Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Svona, svona, Kolla kúltúr, bara aðeins að láta blóðið væta góm.
VEÐUR
Síðasta skoðanakönnun Capa-cent-Gallup sýnir svo ekki verð-
ur um villzt, að Samfylkingin er að
tapa fylgi til beggja átta. Þegar
tekið er mið af úrslitum alþing-
iskosninganna 2003 og skoðana-
kannana nú ætla um 20% af kjós-
endum Samfylkingarinnar árið
2003 að kjósa Vinstri græna nú.
Þetta er ekkisízt athygl-
isvert í ljósi þess,
að þegar Ingi-
björg Sólrún
Gísladóttir, hafði
verið kjörin for-
maður Samfylk-
ingar sendi hún
út sérstakt ákall
til stuðnings-
manna Vinstri grænna, sem hún
taldi að ættu heima í sínum her-
búðum, um að snúa heim.
Þetta ákall virðist hafa snúizt uppí andhverfu sína.
En jafnframt er ljóst að Samfylk-ingin er einnig að missa fylgi til
hægri. Um 8% þeirra, sem kusu
Samfylkinguna árið 2003 ætla að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn nú.
Það verður að teljast nokkuðljóst, að hér er um að ræða
fyrrverandi kjósendur Alþýðu-
flokksins, sem eru ósáttir við Sam-
fylkinguna og telja sig ekki lengur
eiga heima þar.
Samfylkingin er að þessu leyti ísvipaðri stöðu og Framsókn-
arflokkurinn, að flokkurinn er að
missa fylgi bæði til hægri og vinstri
og augljóslega erfitt fyrir talsmenn
Samfylkingar að stilla málflutning
sinn þannig af að þeir nái til beggja
átta.
Það hefði kannski verið skyn-samlegra að leita liðsinnis
þeirra, sem geta haldið gömlum Al-
þýðuflokkskjósendum við efnið?!
STAKSTEINAR
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Samfylking tapar til beggja átta
SIGMUND
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
!
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
" "
"
#$$#
$
$
#$$#
#$$#
$
:
*$;<= %%
! "
#
$
*!
$$
; *!
&'()% %(% *+
>2
>! >2
>! >2
&) $#%, $ -%.#$/
== $
87 & $' %%() %$$$0
$ 1%$%/ %*%$$2%3*
*% 1%$%$$ 2
6
2
& $' %%#$$#%$$$0
#%( $ $ 1%$%$$%
#% %% 2%4 %% %% #1
%$ $ $ 2
;
56$ % $' %%#$$#1
$% $ $ 1%$
! %'%7 $ 2%8 $
"%-% #2%4 %% %
#1%( %*%$$2
9## %'%::
$#%*'%5 *%, $ %; 2% $% 2%2
<
3'45?4
?*>5@ AB
*C./B>5@ AB
,5D0C).B
2
1
1
1
2 2
2 2
2
2 1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
1
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Gísli Freyr Valdórsson | 20. apríl
Lækkum skatta
Það er vonandi að
stjórnmálamenn átti
sig á þessu líka og
lækki skatta enn
frekar. En þeir eru
reyndar dáldið á milli
steins og sleggju. All-
ir vilja fá eitthvað frá hinu opin-
bera. Daglega heyrir maður að
einhver hagsmunahópurinn er að
krefja hið opinbera um meira fjár-
magn í hitt og þetta. Allt of marg-
ir líta þannig á að fé úr sjóðum
hins opinbera sé töfralausn við öll-
um vandamálum.
Meira: http://gislifreyr.blog.is
Guðmundur Magnússon | 20. apríl
Athafnastjórnmál
Ég verð svolítið óró-
legur þegar ég heyri
þetta orð. Misskiljið
mig ekki. Ég er ekki að
biðja um sinnulausa
skrifborðsmenn í
stjórnmálin. Af og frá.
Auðvitað þurfa stjórnmálamenn að
vera vakandi og drífandi. En ef at-
hafnastjórnmál merkir að stjórn-
málamenn eigi að fara að vasast í
hlutum sem við heilbrigðar að-
stæður eru á verksviði atvinnurek-
enda og framtaksmanna, þá segi ég:
Nei, takk!
Meira: gudmundurmagnusson.blog.is
Jón Magnússon | 20. apríl
Bitnar á hjáleigunni
Guðni landbún-
aðarráðherra ætti að
vita það að flestallir
vilja frekar vera á höf-
uðbólinu en hjáleig-
unni. Þess vegna
kjósa menn Sjálfstæð-
isflokkinn en ekki Framsóknar-
flokkinn.
Það er hvort eð er sami rassinn
undir báðum flokkum. Flokkarnir
eru búnir að vera svo lengi saman í
stjórn og standa saman að svo
mörgum vafasömum aðgerðum að
fólk lætur það bitna á hjáleigunni.
Meira: http://jonmagnusson.blog.is
Anna K. Kristjánsdóttir, 21. apríl
Sovét-Ísland
Sovét-Ísland, drauma-
landið, hvenær kemur
þú? Þessi orð eins
hinna Rauðu penna
hafa löngum verið höfð
að háði og spotti meðal
íslenskra hægrimanna
sem fundu skoðunum íslenskra
vinstrimanna allt til foráttu á fyrri
hluta tuttugustu aldar og þá sér-
staklega trú þeirra á hinum ungu
Sovétríkjum, en einnig misréttinu
sem ríkti þar austur frá.
Nú er misréttið komið til Íslands
til að vera. Hér er búsett ný stétt
manna sem ferðast á milli á einka-
þotum og lifir lífi sem við sauð-
svartur almúginn þekkjum ekki og
vart í okkar villtustu draumum, fá
dýrustu skemmtikrafta heims til að
skemmta sér og fjölskyldum sínum í
afmælum og um áramót og eiga allt
það flottasta sem hægt er að kom-
ast yfir. Þessi nýja stétt veður í
peningum og greiðir einungis 10%
skatt en fær þó fulla þjónustu.
Ég er í sjálfu sér ekki að mót-
mæla þessu að sinni, fremur því
þjóðskipulagi sem mismunar þegn-
unum á þann hátt að hún skiptist í
tvær þjóðir í sama landinu, hina for-
ríku og alla hina. Í Sovétríkjunum
voru líka tvær þjóðir, háttsettir í
flokknum og svo allir hinir. Nú hef-
ur hið hataða skrifræði Sovétríkj-
anna einnig náð til Íslands. Lettn-
eskur trésmiður og eiginkona hans
sem vinnur við þrif, fá ekki dag-
heimilispláss fyrir börn sín. Ástæð-
an. Íslenskt skrifræði á tímum sem
hörð hægristjórn hefur setið hér við
völd í tólf ár. Ekki verður lettnesku
hjónunum kennt um að lifa á fé-
lagslega kerfinu, greinilega harð-
dugleg hjón sem skila sínu til sam-
félagsins og fá ekkert í staðinn. Alls
ekkert. Ekki einu sinni dagheim-
ilispláss fyrir börnin. Í þessu tilfelli
er börnunum refsað fyrir að vera til
og að hafa ekki uppfyllt ýtrustu
kröfur um gildistíma vegabréfa og
nú bíður fjölskyldunnar löng og
ströng leið um hið íslenska skrif-
ræði áður en þau fá að njóta dvalar
sinnar hér á landi.
Ég held að við þurfum ekki leng-
ur að bíða eftir komu Sovét-Íslands.
Það er hérna undir vökulum augum
ríkisstjórnar Framsóknar og Sjálf-
stæðisflokks, allavega sá hluti þess
sem líkt er við misrétti og skrifræði.
Meira: http://velstyran.blog.is
BLOG.IS