Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 84
SUNNUDAGUR 22. APRÍL 112. DAGUR ÁRSINS 2007
Heitast 8 °C | Kaldast 0 °C
Strekkings NA-átt
allra nyrst, annars
fremur hæg SA-átt.
Slydda eða snjókoma f.
norðan, þokusúld S til.
» 8
ÞETTA HELST»
Sammála um gildi
þjóðaratkvæðagreiðslu
Formenn allra stjórnmálaflokka á
Íslandi segjast vilja þjóðaratkvæða-
greiðslu í mikilvægum málum. For-
menn stjórnarflokkanna eru þó var-
kárir í yfirlýsingum sínum.
»Forsíða
Grófhreinsun lokið
Grófhreinsun gatna og lóða á
Sauðárkróki er að mestu lokið, en
hreinsun á svæðinu mun ekki ljúka
fyrr en frost verður farið úr jörðu.
Ekki hefur verið lokið við að meta
skemmdir á húsum og tjón á gróðri.
»4
Borgin vill kaupa
Reykjavíkurborg vill kaupa hús-
eignirnar sem brunnu í miðborginni
sl. miðvikudag. Áform eru um að
taka strax til við uppbyggingu og
henni á að ljúka á tveimur árum. »2
Humar til Belgíu
Humarhótel hefur verið stofnað á
Höfn í Hornafirði með það að mark-
miði að flytja lifandi humar utan.
Stærstu markaðirnir eru í Frakk-
landi og Belgíu. »4
Múr reistur í Bagdad
Nýjasta útspil Bandaríkjamanna
til að reyna að stilla til friðar í
Bagdad í Írak er að reisa múr á milli
hverfa sjíta og súnníta í norðurhluta
borgarinnar, en súnnítar í Adham-
iya-hverfinu eru ekki ánægðir með
gang mála. » Forsíða
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Biðin eftir barnaefninu
Staksteinar: Samfylking tapar…
Forystugreinar: Reykjavíkurbréf |
Skortur á vatni
UMRÆÐAN»
Alþjóðleg könnun um traust
Atvinnu- og raðauglýsingar
Staða skoðanakannana
Opið bréf til markaðsstjóra Vífilfells
Stétt með stétt?
Flugvöllur á Hólmsheiði
ATVINNA»
KVIKMYNDIR»
Myndin Breach fær fjór-
ar stjörnur. »75
Í tónlist á sunnu-
degi fjallar Árni
Matthíasson um
söngkonuna Oumou
Sangaré sem kemur
á Vorblót. »78
TÓNLIST»
Kemur
frá Malí
FÓLK»
David Beckham er kyn-
þokkafyllstur. »75
TÓNLIST»
SÁÁ stendur fyrir Snúr-
unni. »77
Sæbirni Valdimars-
syni þykir lítið til
hrollvekjunnar The
Messenger koma og
gefur henni tvær
stjörnur. »76
Slappur
sendiboði
KVIKMYNDIR»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Vopnaður maður í NASA
2. Baldwin biðst afsökunar
3. Fjölskylda fjöldamorðingjans
4. Baldwin hundskammar
„ÉG ER svona það sem kallað er þúsundþjala-
smiður og þegar maður er að vinna við eitthvert
kerfi sem virkar ekki alveg, þá er bara að demba
sér í að kippa því í liðinn,“ segir Eiríkur Finnsson
matreiðslumaður, en kerfið sem hann vísar til er
nýtt tölvukerfi sem hann þróaði fyrir mötuneyti
Breiðholtsskóla. Tæp tvö ár eru síðan hann hóf
störf í mötuneytinu og hann sá fljótlega að kerfið
sem notað var við afgreiðslu skólamáltíða var
óhentugt. Nýja kerfið hefur reynst vel og hug-
mynd Eiríks var að þróa kerfi þar sem börnin
þyrftu ekki að bera neitt á sér. „Sex ára krakkar
sem fara heim til sín í þriggja gráða frosti og
gleyma úlpunni í skólanum eiga erfitt með að
henda reiður á einhverju skírteini,“ segir Eiríkur.
Skólastjóri Breiðholtsskóla, Sigþór Magnússon,
er ánægður með frumkvæði Eiríks.
Kerfið er hagkvæmt að því leyti að það gerir
starfsfólki mötuneytisins auðveldara fyrir að
skipuleggja máltíðir og áætla fjölda matar-
skammta. Hægt er að skrá inn veikindi og fjar-
vistir nemenda og allt bókhald er skilvirkara og
fljótlegra. „Foreldrar hafa einnig gagn af þessu
kerfi því auðvelt er að fylgjast með mataræði
barna sem eru í áhættuhópi og hugsanlega með át-
röskunarsjúkdóma,“ segir Sigþór skólastjóri. Það
kemur til af því að kerfið skráir ef börn koma og fá
ábót og borða vel.
Eyrún Torfadóttir, ráðgjafi fyrir skólamötu-
neyti hjá Reykjavíkurborg, segir að ef svona
kerfi yrði sett upp í fleiri skólum gætu mat-
vælafræðingar og jafnvel sálfræðingar nýtt upp-
lýsingarnar til að gera kannanir á mataræði
barna. | 40
Dellukarl í mötuneyti
Eiríkur Finnsson matreiðslumaður hóf störf í mötuneyti Breiðholtsskóla fyrir
tæpum tveimur árum og hefur þróað nýtt tölvukerfi sem hentar ungum börnum
Morgunblaðið/Ómar
Sósur Margir þekkja matreiðslumanninn Eirík
af sósunum sem bera nafn hans: E. Finnsson.
Í HNOTSKURN
»Nýja kerfið virkar þannig að þegar röð-in kemur að nemanda slær hann inn
leyninúmer á lítið lyklaborð
»Ef búið er að greiða fyrir máltíðir blikk-ar grænt ljós, ef ekki hefur verið greitt
er ljósið rautt.
»Á skjánum birtast upplýsingar umhvort viðkomandi hafi sérþarfir í mat-
aræði.
»Kerfið skráir jafnframt hvort börnborða vel af matnum og fá ábót.
MEÐLIMIR
hljómsveitarinn-
ar Sigur Rósar
eru byrjaðir að
taka upp nýja
plötu sem kemur
væntanlega út
seint á næsta ári.
Frá þessu greinir
umboðsmaður
hljómsveitarinnar, John Best, í við-
tali í Morgunblaðinu í dag.
Aðdáendur sveitarinnar þurfa
samt ekki að bíða svo lengi, því þeir
fá nóg að bíta og brenna á árinu,
væntanlegar eru frá Sigur Rós
DVD-myndir, geisladiskar, bók í
tímaritsformi og ljósmyndabók svo
fátt eitt sé nefnt. John segir að
skýringin á þessum afköstum sé að
tekist hafi að ljúka ýmsum verk-
efnum sem séu búin að vera á
teikniborðinu í talsverðan tíma. Í
næsta mánuði tekur hljómsveitin
upp nýja skífu með órafmögnuðum
útgáfum af lögum, sem hún hefur
áður gefið út, í bland við lög sem
hafa ekki komið út til þessa. Kvik-
mynd um ferð Sigur Rósar um Ís-
land í fyrrasumar verður síðan
frumsýnd í haust. | 74
Afkasta-
mikil
Sigur Rós
Von á nýrri plötu
í lok næsta árs
ÞÆR voru einbeittar á svip, Alda
Magnúsdóttir og Unnur Benedikts-
dóttir úr Korpuskóla sem í gær
tóku þátt í fyrstu kokkakeppni
grunnskóla Reykjavíkur sem fram
fór í Menntaskólanum í Kópavogi.
Fulltrúar tíu grunnskóla tóku
þátt í keppninni og var verkefni
hvers tveggja til þriggja manna
nemendahóps að elda aðalrétt á 60
mínútum. Hráefnið í réttinn mátti
ekki kosta meira en 1.000 krónur,
en auk þess máttu nemendur koma
með tvenns konar hráefni, greitt úr
eigin vasa, borðbúnað og skraut.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrsta kokkakeppni skóla