Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 77
UNGT fólk í SÁÁ heldur í kvöld tónleika til að fagna
sumarkomunni, en yfirskrift tónleikanna er Snúran.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en þeir fara fram
í Von, húsi SÁÁ í Efstaleiti 7, og hefjast kl. 20:30.
Glæsileg skemmtiatriði eru í boði en þeir sem koma
fram eru Haltu Taktkjafti, Bergþór Smári, fyndnustu
menn Íslands, Freyr Eyjólfsson, Einar Ágúst og Giant
Viking Show. Kynnir kvöldsins verður Auðunn Blöndal.
Ungt fólk í SÁÁ er félagsskapur sem stendur fyrir
ýmsum uppákomum s.s. skíðaferðum, fjallgöngum,
kvikmyndakvöldum, keilu, paint ball og öðru sem fé-
lagsmenn langar til að gera saman án áfengis og vímu-
gjafa.
Öflugt félagsstarf
Í tilkynningu frá félagsskapnum segir: „Margar
skemmtanir sem ungt fólk sækir eru tengdar neyslu.
Þar kemur bæði til lífsmynstur og félagslegur þrýst-
ingur á að taka þátt í neyslunni. Þeir sem hafa lent í
vanda vegna áfengis- og vímuefnaneyslu eru oft fé-
lagslega einangraðir vegna þess að bata þeirra er
hætta búin með slíku skemmtanahaldi og oft eru þess-
ar skemmtanir þær einu sem í boði eru. Markmiðið
með því að bjóða upp á vímulausar skemmtanir er að
sýna unglingum að þeir hafa val, og að margar ákvarð-
anir sem virðast saklausar geta reynst hafa alvarlegar
afleiðingar í för með sér. Ekki þarf að fjölyrða um mik-
ilvægi forvarna gagnvart hinum yngri og áhrifa-
gjarnari. Vakin er sérstök athygli á því að líklega erum
við að sjá aukningu í áfengis- og vímuefnaneyslu ungs
fólks að nýju með auknum innlögnum einstaklinga fyrir
20 ára aldur inn á Vog. Nær öll ungmenni sem koma til
SÁÁ í meðferð hafa orðið fyrir töfum í skóla vegna
vímuefnaneyslunnar og margir hafa flosnað upp frá
námi. Nokkur hluti hefur hætt í skóla án þess að ljúka
skyldunámi. Þess vegna er mikilvægt að standa fyrir
öflugu félagsstarfi í öruggu og vímulausu umhverfi.“
SÁÁ stendur fyrir Snúrunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Strákurinn Auðunn Blöndal verður kynnir á tónleikum sem ungt fólk í SÁÁ heldur til að fagna sumarkomu.
www.saa.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Búnaðarbanka
íslands hf. verður haldinn mánudaginn 30. apríl nk.
kl. 17.15 í höfuðstöðvum Kaupþings banka hf. að
Borgartúni 19, 4. hæð. Dagskrá fundarins er
eftirfarandi:
1. Fundarsetning.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Ársreikningur fyrir liðið starfsár lagður fram.
4. Tryggingafræðileg úttekt.
5. Fjárfestingarstefna sjóðsins.
6. Kosning tveggja stjórnarmanna og tveggja til vara.
7. Kosning skoðunarmanna.
8. Önnur mál.
Stjórn sjóðsins vill hvetja sjóðfélaga til að mæta á
fundinn.
Ársfundur
Lífeyrissjóðs starfsmanna
Búnaðarbanka Íslands hf.