Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í UMRÆÐUM um
auðlindafrumvarpið
virtust allir sammála
um að auðlindir lands-
ins ættu að vera í
sameign þjóðarinnar.
Málið strandaði á því
að hugtakið þjóð-
areign þótti ekki
nægilega skýrt og
nýtingarréttur átti að
ganga eignarrétti
þjóðarinnar framar. Í
umræðunum var lítt
vikið að því að auðlind
er auðlind vegna þess
að hún ber arð, fjárhagslegan eða
t.d. fólginn í ánægju af óspilltri
náttúru, ómenguðu lofti og útsýni
o.s.fr. Umræðan einkenndist af
þjóðerniskennd og rann út í sand-
inn þegar á það reyndi að fjár-
hagslegur ávinningur
er mál málanna.
Ágreiningur um
stóriðju hefur verið
uppi alllengi og náði
hápunkti í átökum um
stækkun álvers í
Straumsvík. Fyrri
áfangar voru deilur
um Eyjabakka og
Kárahnjúkavirkjun og
aðrir eru í vændum.
Þetta eru átök um
auðlindir þjóðarinnar
og hvernig eigi að
nýta þær og hver eigi
að njóta arðs af þeim. Umræðan er
að því leyti sérkennileg er að litlar
tilraunir eru gerðar til að skil-
greina þessar auðlindir og meta
hvers virði þær eru.
Það er ekki einfalt að meta þann
arð sem felst í óspilltri náttúru,
hreinu lofti o.s.fr. Þetta eru tor-
mælanlegar stærðir og verðmæta-
mat einstaklinga er misjafnt með
aðferð sem nefnd er skilyrt verð-
mætamat má þó gefa hugmynd um
fjárhagslegt gildi slíkra þátta.
Annar arður af auðlindum er mæl-
anlegri, svo sem efnahagsleg áhrif
af orkusölu. Auðvelt er að leggja
mat á arð af auðlind, sem fjárnýtt
er til orkusölu en auk hins fjár-
hagslega arðs skiptir máli hvar
hann lendir, einkum það hvort
hann rennur til þjóðarinnar og/eða
innlendra aðila eða hvort erlendir
aðilar njóta arðsins.
Mat á fjárhagslegum arði af
auðlind sem nýtt er til orkufram-
leiðslu er einfalt og auðveldara
fyrir einhæfa stóriðju en þegar
notin eru fjölþættari og skýrari
skil eru milli íslenskra og erlendra
aðnjótenda arðsins. Tiltölulega
auðvelt er því að meta þann virð-
isauka sem verður til við álfram-
leiðslu hér á landi en hann er
markaðsvirði framleiðslunnar að
frádregnu verðmæti þess efnis
sem við framleiðsluna er notað, og
deila honum niður á þá sem hann
fá. Sé orkuver eini orkugjafi fyrir
álver og selji ekki öðrum orku lítur
dæmið þannig út.
Virðisauki af álframleiðslunni er
söluverð álsins að frádregnum
kostnaði við kaup á aðföngum. Að-
föng til álframleiðslu eru að mestu
keypt frá útlöndum, þ.e. súrál og
rafskaut, nema rafmagn, sem
keypt er á Íslandi. Virðisauki við
álframleiðsluna er mismunurinn á
söluverði álsins og aðfangakostn-
aði.
Virðisauki í starfsemi skiptist í
Auðlindir og arður
Indriði H. Þorláksson skrifar
um auðlindir þjóðarinnar »Hver er arðurinn afnáttúruauðlindum
sem nýttar eru sem
orkugjafar fyrir álfram-
leiðslu og hvert rennur
arðurinn? Fyrri hluti.
Indriði H. Þorláksson
Frábært fjárfestingartækifæri
6-7 herbergja, 175 fm sérhæð með sérinngangi
sem hentar vel til herbergjaútleigu. Áætlaðar
leigutekjur allt að 360.000 kr. Frábær staðsetning í 108 Rvk.
Næg bílastæði.
Upplýsingar gefur Sigurður í síma 896 2312
Fr
u
m
Fjárfestingartækifæri - 108 Rvk
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
OPIÐ HÚS Í DAG
ÞORLÁKSGEISLI 92 - ENDARAÐHÚS
KL. 15 –16
Vel skipulagt endaraðhús á 2 hæðum með innbyggðum bílskúr
alls 176,5 fm. Á efri hæð er forstofa, baðherb., stofa/borðstofa,
eldhús og bílskúr. Neðri hæð: Gangur, baðherb., 10 fm þvotta-
herb. sem er ekki í fm-tölu, 4 svefnherb. eitt m/fataherbergi.
Útgengi í garð úr svefnherb.
Verð: 48.900.000.-
Sveinn Eyland S. 6-900-820 frá Fasteign.is verður á staðnum.
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
KJÖRIN EIGN FYRIR HESTAFÓLK
GRUNDARHVARF VIÐ ELLIÐAVATN
Einstök eign fyrir hestafólk. Nýlegt einlyft einbýlishús (frá SG Selfossi, byggt 1997) 106 fm ásamt 38,3
fm bílskúr (hefur verið breytt í hesthús f/6 hesta. Húsið er með kjallara og stendur á 1,930 fm mjög fal-
legri lóð sem gefur óendanlega mikla og skemmtilega möguleika á bæði stækkun íbúðarhúss, bygg-
ingu sérhesthúss og fl. því lóðin er þannig í laginu með mjög góðu aðgengi og fallegu útsýni.
Falleg aðkoma er við húsið og hellulögð bílastæði með hitalögnum
ásamt fallegum gróðri og ræktarmiklum trjám.
TILBOÐ ÓSKAST Í EIGNINA.
Nánari upplýsingar gefur Ólafur B Blöndal, lögg. fasteignasali í síma 6-900-811.
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Sími 533 4800
Safamýri 91 – Opið hús
94,1 fm glæsileg og mikið endurnýjuð, 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í fal-
legu þríbýli við Safamýri. Sérinngangur. Eignin skiptist í anddyri, eldhús,
stofu, borðstofu, herbergisgang, barnaherbergi, hjónaherbergi og baðher-
bergi. Sérþvottahús og geymsla. Glæsilegar innréttingar frá JKE.
Eign í sérflokki. V. 29,9 m.
Opið hús í dag milli kl. 15.00 og 16.00.
Asparhvarf
564,4 fm glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum á frábærum útsýnisstað
við Asparhvarf í Kópavogi. Húsið stendur hátt með útsýni yfir Elliðavatn.
Eignin stendur á 1896 fm lóð með mikla möguleika. Húsið er tilbúið að utan
en fokhelt að innan. Svalir eru af efri hæð eru ca 100 fm með
glæsilegu útsýni. Lóð er grófjöfnuð. V. 125,0 m.
hamraborg 10 l 200 kópavogur l sími 414 6600 l fax 414 6601
reynir erlingsson l löggiltur fasteignasali l nytt@nytt.is
ytt heimilin ®
w w w . n y t t . i s