Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 63
Elsku Bogga
frænka er dáin. Hún
háði stutta en hetjulega baráttu við
krabbamein sem hún greindist með í
nóvember. Bogga gerði sér strax
fulla grein fyrir alvarleika sjúkdóms-
ins en var staðráðin í að láta hann
ekki buga sig, eða eins og hún sagði
við mig: „Ég nenni ekki að tala um
þetta, þetta verður bara að hafa sinn
gang og ég hugsa bara um einn dag í
einu.“
Bogga frænka var Strandamaður í
húð og hár, kjarnakona sem oft
þurfti að berjast áfram í lífinu. Á ár-
unum milli 1940 til 1950 fluttu marg-
ir Strandamenn til Skagastrandar í
atvinnuleit og í þeim hópi var föð-
urfjölskyldan mín sem ílengdist hér
þótt taugarnar yfir Húnaflóann hafi
alltaf verið til staðar. Fyrst settist
pabbi að á Skagaströnd, þá nýbúinn
að krækja í mömmu, og síðan komu
Þórunn amma, Kaja, Hebbi og
Bogga með Lólý sína en hún var að
hluta til alin upp hjá Þórunni ömmu
og Hebba frænda.
Bogga eignaðist fjögur börn og
var lengst af einstæð móðir og það
þurfti kjark og dugnað til að koma
barnahópnum upp á þessum erfiðu
árum sem oftar en ekki einkenndust
af tímabundnu atvinnuleysi sem
gerði róðurinn ekki léttari. Oft var
lítið um vinnu en Bogga tók alla
vinnu sem gafst til að framfleyta sér
og börnunum. Bogga fluttist síðan til
Reykjavíkur þar sem hún og Hebbi
bróðir hennar leigðu saman í mörg
ár. Hún vann í eldhúsinu á Landa-
koti þar til hún lét af störfum vegna
aldurs.
Okkur systkinunum þótti afar
vænt um Boggu frænku, hún var
alltaf svo kát og hress við okkur, ein-
staklega skemmtileg frænka og það
var líka gaman að fylgjast með henni
þegar hún var að leika á sviði. Í
minningunni eru þær ófáar ferðirnar
sem við gerðum okkur til hennar og
Björg Jóhanna
Ólafsdóttir
✝ Björg JóhannaÓlafsdóttir
fæddist við Reykja-
fjörð á Ströndum
18. október 1924.
Hún lést á Líkn-
ardeild Landakots-
spítala 1. mars síð-
astliðinn og var
útför hennar gerð
frá Laugarnes-
kirkju 8. mars.
til að smakka bakkels-
ið hennar sem var sér-
lega gott. Mest spenn-
andi jólapakkarnir
komu frá Boggu
frænku, eitthvað sem
hún hafði sjálf búið til,
t.d. dúkar með
skemmtilegum
áprentuðum myndum
sem átti að sauma út
og gerðu það að verk-
um að mér fannst allt í
einu gaman að sauma
út. Eftir að Bogga
flutti til Reykjavíkur
heimsótti ég hana oft og gisti jafnvel
hjá henni og þá áttum við oft góðar
stundir í eldhúshorninu og tókum
góðar „spjalltarnir“.
Síðastliðin 30 ár hefur Bogga átt
góðan félaga og vin, Sturlu Péturs-
son, og var ljúft að sjá hvað þeim
kom vel saman og voru samstíga í að
njóta daganna saman.
Ég vil að lokum þakka Boggu
frænku minni alla hennar gæsku við
mig og mína í gegnum árin og ég
sakna þess að geta hringt í hana og
spjallað um fjölskylduna og landsins
gagn og nauðsynjar. Ég og fjöl-
skylda mín vottum Stulla, Lólý og
fjölskyldu, fjölskyldu Fúsa, Heiðari
og fjölskyldu, og Gunnu og fjöl-
skyldu innilega samúð okkar, minn-
ing um skemmtilega frænku lifir.
Þórunn og fjölskylda,
Skagaströnd.
Kæra Björg.
Mig langar að kveðja þig með
nokkrum fátæklegum orðum um leið
og ég minnist þín. Ég þakka þér og
sambýlismanni þínum fyrir það
hversu vel þið tókuð mér.
Kæra Björg, við áttum nokkrum
sinnum tal saman um andleg mál-
efni, og fór þar saman áhugi okkar á
þeim málum. Fannst mér mjög gam-
an og fróðlegt að hlusta á þína
reynslu af þeim vettvangi og jafn-
framt að segja þér frá minni reynslu
og áhuga á þeim málum, og þótti
okkur báðum mikið til koma um þau
efni.
Nú þegar þú ert frá okkur farin
þakka ég fyrir að hafa fengið að
kynnast þér og viðhorfum þínum til
lífsins og æðri heima. Ég samhrygg-
ist sambýlismanni þínum, börnum
og öðrum aðstandendum. Sofðu rótt
í Drottins faðmi.
Halldór Norðquist.
Siggi er látinn. Hann dó í nótt. Ég
átti bágt með að meðtaka orðin.
Röddin í símanum var Arönku, konu
hans. Hann var nýlega orðinn 79 ára,
nýkominn frá Kenýa en þangað hafði
hann farið með alla fjölskylduna, syn-
ina tvo, konur þeirra og börn. Við vor-
um búnir að þekkjast og vera vinir í
70 ár, eða síðan Siggi fluttist á Hring-
braut 96. Við vorum saman í skóla,
fyrst í Miðbæjarbarnaskólanum og
síðan í Menntaskólanum. Siggi lagði
stund á verkfræði, tók fyrri hlutann í
Reykjavík og seinni hlutann í Kaup-
mannahöfn. Þar kynntist hann
Arönku Bugatsch frá Færeyjum, sem
varð eiginkona hans og förunautur
það sem eftir var ævinnar. Ég man
vel þegar þau giftu sig og héldu upp á
það hjá tengdaforeldrunum, Hall-
grími og Kristínu, en þar var heimili
þeirra um hríð. Síðan lá leiðin til Sví-
þjóðar og þaðan til Nairobi í Kenýa,
Dar es Salaam í Tansaníu, aftur til
Nairobi og að lokum til Kanada þar
sem bróðir Arönku bjó. Öll þessi ár
héldum við sambandi. Í hvert sinn
sem við hittumst vorum við sömu
strákarnir og ólust upp við Hring-
braut og lékum okkur saman. Oft lá
leiðin niður í fjöru. Á þessum göngu-
Sigurður
Hallgrímsson
✝ Sigurður Hall-grímsson fædd-
ist í Reykjavík 25.
febrúar 1928. Hann
andaðist á heimili
sínu í Ottawa í Kan-
ada mánudaginn 5.
mars síðastliðinn og
var útför hans gerð
í Ottawa í 11. mars.
Í formálsorðum
um Sigurð í Morg-
unblaðinu á útfar-
ardegi hans misrit-
aðist nafn konu
Sigurðar en hún heitir Aranka.
Þá misritaðist einnig nafn eins
barnabarns hans. Sonur Hall-
gríms Bjarka heitir Björn en ekki
Bjoer, eins og misritaðist í
blaðinu.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
ferðum spjölluðum við
saman um alla heima
og geima. Ég man eftir
einu atviki þegar við
vorum að ganga Kapla-
skjólsveginn. Það var
kvöld að vetrarlagi.
Tunglið fullt. Ég fleytti
þá fram þeirri hug-
mynd hvort menn
myndu nokkurn tíma
fara til tunglsins. Það
þóttu þá hugarórar. Ég
var þá nýbúinn að lesa
bókina Úranus eftir
Flammarion, sem gef-
in var út í Kaupmannahöfn af Fræða-
félaginu.
Tímarnir breytast og mennirnir
með. En eitt hefur ekki breyst. Það
eru mannleg sambönd, hvort heldur
er vinátta eða ástir, það eru mikil-
vægustu hlutskipti hverrar mann-
veru. Það var hlutskipti Sigga að vera
gott til vina um allan heim og alltaf
átti hann ást og atlæti konu sinnar,
Arönku. Hún studdi alltaf við bakið á
honum í blíðu og stríðu.
Ég kveð nú góðan og tryggan vin.
En minningin lifir. Ég óska eftirlif-
andi konu hans, Arönku og sonunum
Bjarka og Sigtryggi ásamt fjölskyld-
um alls góðs á komandi árum.
Guð blessi ykkur öll.
Ásgeir Ingibergsson, Kanada
Látinn er í Ottawa í Kanada æsku-
vinur minn og skólabróðir Sigurður
Hallgrímsson, verkfræðingur, 79 ára
að aldri. Við vorum leikfélagar frá 7
ára aldri og Sigtryggur bróðir hans,
sem var einu og hálfu ári yngri en
þeir voru mjög samrýndir bræður og
var ævinlega getið í sömu andrá á
æskuárunum. Sigtryggur lést 65 ára
að aldri og hafði þá verið ekkjumaður
í 9 ár. Kona hans var Ragnhildur
Jónsdóttir frá Nýjabæ á Seltjarnar-
nesi. Við félagarnir, ásamt vini okkar
Ásgeiri Ingibergssyni, áttum
skemmtilega æsku og fylgdumst að
til stúdentsprófs, vorum heimagang-
ar hver hjá öðrum. Ævinlega tóku
foreldrar Sigurðar vel á móti okkur
félögunum. Hallgrímur Sigtryggsson
og Kristín Sigurðardóttir voru Norð-
lendingar, hann úr Eyjafirði og hún
frá Yztafelli í Köldukinn. Þau létust
bæði háöldruð, hann 96 ára og hún
tæplega 95 ára. Systir Sigurðar, Vig-
dís f. 1936, er gift Lars Nilsson í
Märsta í Svíþjóð. Þorsteinn er yngst-
ur, f. 1942. Kona hans er Margrét
Ásólfsdóttir.
Við fórum marga "svaðilförina"
saman, t.d. í gönguferð inn á Arnar-
vatnsheiði 16 ára gamlir og gengum
um Mývatnsöræfi frá Dettifossi að
Reykjahlíð í Mývatnssveit er við vor-
um 17 ára.
Eftir fyrrihlutapróf í verkfræði
heima fór Sigurður til Kaupmanna-
hafnar í framhaldsnám. Þar kynntist
hann eiginkonu sinni , Arönku Bu-
gatsch, sem uppalin var í Færeyjum.
Móðir hennar var þarlend en faðir
hennar austurrískur. Voru þau hjón
alla tíð mjög samrýnd, vinmörg og fé-
lagslynd. Synir þeirra eru Bjarki og
Sigtryggur. Þau hófu búskap í
Reykjavík en fluttu til Malmö í Sví-
þjóð fljótlega. Vann hann þar hjá
Skånska Sementgjuteriet í nokkur ár
en fór svo á vegum Danida, dönsku
þróunarhjálparinnar, til Kenya. Þar
áttu þau heima í 20 ár alls. Höfuðvið-
fangsefnið var hönnun vegakerfisins.
Í millitíðinni voru þau tvö ár í Tanz-
aníu. Til Ottawa í Kanada fluttust þau
1996 og hafa búið þar síðan. Þar á
yngri bróðir Arönku, Richard, heima
og Bjarki býr í næstu götu. Sigtrygg-
ur er búsettur í Toronto. Þeir eru
báðir kvæntir og eiga börn.
Sumarið 2005 heimsótti ég Sigurð
og Arönku og gisti hjá þeim í góðu yf-
irlæti í eina viku. Fóru þau með mig
vítt og breitt um nágrennið og báru
mig á höndum sér.
Sigurður var heilsugóður alla ævi
þar til hinsta kallið kom, aðfaranótt 5.
mars sl., en þá fékk hann heilablæð-
ingu og lifði ekki af nóttina. Þau voru
nýlega komin heim úr rúmlega mán-
aðarferðalagi til Kenya með stórfjöl-
skylduna og hittu þar gamla vini og
skjólstæðinga. Höfðu þau bundist
starfsfólki sínu þar vináttuböndum og
reynst þeim frábærlega vel. Sigurður
varð 79 ára hinn 25. febrúar og átti ég
langt símtal við hann þar sem hann
sagði mér frá vel heppnaðri ferð.
Ég flyt Arönku og fjölskyldu mínar
innilegustu samúðarkveðju og þakka
áratuga langa vináttu.
Sigurður var jarðsettur í Ottawa
sunnudaginn 11. mars sl.
Hörður Þorleifsson
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*% Elsku Árni, það
verður skrítið að upp-
lifa þetta sumar án
þess að þú komir í heimsókn með
alla þína hreinskilni og skemmtun.
Ég á svo margar skemmtilegar
Árni Breiðfjörð Guðjónsson
✝ Árni BreiðfjörðGuðjónsson
fæddist í Ytri-
Drápuhlíð í Helga-
fellssveit 4. júlí
1919. Hann lést á
dvalarheimilinu Ási
í Hveragerði 13.
mars síðastliðinn og
var jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju
23. mars.
minningar um þig.
Alltaf komstu öllum
til að hlæja.
Það fyrsta sem þú
vildir alltaf gera þeg-
ar þú komst í sveitina
var að taka til í bíl-
skúrnum. Alltaf
varstu að gera eitt-
hvað, settist stundum
í bílinn hjá mömmu
og beiðst eftir bíltúr-
um.
Eitt sumar rigndi
svo mikið að það log-
aði ekki á sígarett-
unni en þú fannst fljótt ráð við því,
fórst inn í bílskúr og reyktir þar við
bensínbrúsana alsæll.
Eitt sinn fórst þú með mömmu út
í búð og þú leitaðir um alla búðina
að súkkulaðirúsínum því þér fannst
þær svo góðar, spurðir svo mömmu
hvar þær væru en hún svaraði að
þær væru ekki til. Svo þegar hún
kom að kassanum og var að tína
vörurnar upp úr körfunni, komst þú
askvaðandi og sagðir hátt og skýrt
að þú færir nú aldrei með henni aft-
ur í búð, svo hún varð að fara aftur
inn í búðina og leita með þér.
Og ef einhver tuðaði yfir reyking-
unum þínum þá sagðist þú reykja
að læknisráði.
Ég þakka guði fyrir að hafa átt
svona skemmtilegan frænda sem ég
gleymi aldrei.
Benný.
Elsku Snjóka mín.
Ég varð fyrir áfalli þegar ég
frétti að þú værir dáin.
Mér fannst hjarta mitt stoppa
Snjólaug Elín Hermannsdóttir
✝ Snjólaug ElínHermannsdóttir
fæddist 9. ágúst
1940 á Syðra-
Kambhóli í Eyja-
firði. Hún andaðist
á heimili sínu, La
Marina á Spáni,
laugardaginn 3.
mars síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Keflavík-
urkirkju 16. mars.
þegar Dóri eiginmað-
ur þinn hringdi og
tilkynnti mér þessa
sorgarfrétt. Þú
reyndist mér sem
besta móðir. Og ég
gat leitað til þín með
hvað sem var. Ég gat
líka talað um allt við
þig.
Þú virtist skilja líf-
ið svo vel. Þú varst
full af hjartagæsku
og elskulegheitum.
Venjulega var mikill
gestagangur hjá ykk-
ur hjónum. Þú varst elskuð af öll-
um hér í La Marína á Spáni. Mér
finnst ég hafa verið svo heppin að
kynnast þér. Þú hafðir mikil áhrif
á líf mitt. Ég gat ekki annað en
elskað þig – þú varst svo heil á öll-
um sviðum og hafðir skemmtilegan
húmor og lúmskt gaman af því
sem fyrir augu bar. Ekki gat ég
skilið alla þá þolinmæði sem þú
hafðir. Þvílíkt samansafn af þol-
inmæði hef ég aldrei á ævi minni
séð.
Að kynnast svona góðri mann-
eskju eins og þér á lífsleiðinni
hendir ekki alla. Ég var heppin.
Elsku Snjóka mín. Ég mun aldrei
gleyma þér, en hugsa um þig á
hverjum degi. Takk fyrir að þú
varst þú.
Sigríður Ingólfsdóttir,
La Marína á Spáni.