Morgunblaðið - 22.04.2007, Side 62

Morgunblaðið - 22.04.2007, Side 62
62 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Kæri vinur, nú ertu búinn að fá hvíldina eftir langa og erfiða baráttu við sjúkdóminn sem við öll hræðumst, krabbamein, þú greind- ist fyrir þremur árum og barðist fram á síðasta andartak. Okkur líður svo vel með að hafa fengið að vera hjá þér síðustu vikuna sem þú lifðir, við vöktum yfir þér dag og nótt og vorum hjá þér þegar þú skildir við, ásamt Indu og Völu og auðvitað henni Gunnu þinni og börnunum ykkar sem voru þér svo kær. Okkur langar að minnast stund- anna með ykkur Gunnu. Ég var litla systir systra minna og nýtti mér það svo sannarlega og geri enn, ég var svo heppin að fá að vera partur af lífi ykkar sem unglingur og gat alltaf leitað til ykkar hvort sem var í sorg eða gleði og það var ekki sjaldan sem ég fékk að gista hjá ykkur, fyrst í Álfheimunum og svo á Bárugöt- unni, það voru oft skemmtilegir Jón Magnús Steingrímsson ✝ Jón MagnúsSteingrímsson fæddist í Reykjavík 10. júlí 1940. Hann lést á heimili sínu 13. mars síðastlið- inn. Útför Jóns var gerð frá Hallgríms- kirkju 21. mars sl. í kyrrþey að ósk hins látna. tímar þá, og svo voruð þið alltaf til í að lána mér bílinn ykkar eftir að ég fékk bílpróf. Purkey átti allan þinn hug frá því þú varst lítill strákur og þú byggðir ykkur þar sumarhús sem þið fjölskyldan notuðuð mikið. Það varð þér mikið áfall þegar þú ásamt pabba þínum lentir í slysi í Bátsvík- inni fyrir utan Purkey, þú komst við illan leik í land en pabbi þinn fórst. Þótt þú talaðir ekki mikið um það var þetta þér ofarlega í huga alla ævi, að geta ekki bjargað pabba sínum er mikið áfall og enginn getur ímyndað sér hvað þetta hefur tekið mikið á þig. Eftir að ég kynntist svo honum Magga vorum við oft hjá ykkur í Skagaselinu, ekki voru þær fáar ferðirnar í Purkey þegar strákarnir okkar voru litlir. Við fórum líka nokkrar ferðir í kringum landið með tjöldin okkar og það var undantekn- ingarlaust besta veðrið á landinu þegar við ferðuðumst saman. Við gleymum aldrei ferðinni í Hrífunes sem átti að vera yfir tvær nætur, eingöngu með stuttbuxur og léttan fatnað, því það var búið að spá svo góðu veðri, en þegar við vöknuðum eftir fyrstu nóttina var komin helli- rigning og við ákváðum að færa okk- ur örlítið austar og sjá hvort ekki væri betra veður, þessi ferð endaði með því að við keyrðum í 10 klst. í grenjandi rigningu og þoku austur í Atlavík og þar vorum við í 25–30 stiga hita í tvo daga og enduðum í góðu ferðalagi um landið í frábæru veðri. Við fórum líka til Minneapolis þar sem þú og Maggi báruð pokana fyrir okkur Gunnu, því okkur þótti svo gaman að versla í Mall of America, en ykkur var ekki skemmt. Við Maggi eigum eftir að sakna þín, Nonni. Elsku Gunna og börn, missir ykk- ar er mikill, en minningin um góðan dreng lifir. Fjóla. ✝ Herdís RagnaClausen fæddist á Eskifirði 11. júlí 1924. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands 6. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Herdís Jón- atansdóttir og Ing- olf Clausen. Herdís var þriðja í röð átta systkina; hin eru Ellen Fredrikke, látin, Jóhann Thor- ger, látinn, Kat- hinka Emelía Margrét, Jónatan Sólmundur, Arnheiður Dröfn, Anna Erla og Alrún Sigurbjörg. Hinn 24. september 1944 giftist Herdís Tryggva Sigjónssyni, f. 10. Stúlka, f. 1950, lést sama ár. 5) Bjarki Elmar, f. 1951, kvæntur Helgu Haraldsdóttur, þau eiga fjögur börn. 6) Herdís Tryggvína, f. 1953, hún er gift Stephen John- son, þau eiga þrjú börn, 7) Halldór Ægir, f. 1960, kvæntur Wanvisa Susee, þau eiga einn son. 8) Tryggvi Ólafur, f. 1965, kvæntur Helgu Steinarsdóttur, þau eiga tvær dætur og fjögur barnabörn. Þau Herdís og Tryggvi bjuggu allan sinn búskap á Ránarslóð 8 á Höfn. Þar sem Tryggvi var sjó- maður og var löngum stundum að heiman, var Herdís heimavinnandi meðan börnin voru að komast á legg. Seinna vann hún hjá Fisk- vinnslu KASK. Síðustu árin átti hún við vanheilsu að stríða og dvaldi þá á hjúkrunarheimili HSSA þar sem hún naut góðrar umönnunar. Herdís var jarðsungin frá Hafn- arkirkju 16. mars. apríl 1918, d. 26. jan- úar 2000. Hann var sonur hjónanna Sig- jóns Halldórssonar og Sigrúnar Runólfs- dóttur. Herdís og Tryggvi eignuðust átta börn, þau eru: 1) Inga Guðlaug, f. 1945, gift Friðfinni Pálssyni, þau eiga þrjú börn og átta barnabörn. 2) Linda Helena, f. 1947, gift Gunnlaugi Höskulds- syni, þau eiga þrjú börn, tíu barnabörn og eitt barna- barnabarn. 3) Ellen Maja, f. 1948, var gift Gunnari Sigurðssyni, þau slitu samvistum. Þau eiga fimm börn og fjögur barnabörn. 4) Það eru blendnar tilfinningar sem fara um huga minn þegar ég hugsa til þess að nú er hún amma farin frá okkur. En nú líður henni betur. Og þau afi nú saman á ný. Það eru ófáar minningarnar sem koma upp í hug- ann þegar ég hugsa til baka. Það fyrsta sem ég sé fyrir mér er afi sem sat svo oft við eldhúsborðið, alltaf í sama sætinu og lagði kapal. Og þú amma að bera fram bakkelsið sem alltaf var nóg til af. Þú sást nú til þess að maður fengi nóg að bíta og brenna. Ég var ekki há í loftinu þeg- ar ég fékk að fara með þeim afa og pabba á sjóinn til að sækja silunginn sem þú steiktir svo að sjóferð lokinni af þinni alkunnu snilld. Alltaf var jafn notalegt að koma til ykkar hvort sem var á meðan við fjölskyldan bjuggum á Höfn, aðeins í göngufæri frá húsinu ykkar á Ránarslóðinni eða eftir að við vorum flutt á Krók- inn. Og mikil ósköp hvað móttökurn- ar voru góðar eftir að hafa setið í bílnum langa leið og hlakkað til að koma loksins til ykkar. Aldrei var þess beðið að við bönkuðum upp á, heldur sá maður alltaf þegar amma lyfti eldhúsgardínunum og kíkti út. Og þá leið ekki á löngu þar til þau afi voru komin út til að taka á móti fólk- inu og fylgja því inn í eldhús þar sem mjólkin og kaffibrauðið beið manns. Dæmigerður dagur byrjaði notalega þegar maður vaknaði eldsnemma við sólskin og fuglasöng í trjánum. Og legði maður betur við hlustir mátti heyra málin rædd niðri í eldhúsi. Þegar í stað spratt ég þá á fætur og dreif mig niður þar sem morgun- verðarborðið beið tilbúið. Svo sat ég oft löngum stundum þar sem við spiluðum eða bara spjölluðum sam- an um allt milli himins og jarðar. Ekki er nú heldur hægt að gleyma því þegar maður fékk að leika laus- um hala með alla hælaskóna sem þú áttir, pörin virtust óendanlega mörg. Það var svo gaman að máta og þramma um fram og til baka um ganginn, ég tala nú ekki um ef mað- ur fékk nú líka kápu eða veski með. Mikið fannst mér ég fín. Svona eins og þú, amma mín, sem mér fannst svo glæsileg þegar þú varst búin að laga hárið og setja á þig varalit, háls- festi og lokka í eyrun og komin á hæ- laskó og í pels. Svo man ég jarð- arberin sem við sóttum stundum saman í beðið úti í garði sæt og fersk, eða þegar ég fékk að koma með þér út í gróðurhús að vökva rós- irnar sem ilmuðu svo dásamlega í sólinni. Á kvöldin vorum við svo oft samankomin í eldhúsinu og töluðum saman eða spiluðum og í minning- unni voru alltaf einhverjir að líta inn í kaffi, og virtist þá engu skipta hvort það væri snemma morguns eða seint að kvöldi. Elsku Lilla amma og Tryggvi afi, ég minnist ykkar með söknuði en umfram allt með gleði og þakklæti fyrir allar ljúfu stundirnar okkar saman. María Dagmar. Herdís Ragna Clausen ✝ Alúðarþakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, EINARS INGA SIGGEIRSSONAR dr. rer. hort. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á FB4 á Landspítala Fossvogi fyrir frábæra umönnun. Kristín Friðriksdóttir, Gylfi Magnús Einarsson, Katrín Jónína Björgvinsdóttir, Valgarð Einarsson, Linda María Stefánsdóttir, Margrét Ástrún Einarsdóttir, Þórir Kristinsson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, VALDIMARS BJÖRNSSONAR skipstjóra, Sóltúni, Reykjavík. Steinunn Guðmundsdóttir, Marta Guðríður Valdimarsdóttir, Anna Steinunn Valdimarsdóttir, Björn Valdimarsson, Sigríður Líba Ásgeirsdóttir, Guðmunda Valdimarsdóttir, Hafsteinn Viðar Árnason, Ásta Valdimarsdóttir, Kristján Gunnar Valdimarsson og barnabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUNNARS Þ. JÚLÍUSSONAR, Holtsgötu 13, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Unnur Guðmundsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, Guðrún Arndal, K. Helgi Gunnarsson, Sigrún Guðlaug Ragnarsdóttir, Björn V. Gunnarsson, Guðrún Kr. Óladóttir, Margrét Gunnarsdóttir, Sigurður V. Jónsson, Helga Gunnarsdóttir, Jón Júlíusson, Gunnar J. Gunnarsson, Ágústa Halldórsdóttir, Hulda Gunnarsdóttir, Ísak J. Matthíasson, Unnur B. Gunnarsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, afabörn og langafabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, AGNESAR AUÐUNSDÓTTUR. Guðni Auðunsson, Alda Þorsteinsdóttir, Sonja Hilmarsdóttir, Ómar Kristmannsson, Erna Hilmarsdóttir, Kristinn Stefánsson, Auðunn Hilmarsson, Guðbjörg Jóhanna Snorradóttir, Guðlaugur Hilmarsson, Guðbjörg Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem vottað hafa hlýhug og samúð vegna andláts okkar elsku- legu móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, RAGNHEIÐAR HULDU ÞÓRÐARDÓTTUR, Hamarsbraut 8, Hafnarfirði. Jón Gunnar Stefánsson, Ólína Jóna Bjarnadóttir, Soffía Stefánsdóttir, Sigurður Bergsson, Sigurður Hallur Stefánsson, Inga María Eyjólfsdóttir, Helga Ragnheiður Stefánsdóttir, Gunnar Hjaltalín, Halldór Ingimar Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýju vegna andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUNNARS HANNESAR BIERING, Laufásvegi 17, Reykjavík. Hulda Biering, Margeir Gissurarson, Rannveig Biering, Jón Gunnar Biering Margeirsson, Sigríður Aradóttir, Bjarni Margeirsson, Herdís Biering Guðmundsdóttir, Valdimar Valdimarsson, Kristín Sveinsdóttir, Lára Sveinsdóttir, Hulda og Kormákur. Elsku afi minn. Hvar ertu? Ég skil ekki alveg þegar mamma og amma Gunna eru að segja mér að þú sért far- inn, en ég veit að þú passar mig og ég vona að þér líði betur. Ég mun alltaf geyma þig í hjarta mínu og ég mun aldrei gleyma þér, elsku afi minn. Þín afastelpa Viktoría Rán. Elsku afi. Nú ert þú engillinn okkar, við söknum þín mikið. Þín afabörn Michael og Emelía Guðrún HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.