Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 53 RAUÐAMÝRI 1 - MOSFELLSBÆ 24 ÍBÚÐIR Í LYFTUHÚSI OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 13:00-15:00 • Glæsilegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir • Hús klætt að utan, lágmarks viðhaldskostnaður • HTH innréttingar, AEG tæki, allt fyrsta flokks • Hiti í gólfum, sérstök hljóðeinangrun milli hæða • Sérinngangur og sérmerkt stæði í bílakjallara • Stórglæsilegt útsýni yfir Sundin, Esjuna o.fl. • Afhending júni 2007 • Verð frá 22,9 millj Ágústa Hauksdóttir, Freyja Sigurðardóttir, Magnús Emilsson, löggiltir fasteignasalar – Sími 520 7500 – Fax 520 7501 – www.hraunhamar.is STJARNAN RE/MAX Stjarnan kynnir: Atvinnurekstur í eigin húsnæði á besta stað í bænum. Um er að ræða sjoppu/myndbandaleigu/veitingaaðstöðu sem er staðsett við eina annasömustu umferðargötu borgarinnar. Fyrirtækið er staðsett í mikilli íbúabyggð og mörg fyrirtæki í næsta nágrenni meðal annars LSH, Blóðbankinn og Domus Medica svo fátt eitt sé nefnt. Góð bílastæði og mjög gott aðgengi er að húsinu. Miklir möguleikar á að auka veltu umtalsvert. Húsið var allt tekið í gegn sumarið 2006 m.a sprunguviðgert, málað, skipt um þak og rennur og niðurföll ofl ofl. Einungis kemur til greina að selja húsnæði og rekstur saman. Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Björgvin í síma 8200747 eða bjorgvin@remax.is Sumarbústaður í Snæfoksstaðalandi við Vaðnes Glæsilegt útsýni – Mikill gróður Þessi fallegi sumarbústaður er til sölu. Bústaðurinn stendur í landi Skógræktarfélags Árnes- sýslu við Vaðnes í um 45 mín. akstursfjarlægð frá Reykjavík. Hann er að mestu leyti á einni hæð en auk þess er steyptur kjallari undir hluta bústaðarins. Á 1. hæð er m.a. stór stofa, eldhús, bað, 3 herbergi, forstofa o.fl. Í kjallara er inntak fyrir hitaveitu, geymslurými o.fl. Við bústaðinn er sólpallur (sólpallar) um 150 fm að stærð og þar er heitur pottur og dúkkuhús. Öll húsgögn í bústaðnum fylgja. Bústaðurinn stendur á 11.000 fm gróinni lóð sem er vaxin miklum birkigróðri, grenitrjám, öspum, furu, lerki o.fl. Glæsilegt útsýni m.a. yfir Hvítá og land Skógræktarinnar. (Bústaðurinn stendur milli 2ja golfvalla í um 5-15 mín. akstursfjarlægð). Þessi sumarbústaður stendur á einu eftirsóttasta sumarbústaðasvæði sunnanlands. Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÉG VARÐ mjög hissa þegar Steingrímur Sigfússon, formaður Vinstri grænna, kærði Fréttastof- una og Kastljós fyrir útvarpsstjóra fyrir hlutdrægi vegna þess að hann fékk ekki að mæta Valgerði Sverrisdóttur í Kastljósi. Ég og fleiri hafa lengi verið þeirrar skoðunar að ef einhver nyti forréttinda hjá útvarpi og sjónvarpi væri það Steingrímur og Vinstri grænir. Þess vegna kom mér þetta á óvart. Á tímabili kvað svo rammt að þessu að pólitísk frétt var ekki sögð í útvarpi eða sjónvarpi nema leitað væri álits Steingríms á henni. Oft taldi ég að frekar hefði átt að leita álits stærsta stjórnarandstöðuflokksins eða annarra en Steingríms og Vinstri grænna. Upp á síðkastið hefur þetta þó batnað nokkuð. Eitt dæmi um fréttaflutning. Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins, flutti frumvarp um allsherjarnýt- ingu auðlinda Íslands og gat þess um leið að hann teldi að um þetta nauðsynjamál gæti orðið þjóð- arsátt. Þetta var augljóslega stór- mál sem þurfti að segja frá og það var gert. Leitað var álits Stein- gríms og fleiri sem tóku afstöðu. Steingrímur svaraði með stór- yrðum um gagnsleysi þessa frum- varps og móðgun við orðið þjóð- arsátt. Áliti Steingríms var síðan út- varpað og sjónvarpað það sem eft- ir lifði kvölds. En engar skýringar komu fram um efni frumvarpsins sjálfs. Áheyrendur sátu uppi með það að aðalatriðið væri ekki frum- varpið, heldur að Steingrímur og Vinstri grænir væru á móti því og að þetta væri vont frumvarp. Mjög oft ber það við að þegar rætt er við þátttakendur á fundum og ráðstefnum að þá er rætt fyrst við Vinstri græna jafnvel þótt þeir séu ekki aðilar að fundunum, sam- anber ráðstefnu FUF. Útvarpsstjóri, sem ég ber fyllsta traust til enda ættaður vestan úr Aðalvík, fékk Þórhall Gunnarsson, ritstjóra Kastljóss, til að svara kæru Steingríms og í svari sínu segir hann. „Ríkisútvarpið er vettvangur ólíkra skoðana það veit Stein- grímur Sigfússon manna best. Enda eru fáir ef nokkrir sem fengnir hafa verið jafnoft til að tjá sig um málefni líðandi stundar og hann.“ Þetta sannar það sem áður segir og að almannarómur þar um er réttur. Eftir að starfsmenn fréttastofu útvarpsins komust á þá skoðun að það væri á þeirra verksviði að ráða yfirmann stofnunarinnar finnst mér að hlutdrægni hafi aukist og þá helst í garð framsóknarmanna, eins og við þá eigi þeir sökótt. Annars er ég sammála vini mín- um sem hefur þá skoðun að sumir menn eru það pólitískir að þeir geta ekki unnið hjá hlutlausri stofnun þó þeir séu allir af vilja gerðir til að standa sig. Gaman verður að sjá hvernig hið nýja skipurit Ríkisútvarpsins tek- ur á þessum málum. GUNNAR SVEINSSON, Keflavík. Pólitískar fréttastofur Frá Gunnari Sveinssyni Í BLAÐINU laugardaginn 14. apríl mátti sjá dálk sem nefnist „Klippt & skorið“, en þar ritaði Þröstur Emilsson, fréttastjóri Blaðsins, stuttar greinar um ýmis málefni. Þó helst pólitík. Þar stendur: „Landsfundur Sjálf- stæðisflokksins stendur nú sem hæst í Laugardalshöll. Sú ný- breytni var tekin upp að þessu sinni að stilla upp fánum með til- vitnunum í fleyg orð allra for- manna flokksins gegnum tíðina. Mörg hver eru ódauðleg og stútfull af visku. Davíð Oddsson, forveri Geirs H. Haarde, var þó hvergi sjá- anlegur, hvorki fáni hans né per- sóna. Geir flutti kveðju frá Davíð í setningarræðu […]“ Hið rétta er að við vinstri inn- gang í salinn í Laugardalshöll voru tveir fánar með tilvitnunum, annars vegar í Geir H. Haarde og hins vegar í Davíð Oddsson, en sú til- vitnun er frá 1993. Hljómar hún svo: „Orðið vonleysi er ekki góð ís- lenska, því það eitt er góð íslenska að trúa á landið, fólkið sem það byggir og framtíð þess. Það gerir Sjálfstæðisflokkurinn.“ Þetta dæmi er þó því miður að- eins eitt af mörgum sem sjá má í fríblöðunum svokölluðu. GUNNAR GÍSLASON, Suðurgötu 13, Akranesi. Stað- reyndavill- ur í íslenskum fríblöðum Frá Gunnari Gíslasyni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.