Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 57
UMRÆÐAN
ÉG MÆLI hér með að rík-
isstjórn Íslands taki það til skoð-
unar hvort aðstaða
herliðsins á Keflavík-
urflugvelli geti nýst til
atvinnuuppbyggingar
á annan hátt eftir veru
varnarliðsins á Íslandi.
Skora ég á ríkisstjórn-
ina, og þá sérstaklega
okkar flokkssystkini á
Alþingi, að taka það til
umfjöllunar hvort
byggja megi upp al-
þjóðlegt háskólasamfé-
lag á Miðnesheiði.
Sem félagi í framsókn-
arfélaginu Bifröst og
þátttakandi í háskóla-
samfélaginu hér, geri ég mér grein
fyrir ávinningi slíks samfélags fyrir
íbúa þess og umhverfi.
Þar sem ekki liggur fyrir þörf á
fleiri háskólum í landinu heldur efl-
ingu þeirra sem fyrir eru, þykir
mér koma til greina flutningur
ákveðinna deilda Háskóla Íslands
eða annarra háskóla til þess sam-
félags. Einnig má skoða hugsanlega
samvinnu innlendra háskóla eða
jafnvel erlendra. Tel ég að háskóla-
samfélag við alþjóðaflugvöll geti
skapað sér sérstöðu sem myndi
nýtast vel til ráðstefnuhalda, til að
laða að erlenda stundakennara, fyr-
irlesara og gæti verið áhugaverður
kostur fyrir erlenda nemendur.
Legg ég það einnig til að nefnd sem
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra skipaði fyrir áramót, um al-
þjóðlega fjármálastarfsemi á Ís-
landi, skoði það hvort alþjóðlegur
háskóli við alþjóðaflugvöll myndi
styrkja slíka uppbyggingu á Ís-
landi.
Varðandi skoðun mína á samn-
ingaviðræðum um veru herliðs
Bandaríkjamanna á Íslandi, vil ég
nefna að það er nauðsynlegt að
„hugsa út fyrir rammann“ í slíkum
samningaviðræðum. Ekki er æski-
legt að loka á neinar hugmyndir,
hvorki þessa né þær hugmyndir að
styrkja samstarf okkar við Evr-
ópuþjóðirnar um varnarsamstarf
ríkjanna. Ljóst er að ráðamenn í
Bandaríkjunum meta það svo að
ekki sé mikil þörf fyrir veru þeirra
herliðs á Íslandi. Einnig er ljóst að
þeir hugsa um sína ímynd og vilja
því ekki fara héðan í
flýti og taka í burtu
þau störf sem þeir
hafa skapað í einni
svipan. Því velti ég því
fyrir mér hvort mögu-
leiki sé á að Bandarík-
in myndu koma að
uppbyggingu slíks
samfélags, sem tæki
við af því samfélagi
sem Bandaríkjamenn
byggðu upp?
Með þessari hug-
mynd værum við að
styrkja okkar mennta-
kerfi, flytja stofnanir
út á land, hækka meðallaun á
landsbyggðinni og þar með að snúa
vörn í sókn í byggðamálum. Þetta
er einungis hugmynd og ekki víst
að hún geti orðið að gagni, en við
skulum koma með fleiri hugmyndir!
Alþjóðlegt háskólasamfélag
á Miðnesheiði?
Þórður Freyr Sigurðsson
fjallar um hugmynd að skóla
á Miðnesheiði ’Með þessari hugmyndværum við að styrkja
okkar menntakerfi, flytja
stofnanir út á land,
hækka meðallaun á
landsbyggðinni og þar
með að snúa vörn í sókn í
byggðamálum.‘
Þórður Freyr
Sigurðsson Höfundur er nemi í viðskiptafræði
á Bifröst og varaformaður
framsóknarfélagsins Bifröst.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
SÖLUSÝNING - Lindasmári 45, 3. h.
Falleg 4ra-5 herbergja íbúð í mjög barn-
vænu hverfi. Íbúðin er á þriðju hæð en
skiptist á tvær hæðir. Á neðri hæðinni eru
stofurnar tvær, eldhús, geymsla/þvotta-
hús og baðherbergið. Á efri hæðinni eru
svefnherbergin þrjú og tvær setustofur.
Falleg í búð í barnvænu hverfi.
EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG,
SUNNUDAG, FRÁ KL. 13-14.
Bjalla merkt Sigríði.
V. 23,9 m. 5614
Snorrabraut - Laus strax
Gullfalleg og mikið endurnýjuð 2ja her-
bergja íbúð á 3. hæð í litlu fjölbýli. Íbúðin
skiptist þannig: Stofa, eldhús, baðher-
bergi og hol. Sameiginlegt þvottahús er í
kjallara. Búið er að skipta um öll gólfefni,
nýjar innréttingar í eldhúsi og endurnýjað
baðherbergi. Öll gólfefni eru dökkar nátt-
úruflísar. V. 13,9 m. 5598
Hjarðarhagi - Neðri sérhæð
Falleg 5 herb. mikið endurnýjuð 115 fm
neðri sérhæð á góðum stað í Vestur-
bænum. Skiptist í forstofu, hol/gang, 3
svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhús
og baðherbergi. Eldhúsið og tæki, bað-
herbergið, gólfefni o.fl. hefur verið endur-
nýjað. V. 31,9 m. 5617
Víghólastígur
Einbýlishús, um 330 fm á 916 fm stórri
lóð. Aðalhæðin er 174 fm auk 37 fm sól-
skála. Í kjallara, sem er ca 45 fm, er stórt
vinnuherbergi með sérinngangi og
geymslu. Eigninni fylgir frístandandi 36
fm bílskúr og 40 fm bílskýli. Húsið er ein-
staklega vel staðsett - innst inn í lokaðari
götu með útivistarsvæði.
Tilboð. 5145
Eyrarholt - Útsýni + bílskúr
Glæsileg 4ra herbergja 100 fm íbúð auk
bílskúrs og geymslu á jarðhæð sem er
u.þ.b. 40 fm. Eignin skiptist m.a. í þrjú
herbergi, stofu, eldhús og baðherbergi.
Svalir og verönd út í garð.
Glæsilegt útsýni. V. 24,9 m. 5634
Kleppsvegur - Útsýni
3ja herb. 82 fm íb. á 8. hæð (efstu) sem
er með glæsilegu útsýni og yfirbyggðum
svölum. Íbúðin er laus fljótlega. 5622
Maríubakki - Fallegt útsýni
Snyrtileg og björt 3ja herb. 82 fm íb. á
2. hæð. Íbúðin skiptist í hol, eldhús,
þvottahús, geymslu, stofu, baðherbergi
og tvö herb. V. 16,9 m. 5638
Kristnibraut
Glæsileg 3ja herb. íbúð á jarðhæð í litlu
fjölbýlishúsi í Grafarholti. 6 íbúðir eru í
stigagangi. Íbúðin skiptist þannig: Stofa,
eldhús, baðherbergi, tvö herbergi,
þvottahús og forstofa. Vönduð, björt og
vel umgengin íbúð í litlu fjölbýlishúsi á
besta stað í Grafarholtinu.
V. 23,5 m. 4793
Engjavellir 3 - Opið hús í dag
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hraunhamar kynnir: Opið hús í dag kl. 14:00-16:00.
Sölumenn verða á staðnum.
Sérlega glæsilegt 6-býli á Völlunum í Hafnarfirði. 2 íbúðir á hæð, séreignargarður
fylgir neðri hæðum, stórar svalir, vandaðar innréttingar, traustir verktakar. Húsið
er 3ja hæða með 6 íbúðum, 4ra og 5 herbergja. Íbúðunum fylgir sérgeymsla og
sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Eignin skilast fullbúin að utan en án gólf-
efna að innan, þó verða baðherbergi og þvottaherbergi flísalögð. Húsinu verður
skilað fullfrágengnu að utan, yfirborð útveggja verður að hluta til klætt með lig-
gjandi stálklæðningu og að hluta með palesander viðarklæðningu og múrklæðn-
ingu. Lóðin verður frágengin á þann hátt að bílastæði verða malbikuð, göngustíg-
ar hellulagðir, malbikaðir eða steyptir og lóðin tyrfð .
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir,
hdl. og lögg. fasteignasali
Hamraborg 20A, 200 Kópavogur – www.husalind.is
sími 554 4000 – fax 554 4018,
tölvup.: gugga@husalind.is – sveina@husalind.is
Opið hús kl. 15:00-16:00 í dag
NJÁLSGATA 20 - 3JA-4RA HERB.
Sjarmerandi 82,6 fm
sérhæð með aukinni
lofthæð (2,7 m) og
sérsvölum í steinsteyptu
fjórbýlishúsi á góðum stað
við Njálsgötuna í Reykjavík.
Sameiginlegur garður í
suður. Nýuppgert
baðherbergi, mósaíkflísar
upp á ¾ af veggjum,
halogen-lýsing í innréttingu. Flestir ofnar í íbúðinni eru nýir, skipt
hefur verið um heitavatnslagnir í húsinu. Verð 17,4 millj.
Allar nánari upplýsingar veitir Rósa í síma 698 7067.
Op
ið
hú
s
smáauglýsingar mbl.is