Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 72
Á þeirri plötu er hún
við sama heygarðs-
hornið í herhvöt til kvenna
að krefjast aukinna rétt-
inda… 78
»
reykjavíkreykjavík
Tim Kingsbury er einn afstofnendum Arcade Fireog leikur á bassa og gítarauk þess að taka stöku
sinnum í hljómborð. Þessi kanadíska
hljómsveit hefur verið linnulítið á
milli tanna músíkpælara allt síðan
fyrsta breiðskífa hennar, Funeral,
kom út árið 2004 og hefur lofaustur-
inn verið með miklum ólíkindum. Á
örskammri stundu varð sveitin ein
„heitasta“ hljómsveit heims og
kepptust kanónur eins og Bono og
Bowie við að mæra hana í bak og fyr-
ir. Menn biðu því skjálfandi af eft-
irvæntingu eftir næstu plötu, en hún
kom út í byrjun mars, og ber heitið
Neon Bible. Arcade Fire er nú á
miðju hljómleikaferðalagi vegna
hennar og næsta furða að Kingsbury
hafi gefið sér tíma í spjall, en sveitin
er einkar feimin við fjölmiðla og lítið
fyrir viðtöl.
Á vegum úti
-Hvað segirðu Tim, er allt í standi
hjá ykkur núna?
„Já, já … en við þurftum að skera
niður þennan Evróputúr vegna veik-
inda Win’s. En hann er allur að koma
til. Þannig að við verðum í fullu fjöri
þegar Norður-Ameríkutúrinn hefst í
enda þessa mánaðar.“
– Jæja … já, og til hamingju með
plötuna nýju …
„Takk fyrir!“
– Var erfitt að landa henni?
„Aaa … þetta var mikil vinna. En
við erum öll mjög ánægð með hana.“
– Fannstu nokkuð fyrir pressu
vegna góðs gengis Funeral?
„Ööö … nei, ég held ekki … öll
pressan var sjálfsköpuð. Við vorum
ekki með of miklar áhyggjur af því
hvernig fólk tæki henni. Það sem var
Jaðarhetjur Kanadíski sextettinn Arcade Fire er af mörgum talin merkilegasta hljómsveit samtímans. (Tim Kingsbury er lengst til vinstri.)
Út með kirkjubekkina
Umtalaðasta jaðarrokksveit nútímans, Arcade
Fire, stendur nú í ströngu við að fylgja eftir
nýrri plötu sinni, Neon Bible. Á ýmsu hefur
gengið og meðal annars þurfti að aflýsa því sem
eftir er af Evróputúrnum sökum veikinda leiðtog-
ans, Win Butler. Arnar Eggert Thoroddsen
ræddi við Tim Kingsbury, einn liðsmanna, sem
var þó sallarólegur yfir þessu öllu saman.