Morgunblaðið - 25.03.2007, Qupperneq 88
ÁSTU-Sólliljugata, Diljárgata, Snæ-
fríðargata og Sölkugata. Þetta eru
allt dæmi um nöfn sem gefin verða
götum í Helgafellshverfi í Mos-
fellsbæ. Bæjaryfirvöld þar hafa
ákveðið að nöfn gatna í Helgafells-
hverfi sem er að rísa við hlíðar
Helgafells verði sótt til verka Hall-
dórs Laxness. Verða göturnar
nefndar eftir helstu kvenpersónum í
verkum nóbelsskáldsins.
Hannes Sigurgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Helgafellsbygginga,
sem stýrir uppbyggingu hverfisins,
segir að hugmyndin um að sækja
götunöfnin til verka Halldórs Lax-
ness hafi komið upp í fyrra. Land-
eigendur hafi hrifist af henni og lagt
umtalsverða vinnu í útfærslu hennar
með ráðgjöfum sínum.
Smekkleg lausn
Aðalgöturnar tvær sem mynda
kjarna hverfisins verða nefndar eftir
tveimur skáldsögum Halldórs Lax-
ness og fá þær viðskeytið -stræti.
Þetta eru Gerplustræti og Vefara-
stræti.
„Auk þess að vera einföld og
smekkleg lausn gátum við notað
nöfnin til að mynda einfalt kerfi og
raðað götunum í stafrófsröð, rétt-
sælis kringum miðju hverfisins.
Þannig verður auðvelt fyrir fólk að
rata í Helgafellshverfi.“ segir Hann-
es. | 6
Diljárgata og Gerplustræti
Götum í Helgafellshverfi verða gefin nöfn kvenpersóna úr verkum Laxness
SUNNUDAGUR 25. MARS 84. DAGUR ÁRSINS 2007
Heitast 8 °C | Kaldast 1 °C
Suðlæg átt, 5–13
m/s S- og SA-lands.
Rigning. Léttskýjað á
NA- og A-landi en
þykknar upp. » 8
ÞETTA HELST»
Hvatning til
eldri borgara
Geir H. Haarde, formaður Sjálf-
stæðisflokksins og forsætisráðherra,
vill draga úr skerðingum bóta til
eldri borgara og hvetja þá til að vera
virkir á vinnumarkaðnum.
» Forsíða og 28
RÚV áfram þjóðareign
Páll Magnússon útvarpsstjóri
segir að Ríkisútvarpið hafi verið
lamað vegna óvissu árum saman en
þrátt fyrir formbreytingu á rekstri
verði RÚV áfram í eigu þjóðarinnar.
» Forsíða og 10
Ölgerðin ekki með
Ölgerðin Egill Skallagrímsson
leggur ekki nafn sitt við drykkju-
keppni eins og greint var frá í gær,
að sögn forstjórans. » 2
Ný leið á Hraundranga
Fjallaklifrarar hafa nýverið lagt
að baki áður ófarna klifurleið á
Hraundranga. » 4
Stórt hesthús á Hólum
Eitt stærsta hesthús landsins hefur
verið tekið í notkun á Hólum í
Hjaltadal. » 69
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Sæti gaurinn
Staksteinar: VG á vegamótum
Forystugreinar: Evrópusamband í
hálfa öld og Reykjavíkurbréf
UMRÆÐAN»
Auglýsingar af öllum toga
Veiðarfærastýring
Hver er prísinn, Steingrímur?
Þjóðarsátt um orkumál
Ábyrgð – fagmennska
ATVINNA»VIÐTAL»
Erpur leikur skíthæl í
nýrri kvikmynd. »76
Shangri-Las var ein
helsta stelpusveit
sjöunda áratugarins,
nú hefur aðalsöng-
kona hennar gefið út
sólóskífu. »78
TÓNLIST»
Tónlist á
sunnudegi
AFMÆLI»
Kappinn Elton John er
sextugur. »82
TÓNLIST»
Björk með tónleika á Ís-
landi í apríl. »81
Sean Lennon
trommaði á
skemmtistaðnum
Liverpool í Rúss-
landi sem er í eigu
Íslendinga. »85
Lennon á Ís-
lendingastað
FÓLK»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
Á ANNAÐ hundrað skátar á aldr-
inum 11–15 ára taka þátt í útilífs-
helgi skátaflokka í Heiðmörk um
helgina og létu þeir rigninguna í
gærmorgun ekki á sig fá. Skátarnir
þurftu að leysa ýmis verkefni og
þrautir sem búið var að útbúa víða
um Heiðmörk auk þess sem mælst
var til að þeir gistu í tjöldum – en
það gaf aukastig. Skátaflokkarnir
þurftu þá að halda svokallaða SMS-
dagbók og gátu því foreldrar og
aðrir fylgst vel með gangi mála og
hvatt þátttakendur áfram með
heillaskeytum.
Á SKÁTAMÓTI Í HEIÐMÖRK
Morgunblaðið/ÞÖK
Létu rigninguna ekki á sig fá
„ÞETTA er ein-
staklega ljúfur
og góður maður.
Hann er ofsa-
lega þakklátur
fyrir að hafa
fengið að vinna
við þetta öll
þessi ár og er al-
gjörlega laus við
stjörnustæla, þeir eru bara ekki
til,“ segir Hilmar Kári Hallbjörns-
son um söngvarann Cliff Richard
sem verður með tónleika hér á
landi á miðvikudaginn. Richard
gerir ekki miklar kröfur um að-
búnað baksviðs. „Hann biður bara
um rauðvín og hvítvín eins og
venjan er og ekki neina sérstaka
tegund,“ segir Hilmar, sem er
verkefnastjóri tónleikanna, og
bætir við að hann ætli einnig að
gefa stjörnunni íslenskt lambalæri
að borða. | 83
Laus við
stjörnustæla
HEIMSMEISTARAKEPPNI
homma og lesbía í knattspyrnu fer
fram í Argentínu í september næst-
komandi. Íslendingar ætla nú í
fyrsta skipti að senda landslið á
mótið en liðið hefur æft stíft að
undanförnu.
Hafsteinn Þórólfsson stofnaði lið-
ið, St. Styrmi, í fyrrasumar með það
að leiðarljósi að hommar gætu
komið saman og spilað fótbolta og
hefur það aldeilis undið upp á sig.
St. Styrmir tók þátt á móti í Kaup-
mannahöfn í haust og um páskana
keppa þeir á sautján liða móti í
London. Mótið í Argentínu er það
stærsta sinnar tegundar í heim-
inum og hafa yfir þrjátíu lönd til-
kynnt þátttöku. | 77
St. Styrmir
á HM
♦♦♦