Morgunblaðið - 12.02.2006, Blaðsíða 31
hönnun hentaði til fjöldaframleiðslu,
þar sem ég hef alltaf reynt að gefa
hlutunum mínum persónulegt yfir-
bragð með því að gera litlar breyt-
ingar eða hafa þá viljandi örlítið
ófullkomna.“ Hella er ánægð með út-
komuna þar sem vasarnir eru ekki
bara fallegir heldur einnig hver með
sínu lagi. Allir vasarnir eru hand-
gerðir og hugmyndin að baki er sú að
þegar þeir eru skoðaðir nánar kemur
í ljós ennþá meiri munur á milli
þeirra. Það sem Hellu þótti heillandi
við að vinna með Ikea var stærðin og
umfangið í framleiðslunni. Henni
fannst mjög áhugavert að vinna með
allar þær reglur sem fylgja slíkri
framleiðslu þar sem hún er vön að
vinna meira með handverk og gera
einstaka hluti. Henni finnst hún hafa
náð því besta frá báðum heimum.
Hella gerði alls fjórar
ólíkar tegundir vasa en þeir eru allir
eins í forminu, erkitýpuvasar. Og
fyrir henni er það form eins og hvítur
strigi til að hanna á. Hver tegund er
skreytt á sinn hátt og táknar vissan
stað í heiminum og einnig eru þær
unnar með ólíkum aðferðum. Vas-
arnir bera keim af hennar fyrri verk-
um og hafa skýr höfundareinkenni.
Þeir eru handgerðir og úr
ólíkum efnum eins og
postulíni og keramik.
Þrátt fyrir að vas-
arnir séu eins í lag-
inu hafa þeir hver
sinn karakter sem
gerir þá ólíka.
Hlutir Hellu
eru að jafn-
aði frekar
dýrir
og
því oft frekar keyptir af söfnum
eða þeim sem hafa sérstakan áhuga á
hönnun. Hella fagnar því að nú hafa
fleiri efni á hönnun hennar. Hún von-
ar að fólk eigi Jonesberg-vasana um
langa ævi og að hver vasi eigi ham-
ingjusamt líf. Hún er bjartsýn á
að svo verði þar sem vasarnir
eru fallegir, nytsamlegir og
gerðir af einlægni.
Hressilegir hlutir og áhugaverðir
Það sama má segja um flesta
hlutina úr ps-línu Ikea, þeir
eru hressilegir og áhuga-
verðir og í takt við lífsstíl
fólks í dag.
Auk hlutanna hér að
ofan eru í ps-línunni
teppasjöl sem
hægt er að klæða
sig í, púðar með
holum fyrir
kalda fætur,
áhugaverðir
kollar sem eru
unnir með nýstárlegum að-
ferðum, felliborð með áföstum útsýn-
isramma og fleira og fleira.
Allir þessir hlutir munu vonandi
líka eiga hamingjusamt líf með nýj-
um eigendum sínum og vonandi
verður framhald á hugmyndagleð-
inni hjá Ikea.
nuðar
Höfundur er vöruhönnuður.Glimsta-gólfmottan er rauður dregill fyrir heimilið.
Genevad-púðar eru
fyrir kalda fætur.
Jarbo-sófinn er hann-
aður til að passa í horn.
Vasar fyrir Ikea eftir Hellu Jongerius. Nú eru Hellu-vasar á færi flestra.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 31