Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 47
endanlegri afskráningu þegar um
meiriháttar tjón er að ræða sem
ekki verður lagað svo hættulaust sé
fyrir vegfarendur. Þá stóð sam-
bandið að stofnun aðgengilegs
gagnagrunns, Bíló, sem heldur utan
um verðmyndun og raunverð á not-
uðum bílum, en hann gegnir nú
mikilvægu hlutverki á markaðnum.
Fjöldamörg önnur baráttumál Bíl-
greinasambandsins mætti nefna,
þar sem hagsmunir þess og almenn-
ings fara saman.
Áhrif á umhverfið
Eitt af hlutverkum Bílgreina-
sambandsins er að stuðla að skyn-
samlegum aðgerðum er dregið geta
úr neikvæðum áhrifum bíla á um-
hverfið og stuðla að bættri umferð-
armenningu og auknu umferðarör-
yggi. Í samræmi við þessar
áherslur samþykkti nýliðinn aðal-
fundur sambandsins tvær tillögur
sem lúta að þessum megin-
áherslum, en þær er að finna í heild
sinni á vefsíðu sambandsins, bgs.is:
Annars vegar leggur Bílgreina-
sambandið til lækkun á vörugjöld-
um til að auðvelda almenningi að
kaupa umhverfisvænni og öruggari
bíla. Í staðinn innleiði ríkisvaldið
„græna skatta“ á notkun bíla.
Hins vegar leggur Bílgreina-
sambandið áherslu á að tvær, einar
mikilvægustu samgönguæðar lands-
manna, Sundabraut og Suðurlands-
vegur, njóti forgangs hvað varðar
hönnun og framkvæmdir á næstu
árum. Mikilvægt er að öll sú vinna
taki mið af umhverfisáhrifum, aukn-
um afköstum og betra umferðarör-
yggi til framtíðar litið, en ekki
næstu ára.
Það er von Bílgreinasambandsins
að stjórnmálaflokkar
landsins taki þessar tillögur til ít-
arlegrar og jákvæðrar skoðunar
enda liggur fyrir að mikill og víð-
tækur stuðningur er fyrir þeim í
samfélaginu. Það er því mikilvægt
að stjórnmálamenn gangi í takt í
þessum efnum og sameinist um
þessi meginmarkmið.
Höfundur er formaður
Bílgreinasambandsins.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 47
Nýr, fallegri og miklu betri Opel.
0 kr. í útborgun*
28.412* kr. á mánuði fyrir beinskiptan Opel Astra 1.6 ( Verð: 1.890.000 kr. )
31.836* kr. á mánuði fyrir sjálfskiptan Opel Astra 1.8 ( Verð: 2.120.000 kr. )
Nýi Opel Astra er fallegasti bíllinn á götunni. Stórglæsileg hönnun
helst í hendur við kraftmikla vél og magnaða aksturseiginleika.
Drekkhlaðinn aukabúnaði sem gerir aksturinn ennþá ánægjulegri.
Astra var mest seldi bíll Evrópu árið 2006 og það er ljóst að þeir
ætla ekki að gefa neitt eftir árið 2007.
ESP skriðvörn, útvarpsfjarstýring í stýri, samlitur og loftkæling. 7 hátalarar, spilar mp3,
hiti í sætum, aksturstölva og margt, margt fleira.
Hlaðin aukabúnaði
Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 12:00–16:00Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is
* Miðað við 100% bílasamning og greiðslur í 84 mánuði. Aukahlutir á mynd; álfelgur og þokuljós
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is
Fréttir
í tölvupósti