Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 81
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 81
ÍSLENSK kvikmynd sem gengur
undir vinnuheitinu Börn verður
frumsýnd í apríl. Um er að ræða
framleiðslu Vesturports og með að-
alhlutverk fara Nína Dögg Filipp-
usdóttir, Gísli Örn Garðarsson og
Ólafur Darri Ólafsson. Nína var
stödd í Gautaborg ásamt Rakel
Garðarsdóttur, framkvæmdastjóra
Vesturports, að kynna myndina í
tengslum við Kvikmyndahátíðina í
Gautaborg sem fram fór 27. janúar
til 6. febrúar.
Kynningin fór fram innan ramm-
ans Nordic Event þar sem dreifing-
araðilum og stjórnendum kvik-
myndahátíða er gefinn kostur á að
kynna sér nýjar kvikmyndir eða
myndir í vinnslu frá Norðurlönd-
unum. Nokkrir tugir áhugasamra
voru komnir til að sjá bút úr mynd-
inni og hlýða á þær Nínu og Rakel og
þær voru ánægðar með viðbrögðin.
„Það er frábært að fá svona jákvæð
viðbrögð. Allir vilja fá eintak til að
skoða nánar og við erum bjartsýnar
á að hún komist á nokkrar kvik-
myndahátíðir,“ segir Rakel.
Systurmynd Barna er myndin
Foreldrar sem frumsýnd verður síð-
ar í sumar. Leikstjóri beggja mynd-
anna er Ragnar Bragason og fram-
leiðendur eru Gísli Örn Garðarsson
og Hlynur Kristjánsson. Vinnan við
myndirnar byrjaði í raun fyrir þrem-
ur árum og hefur staðið síðan með
hléum t.d. vegna leikferðalaga Vest-
urports með Rómeó og Júlíu og
Woyzeck.
Nína kynnti myndirnar með þeim
orðum að þær væru „karakter-
drifnar“ kvikmyndir þar sem aðal-
áherslan væri á leikarana. Ekkert
handrit lá til grundvallar, aðeins
beinagrind frá leikstjóra en útkom-
an er niðurstaða úr mikilli og ít-
arlegri spunavinnu leikara og leik-
stjóra.
Leikararnir skrifuðu sínar
persónur sjálfir
„Við vorum hálft til eitt ár að þróa
karakterana okkar,“ segir Nína um
leikarana sex sem fara með aðal-
hlutverkin í myndunum. Leikararnir
skrifuðu sjálfir sínar persónur og
þróuðu þær hver og einn í samvinnu
við leikstjóra án þess að vita hvernig
hinar persónurnar væru. Með aðal-
hlutverk í Foreldrum fara Ingvar E.
Sigurðsson, Nanna Kristín Magn-
úsdóttir og Víkingur Kristjánsson.
Fleiri íslenskir leikarar fara með
hlutverk í myndunum, auk sænska
leikarans Reine Brynolfsson.
Fyrst var ætlunin að gera eina
mynd með öllum sex persónunum en
fljótlega var ákveðið að myndirnar
yrðu tvær. Myndirnar eru teknar
upp á vídeó og mikið efni var til. Þær
eru svarthvítar og eru ástæðurnar
einkum tvær. Annars vegar að þær
eiga að sýna gráan hversdagsleika,
vera hráar og ekki skreyttar og hins
vegar að halda kostnaði í lágmarki
en kostnaður við hvora mynd er 30
milljónir króna. „Við spöruðum líka
alls staðar, redduðum búningum
sjálf og skriftan, Gunnar B. Guð-
mundsson, sá til dæmis um gerviblóð
fyrir slagsmálasenu,“ segir Rakel.
Í myndinni leikur Nína einstæða
fjögurra barna móður sem berst í
bökkum í Breiðholtinu og þarf ásamt
elsta syni sínum (sem leikinn er af
bróður hennar Andra Snæ Helga-
syni) að kljást við ógnvekjandi mann
sem Gísli leikur. Nína bjó sig undir
hlutverkið m.a. með því að tala við
einstæðar mæður og heyra reynslu-
sögur þeirra. Einnig prófaði hún að
vinna hjá Mæðrastyrksnefnd, en
biðraðir þar segir hún hafa sannað
að vissulega væri fátækt á Íslandi.
Íslenskir leikarar fá of fá
tækifæri til kvikmyndaleiks
„Mér finnst best að við höfum
aldrei misst þráðinn eða áhugann á
að klára þetta verkefni á þeim þrem-
ur árum sem liðin eru síðan við
ákváðum að ráðast í þetta með
Ragnari,“ segir Nína. Ragnar
Bragason gerði einnig heimild-
armyndina Love is in the air um æv-
intýri Vesturports með Rómeó og
Júlíu í London og hefur því unnið
með hópnum áður og verið til taks til
að ræða karakterana í nýju mynd-
unum. Hugmyndin að þeim kviknaði
hjá honum og Nína segir að leikhóp-
inn hafi líka langað að gera kvik-
mynd.
„Nú er alltaf verið að gera íslensk-
ar bíómyndir með erlendum leik-
urum. Við íslenskir leikarar fáum of
fá tækifæri til að þróa okkur í kvik-
myndaleik. Við ákváðum því bara að
kýla á þetta og segja sögu úr íslensk-
um samtíma. Með kvikmynd er hægt
að ná til mun fleiri en í leikhúsinu og
við viljum ná til fólks með þessar
sögur,“ segir Nína.
Leikararnir skrifuðu sína persónu
og sögu sem þeir vildu segja og létu
leikstjórann fá og enginn vissi af hin-
um persónunum. „Það sem kom leik-
stjóranum svo á óvart var hvað við
vorum öll á svipuðu róli. Það vissi
enginn af öðrum en samt vorum við
öll að fjalla um það sama. Raggi var
svo hissa. Það var eins og þetta hefði
verið í loftinu og dottið niður á okk-
ur,“ segir Nína.
„Við erum að fjalla um þá ábyrgð
að vera manneskja og hafa samband
við aðrar manneskjur. Við erum öll
breysk og misstígum okkur en eiga
ekki allir skilið að fá annað tæki-
færi?“ spyr Nína.
„Þetta er kannski svart drama
með smá húmor. Alveg eins og lífið,
það er stundum gaman og stundum
erfitt,“ segir Nína.
Rakel segir að áhorfendur eigi að
geta samsamað sig myndinni. „Ís-
lensk náttúra eða víkingar eru ekki
endilega nauðsynlegt til að selja ís-
lenskar myndir. Við erum að
minnsta kosti bjartsýn á framhaldið
með þessa hráu sögu úr köldum ís-
lenskum veruleika.“
Kvikmyndir | Börn og foreldrar frá Vesturporti
Svart drama
með smá húmor
Morgunblaðið/Steingerður
Nína og Rakel fóru fyrir hönd Vesturports á Kvikmyndahátíðina í Gautaborg.
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
mynd eftir
steven spielberg
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Besta leikstjórn (Steven Spielberg), besta mynd, besta handrit,
besta tónlist og besta klipping.5
Hér er á ferðinni frábært
framhald einnar ástsælustu
teiknimynd allra tíma.
Sýnd með íslensku tali.
„Munich er tímabært
stórvirki sem á
erindi við alla.“
*****
S.V. Mbl.
*****
L.I.B. Topp5.is
****
S.U.S. XFM 91,9
****
kvikmyndir.is
****
Ó.Ö. DV
Spennuþruma ársins
er komin með hinni einu sönnu Jennifer Aniston og
hinum vinasæla Clive Owen (“Closer”).
eee
M.M. J. Kvikmyndir.com
CLIVE OWEN JENNIFER ANISTON
FREISTINGAR GETA REYNST DÝRKEYPTAR
NORTH COUNTRY kl. 5.15 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára.
BAMBI 2 M/- Ísl tal. kl. 2 - 4 - 6
BAMBI 2 VIP kl. 2 - 4 - 6
DERAILED kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára.
DERAILED VIP kl. 8 - 10:20
MUNICH kl. 9:15 B.i. 16 ára.
PRIDE AND PREJUDICEkl. 8
OLIVER TWIST kl. 1.15 - 4 - 6:30 B.i. 12 ára.
RUMOR HAS IT kl. 10:40
HARRY POTTER AND THE GOBLET OF FIRE kl. 2 - 5 B.i. 10 ára.
CHRONICLES OF NARNIA kl. 2 - 5
KING KONG kl. 8 B.i. 12 ára.
Litli Kjúllin M/- Ísl tal. kl. 1.50 - 3:30
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
M.a. fyrir tæknibrellur4
kvikmyndir.is
3TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNAFörðun, hljómblöndun, sjónrænar brellur.
DERAILED kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára.
BAMBI 2 M/- Ísl tal. kl. 12 - 2 - 4 - 6
MUNICH kl. 6 - 8.15 - 10 B.i. 16 ára.
HARRY POTTER AND THE GOBLET OF FIRE kl. 12 - 3 B.i. 10 ára.
CHRONICLES OF NARNIA kl. 12 - 3
AR MYNDIR KL. 12 UM HELGAR Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI