Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
MIKIL mildi var að ekki fór verr þegar eld-
ur kviknaði í bifreið sem ekið var eftir
Reykjanesbraut í átt að Hafnarfirði í gær-
morgun. Málsatvik voru þau að bifreiðinni
var ekið á vegrið við Kúagerði og við það
rifnaði gat á bensíntank. Mikill eldur kvikn-
aði í kjölfarið en ökumanni og tveimur far-
þegum tókst að komast út úr bílnum áður
en illa fór. Ökumaður bílsins brenndist lít-
illega í andliti og á höndum og var fluttur á
slysadeild til aðhlynningar en farþegarnir
sluppu ómeiddir.
Að sögn lögreglunnar í Keflavík var bíll-
inn gjörónýtur og brunarústir einar á veg-
inum. Lögreglan segir að mun betur hafi
farið en efni stóðu til, því ekki munaði miklu
að bifreiðinni væri ekið fram af mislægum
gatnamótum í kjölfar þess að hún lenti á
vegriðinu. Ekki er hægt að rekja óhappið til
ölvunar en talið er að ökumaður hafi sofnað
undir stýri.
Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var
tilkynnt um eld í kyrrstæðum jeppa í Kópa-
vogi um klukkan hálffjögur í fyrrinótt og er
hann talinn mikið skemmdur. Að sögn
slökkviliðs eru eldsupptök enn óljós en ekki
er útilokað að um íkveikju hafi verið að
ræða. Eldurinn barst jafnframt í fólksbif-
reið er stóð rétt hjá jeppanum og skemmd-
ist hún einnig nokkuð. Bílarnir voru mann-
lausir þegar eldurinn kviknaði og engin slys
urðu á fólki.
Hætt komin
þegar eldur
kom upp í bíl
FLAUTULEIKARINN, söngvarinn
og lagasmiðurinn Ian Anderson, sem
fór fyrir bresku
sveitinni Jethro
Tull, leikur á
stórtónleikum í
Laugardalshöll
þriðjudaginn 23.
maí, ásamt hljóm-
sveit og með-
limum úr Reykja-
vík Sessions
Chamber Orch-
estra. Þetta er í
annað sinn sem Ian Anderson heldur
tónleika hér á landi en Jethro Tull
kom hingað til lands árið 1992 og lék
fyrir fullu húsi á Akranesi. Ian And-
erson stofnaði Jethro Tull í London
árið 1968 og er víða þekktur sem
maðurinn sem kynnti þverflautuna
fyrir rokkinu. | 76
Ian Anderson
leikur í Höllinni
Ian Anderson
ÞUNGAUMFERÐ á Íslandi
eykst stöðugt og í fyrra óku
þungir bílar 167 milljónir kíló-
metra eftir íslenska vegakerf-
inu. Þungu bílarnir eru vöru-
bílar, hópbifreiðir og öll
farartæki yfir 3,5 tonn. Þau
þrýsta margfalt meira á þjóð-
vegina en fólksbílar og slíta
þeim því hraðar. Allra
stærstu vagnlestirnar af
vörubílum, sem eru 49 tonn
og með tengivagn, leggja
tæplega 87.000 sinnum meira
álag á veginn en venjulegur
fólksbíll. Þungaumferðin myl-
ur grjótið í undirbyggingu
vegarins þannig að burðarþol
hans skemmist.
Þrýstingurinn frá þunga-
umferðinni kemur sérlega illa
við vegakerfið þegar frost
byrjar að fara úr jörðu, bæði
á vorin og í hlýindum um
miðjan vetur. Þá þiðnar efsti
hluti vegarins og vatn kemst
inn í burðarlögin. Vegurinn
verður nánast eins og svamp-
ur og mikið álag getur stór-
skemmt hann. Til að minnka
skemmdir eru settar á þunga-
takmarkanir. Vegagerðin hef-
ur nú þróað nýjan mælabúnað
til að meta raka- og frost-
ástand í vegum og hefur sett
upp frostdýptarmæla víða um
land. Mælarnir munu geta
veitt betri upplýsingar um
ástand veganna og hvaða
þyngd þeir þola.
Tekið til alvarlegrar
athugunar
Vegamálastjóri, Jón Rögn-
valdsson, segir það hafa kom-
ið illa við Vegagerðina þegar
leyfilegur öxulþungi var
hækkaður úr 10 tonnum í 11,5
tonn, til samræmis við til-
skipun frá Evrópusamband-
inu. Þetta hafi leitt til þess að
vegir sem hannaðir voru fyrir
þessa breytingu þarfnist
styrkingar fyrr en ætlað var.
„Ég á ekki von á öðru en að
auknir flutningar á landi verði
í brennidepli þegar sam-
gönguáætlunin verður endur-
skoðuð í haust,“ segir Guð-
mundur Hallvarðsson,
formaður samgöngunefndar
Alþingis. Hann segir að í ljósi
þróunar í landflutningum sé
ekki annað hægt en taka mál-
ið til alvarlegrar athugunar.
„Það þarf auðvitað að gera
eitthvað í þessu og breikka þá
vegi sem eru of mjóir til að
breiðir bílar geti mæst með
góðu móti. Við munum skoða
þetta mál ofan í kjölinn.“
Vegagerðin hefur þróað frostdýptarmæla sem geta minnkað skemmdir af völdum þungaumferðar
Þungaumferð þrýstir á vegakerfið
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vegakerfið er ekki hannað til að bera 11,5 tonna öxulþunga.
Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur
sigridurv@mbl.is
Þrýst á þjóðvegina | 22
LJÓST er að skemmdirnar á Flat-
eyri í kjölfar aftakaveðursins sem
þar gerði sl. föstudagskvöld eru
mun meiri en menn gerðu sér
grein fyrir í næturhúminu. Er
tjónið talið skipta tugum milljóna
króna.
Í morgunsárið í gær voru með-
limir björgunarsveitarinnar Sæ-
bjargar á Flateyri mættir á svæð-
ið, auk fulltrúa tryggingafélaganna
og umboðsmanns Viðlagatrygg-
ingar á Ísafirði. Hreinsunarstarf
hófst snemma dags í gær en brakið
úr trésmíðaverkstæðinu, sem
splundraðist í veðurofsanum, hafði
dreifst víðsvegar um eyrina og
valdið tjóni jafnt á bílum og húsum.
„Staðan er slæm. Þetta lítur illa
út og við erum að tala um miklar
skemmdir,“ sagði Ívar Kristjáns-
son, formaður björgunarsveitar-
innar Sæbjargar á Flateyri, þegar
blaðamaður náði tali af honum, en
þá var hreinsunarstarf í fullum
gangi.
Fjöllin magna upp vindinn
Aftakaveður það sem gerði á
Flateyri kallast Grundarendaveð-
ur. Að sögn Einars Sveinbjörns-
sonar veðurfræðings geta skilyrði
slíks aftakaveðurs skapast þegar
krappar suðvestanlægðir fara
norður með Vesturlandinu, en þá
stendur hvass vindur þvert á fjöll-
in, sem brjóta upp vindinn og
magna hann á tilteknum stöðum.
Samkvæmt mæli Veðurstofunnar
mældust mestu vindhviður 43,9
m/s, en að sögn Einars er ekki úti-
lokað að hviðurnar hafi verið mun
krappari. Vildu björgunarsveitar-
menn á Flateyri, sem vanir eru að
vera úti í vondum veðrum, meina
að hviðurnar hefðu náð allt að 60
m/s í aftakaveðrinu sl. föstudag.
Skemmdir í aftakaveðrinu á Flateyri mun meiri en talið var í fyrstu
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, var meðal þeirra fjölmörgu sem virtu fyrir sér skemmdir á húsum á Flateyri í gærmorgun.
Tjón talið hlaupa á
tugum milljóna króna
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Ótrúlegt að sjá | 4