Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 26
daglegt líf 26 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ að ef eitthvað kemur til mín, reyni ég að fylgja því.“ Frá þessum tíma hefur Helena mikið verið viðloðandi kvikmyndahá- tíðir. „Ég er búin að vinna í nánast öllum stóru kvikmyndahátíðunum sem haldnar hafa verið á Íslandi síð- an Nordisk Panorama 1999, gömlu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík, Shorts & Docs, Alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Reykjavík RIFF. Það er eitthvað sem togar alltaf í mig við kvikmyndahátíðir og þær eru tækifæri til að sjá fullt af myndum og kynnast fólki. En mig langar líka að fara meira með eigin myndir á hátíð- ir,“ segir Helena sem verður fram- kvæmdastjóri heimilda- og stutt- myndahátíðarinnar Reykjavík Shorts & Docs á næsta ári. Næsta hátíð verður haldin í maí og verður nýjasta stuttmynd Helenu sem ber nafnið Anna sýnd þar. Ætlar Helena að hefja undirbúning næstu hátíðar strax í sumar og byrja á því að aug- lýsa eftir myndum. Helena heldur mikið upp á Tjarn- arbíó og langar að endurvekja það sem bíó. „Ég frumsýndi Önnu þar því mig langaði að hafa heimilislega stemningu og ég var líka að halda upp á afmælið mitt,“ segir hún en þetta var í janúar. „Sjarmi hússins passar líka vel við þá stemningu sem ríkir á kvikmyndahátíðum.“ Henni finnst kvikmyndahátíðir mikilvægar til að kynna fjölbreyttari kvikmyndir en ella eru sýndar í bíó- húsum. „En það þarf meira til að fólk fari að melta almenntilegt bíó. Holly- wood-formúlan er bara afþreying og peningamaskína. Sem stendur erum við ekki að ala börnin okkar upp í því að meta aðra tegund af kvikmynd- um.“ Helenu finnst menntakerfið gegna þarna mikilvægu hlutverki. „Það er mikilvægt að börn lesi og virkji ímyndunaraflið í gegnum sköp- un og handavinnu. Það væri gaman ef það væri meiri sköpun inni í skól- anum eins og með myndbönd. Ekki bara áhorf, heldur beinlínis að leyfa börnum að búa til myndir. Vídeóið er ört vaxandi miðill.“ Helena var fyrir nokkrum árum með stuttmynd á barnakvikmynda- hátíð á Norðurlöndum og segir þar hafa verið mikið af frábæru efni fyrir börn og unglinga. „Ekkert af þessu kemur til Íslands. Eina sem er í boði eru Disney-kvikmyndir og ámóta.“ Lengi að vinna Helenu er þetta meðal annars hugleikið vegna þess að hún á þrjú börn, Stefán 19 ára og Kolfinnu 16 ára, en bæði eru þau Nikulásbörn og frönsk í aðra ættina. Svo á hún Ilmi Maríu, sem verður fimm ára í maí, með eiginmanni sínum Arnari Steini Friðbjarnarsyni. Saman reka þau kvikmyndafyrirtækið Undraland við Mýrargötu. Helena hefur gert fjórar stutt- myndir og nokkrar fræðslumyndir og segist vera frekar lengi að vinna. „Ég er búin að sætta mig við það. Ég fékk hugmyndina að Önnu árið 1999 og gekk með hana í maganum í tvö ár. Ég skrifaði handritið og sótti um styrk 2002 hjá Kvikmyndamiðstöð. Fékk athugasemdir við handritið og gerði breytingar á því samkvæmt þeim og var svona ár að því. Ég bætti lítilli ástarsögu í myndina, tók hana 2005 og frumsýndi í byrjun árs 2007.“ Korters stuttmyndin Anna segir frá konu sem er með Tourette- sjúkdóminn og hermir eftir fólki. Hugmyndina fékk Helena úr stuttri mannlýsingu í bók eftir Oliver Sachs. „Hún er að reyna að bjóða nágrann- anum í kaffi en það tekst ekki. Að- alsöguhetjurnar eru tvær og það er ekkert tal. Sjúkdómnum fylgir alls- konar þrjáhyggja, sem er komin á hátt stig hjá Önnu en hún býr ein.“ Katherine Baldwin, vinkona Hel- enu frá háskólaárunum í París, leik- ur Önnu. „Hún er loftfimleikakona en líka með mastersgráðu í að semja söngleikjatexta og er mjög flottur performer.“ Anna vann til annarra af tvennum verðlaunum sem veitt voru á mynd- banda- og kvikmyndahátíðinni 700IS Hreindýralandi, sem haldin var á Egilsstöðum fyrr á árinu. Helena er ánægð með verðlaunin og hefur mikla trú á þessari hátíð og telur að hún eigi eftir að vaxa. Á hátíðinni voru sýnd 85 verk, valin úr þeim 500 sem send voru frá öllum heims- hornum. Hún vonast eftir að Anna eigi eftir að fara víðar á hátíðir. „Hún er svo glæný að ferlið er rétt að byrja. Kvikmyndamiðstöð sér um að sækja um stóru kvikmyndahátíðirnar. Ég er sjálf að sækja um á neðanjarðar- hátíðum og vona bara að þetta eigi eftir að ganga vel. Ég er nú þegar búin að fá boð á stóra kvik- myndahátíð í Mexíkó. Skipuleggj- endur báðu um myndina að fyrra bragði eftir að hafa séð hana á mark- aði í Frakklandi.“ Heillaðist algjörlega Helena er sem stendur að vinna að heimildamynd, sem hún segir að með sínum hætti hafi verið lengi í fæð- ingu. „Þetta byrjaði sumarið 2005 þegar ég og maðurinn minn fórum með litlu dóttur okkar í mótmæla- búðir við Kárahnjúka. Ég heillaðist algjörlega af svæðinu og trúði ekki að það ætti að eyðileggja það. Það hafði mikil áhrif á mig að virða fyrir mér þetta stórkostlega landslag og heyra sprengingarnar úr stíflugerð- inni í bakgrunninum. Upplifunin var sterk og ég ákvað að gera mynd um þetta. Ég fékk handritsstyrk til að þróa verkefnið og gerði það síðasta sumar og fékk svo framleiðslustyrk síðasta haust. Það var góð tilfinning því ég er búin að vera að vinna svo mikla sjálfboðavinnu í umhverfisbar- áttunni,“ segir Helena sem hefur unnið mikið starf í umhverfisvernd- arbaráttunni með Íslandsvinum, Náttúruvaktinni og Hætta!-hópnum, sem m.a. stóð fyrir stórtónleikum í Laugardalshöll til að vekja athygli á málstaðnum. Myndin verður þó engin áróð- ursmynd heldur listræn heimild- armynd, segir hún, en tökur standa Landið Arnar Steinn, Kolfinna, Ilmur María og Helena á Kára- hnjúkum árið 2005 með Snæfell í baksýn. Fermingardagur Kolfinnu Nútímafjölskyldan saman komin. Helena með börnum sínum þremur, núverandi og fyrrverandi eiginmanni (Arnari Steini og Nicolas) ásamt Halldóru eiginkonu Nicolasar og Flóka syni þeirra. Á ströndinni Helena ásamt börnum sínum Ilmi Maríu, Kolfinnu og Stefáni í Púertó Ríkó. Foreldrar Helenu Magnea Reinaldsdóttir og Stefán Geir Karlsson. Þessi stóru álfyr- irtæki hafa svo mikið vald og eig- in leiðir til að fá það sem þau vilja. Ég efast um að þau fari að hætta við bara af því að við fílum þetta ekki. KVENFRELSI ER LÍKA OKKAR MÁL Paul Nikolov 3. sæti Reykjavíkurkjördæmi Norður Ögmundur Jónasson 1. sæti Suðvesturkjördæmi Gestur Svavarsson 3. sæti Suðvesturkjördæmi Atli Gíslason 1. sæti í Suðurkjördæmi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.