáld, flautuleikari og fyrirles-
ari. Eftir hann liggja meira en 150 tónsmíðar af öllum teg-
undum sem eru reglulega fluttar víða um heim. Gefnir
hafa verið út meira en 40 geisladiskar með honum sem
tónskáldi eða flautuleikara.
Ýmir, kl. 16
Sembaltónleikar.
Guðrún Óskarsdóttir leikur verk eftir Svein Lúðvík
Björnsson, Axel Borup-Jörgensen, Dan Locklair, Úlfar
Inga Haraldsson og Leif Þórarinsson. Kolbeinn Bjarna-
son leikur með henni á flautu.
Ýmir, kl. 20
Kammersveit Reykjavíkur undir stjórn Bernharðar Wilk-
insonar leikur verk eftir Karólínu Eiríksdóttur, Atla
Heimi Sveinsson og Leif Þórarinsson. Þá verður frum-
flutt nýtt verk, Hræddur í fótunum, eftir Þuríði Jóns-
dóttur, og loks óbókonsertinn Cantus eftir John Speight.
Einleikari er Daði Kolbeinsson.
John Speight segir að nýi óbókonsertinn sé mjög ljóð-
rænn. Verkið er í einum þætti, – tvískiptum þó. Hann seg-
ir konsertinn líkan eldra konsertformi að því leyti að óbóið
fái að njóta sín eitt. „Fyrir tíu, fimmtán árum komu upp
þær hugmyndir að það þyrfti ekkert endilega að heyrast
svo mikið í einleikaranum í einleikskonsertum. Það voru
allir að spila allan tímann. Þá heyrði maður kannski ekk-
ert í frábærum fiðluleikara sem var að spila, því allt var
jafnt. Þetta finnst mér þreytandi, og ég ákvað að fara aft-
ur í gamla stílinn og leyfa einleikshljóðfærinu að syngja.“
Fyrir nokkrum árum lék Daði Kolbeinsson einleik á
óbó í verki Johns Speights, Sam’s Mass. „Ég var svo hrif-
inn af spilamennskunni hjá honum og fann að hann fílaði
tónlistina. Nú er ég búinn að fara á æfingar hjá Kamm-
ersveitinni, og það sama er upp á teningnum nú. Það þarf
ekki að segja neitt við Daða, hann skynjar þetta allt strax,
og súpergott að vinna með honum.“
Cantus þýðir söngur og John Speight segir að konsert-
inn sé eins konar sönglag fyrir óbóið. „Mér finnst óbóið
mjög lýrískt hljóðfæri. Daði fær langar laglínur að spila –
en er af og til truflaður af kammerhópnum sem spilar með
– hann vill fara svolítið aðrar leiðir. Allt fellur það saman
að lokum.“
John Speight segir erfitt að svara spurningunni um
hvernig nýja verkið standi gagnvart eldri verkum. „Mað-
ur er svo nátengdur nýju verki, að það er erfitt að segja til
um það. En vonandi er jöfn þróun í verkunum mínum. Ég
hef alla vega ekki enn þurft að kasta neinu frá mér sem ég
hef gert.“
Óbóið fær að syngja
Morgunblaðið/Ómar
John Speight fylgist með æfingum á nýja óbókonsert-
inum, sem Daði Kolbeinsson og Kammersveit Reykja-
víkur frumflytja í kvöld.
Myrkir músíkdagar | Tölvur, semball og kammermúsík í dag
Á DÖGUNUM greindi Morg-
unblaðið frá því, að sigur hefði unn-
ist í máli ættingja austurrískra gyð-
inga gegn austurríska ríkinu um
eignarhald á fimm málverkum eftir
Gustav Klimt. Samanlagt virði mál-
verkanna er talið um 9,3 milljarðar
króna.
Nú hefur austurrískur bókaútgef-
andi, Hubertus Czermin, hvatt 5
milljónir Austurríkismanna – 60%
þjóðarinnar – til að gefa 20 evrur til
söfnunar fyrir málverkunum. Ef all-
ir tækju vel í hugmynd Czermin og
gæfu féð, myndu safnast tæplega 7,6
milljarðar króna og spurning hvort
það dygði til.
Málverkin sem um ræðir voru
gerð upptæk af nasistum í síðari
heimstyrjöldinni og héngu lengst af í
Belvadere-kastala í Austurríki. Erf-
inginn að þeim, Maria Altman, hefur
sagt að hún vilji heldur að þau verði
til sýnis á almannafæri í framtíðinni.
Safnað fyrir
nasistamálverkum
Reuters
Klimt-verk sem safna á fyrir.
74 SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGNIR mbl.is