Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 77
Sígandi lukka er best gætu einsverið einkennisorð Man-chester-sveitarinnar Elbow,enda tók það hana áratug að
koma frá sér fyrstu breiðskífunni.
Þeirri plötu var einkar vel tekið og
ekki er minni ánægja með þriðju
plötuna, Leaders of the Free World,
sem kom út sl. haust.
Næstum Manchester-sveit
Hljómsveitin, sem er ekki beinlínis
Manchester-sveit, ættuð frá Bury,
hefur verið býsna lengi að, en sextán
ár eru síðan Guy Garvey réðst sem
söngvari í hljómsveitina SOFT. Fyr-
ir í þeirri sveit voru gítarleikarinn
Mark Potter, trommuleikarinn Rich-
ard Jupp, hljómborðsleikarinn Craig
Potter og bassaleikarinn Pete Turn-
er.
Næstu árin héldu þeir saman,
æfðu reglulega og spiluðu öðru
hvoru á meðan nám og tilheyrandi
var afgreitt. 1997 lögðu þeir svo út í
alvöruna, þá nýlega fluttir aðeins
sunnar, þ.e. frá Bury og inn í Man-
chester. Þeir breyttu nafni sveit-
arinnar í Elbow og hófust handa við
að koma sér á framfæri. Það gekk
bærilega því þeir komust á samning
hjá Island-útgáfunni og bjart var
framundan, eða svo héldu þeir í það
minnsta.
Samningar á samninga ofan
Eftir undirritun samnings héldu
þeir félagar í hljóðver að taka upp
fyrstu breiðskífuna, en áður en sú
varð tilbúin var Island selt, Univers-
al keypti og fyrsta verk nýrra eig-
enda var að segja upp samningum
við alla þá listamenn sem ekki voru
þegar búnir að vinna sér nafn og
orðnir drjúgir við plötusölu. Elbow
var ein af þeim sveitum sem kastað
var og því var hún komin á byrj-
unarreit að nýju.
Þeir félagar létu þó ekki deigan
síga, héldu af stað með prufuupp-
tökur og voru fljótir að komast á
samning að nýju. Nú vildi EMI gefa
út með þeim plötu, eða lét líklega í
það minnsta. Það kom svo á daginn
þegar til átti að taka að útgáfuáhug-
inn var meira í orði en á borði og eftir
nokkurra mánaða þref voru Elbow-
menn aftur orðnir samningslausir.
Loksins kom plata
Það kemur væntanlega ekki á
óvart að þeir gáfust upp á stórfyr-
irtækjum í bili, en leituðu til lítils fyr-
irtækis, Uglyman, sem gaf út með
sveitinni tvær smáskífur, Newborn
og Any Day Now, en síðarnefnda
lagið fór hátt á vinsældalista breska
ríkisútvarpsins. Smáskífunum var
vel tekið, svo vel að aftur tóku stærri
fyrirtæki við sér, nú V2, sem er ekki
beinlínis stórfyrirtæki þó það eigi
sterka að, og loks tókst að koma út
breiðskífu með Elbow. Sumarið
2000, áratug frá því sveitin varð til,
kom út platan Asleep in the Back.
Asleep in the Back þótti mönnum
mikill gæðagripur, svo mikill reynd-
ar að platan var tilnefnd til Mercury-
verðlaunanna þó ekki hafi hún fengið
þau. Hún tapaði fyrir Stories from
the City, Stories from the Sea með
PJ Harvey (nema hvað!).
Tónleikaferð um Kúbu
Næsta plata, Cast of Thousands,
kom út tveimur árum síðar og fékk
betri dóma. Nokkur bið varð á þriðju
plötunni, meðal annars fyrir það að
sveitin fór í óopinbera tónleikaferð
um Kúbu 2004 og var hún að sögn
fyrst breskra sveita til að fá að leika
á tónleikum utan Havana. Vinna við
nýja skífu gat því ekki hafist fyrr en
haustið 2004, en lögin sömdu þeir fé-
lagar á ferð um heiminn með lítið
ferðahljóðver meðferðis til að taka
upp prufur.
Þeir félagar breyttu svo til þegar
kom að því að taka nýju plötuna upp,
þeir stýrðu upptökum sjálfir en köll-
uðu til sérfróða þegar kom að hljóð-
blöndun. Upptökurnar fóru svo
þannig fram að þeir leigðu mikinn sal
í hljóðveri í Manchester í hálft ár og
unnu síðan eftir því sem andinn blés
þeim í brjóst, eitthvað á hverjum
degi, en mislengi. Úr 40 hugmyndum
urðu 30 lög og 11 þeirra eru á plöt-
unni. Segja má að platan sé sam-
vinnuverkefni því þó inntak textanna
sé að öllu leyti komið frá Guy Garvey
er tónlistin, taktur, laglínur og allar
útsetningar sameiginlegt raðspil
sveitarinnar.
Þeir lýsa svo upptökunum á Lead-
ers of the Free World sem miklu æv-
intýri, þeir kunnu vel að meta frelsið
og sjálfræðið og gátu fylgst með árs-
tíðunum í gegnum risaglugga á
hljóðverinu. Þeir segja að platan sé
tekin upp á fjórum árstíðum – vinna
hófst um haustið, þá kom vetur, svo
vor og upptökum lauk í sumar-
byrjun.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Plata fjögurra
árstíða
Enska hljómsveitin Elbow á sér lengri lífaldur en gengur og
gerist í rokkinu, enda tók það sveitina áratug að koma frá
sér fyrstu plötunni. Þriðja platan, Leaders of the Free
World, kom út um daginn.
Manchestersveitin Elbow, sem er reyndar frá Bury.