Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Laufengi 98 - Sérinngangur
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Mjög björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) í góðu fjölbýlishúsi.
Tvö rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi endurnýjað að hluta. Björt og góð stofa
með útgangi út á rúmgóðar suðursvalir. Baðherbergi með góðri innréttingu og tengi
fyrir þvottavél. Húsið er klætt að hluta til að utan. Verð 19,2 millj.
byggingarlóð undir raðhús
í úlfarsfelli
Frábærlega staðsett byggingarlóð, innst í botnlanga, með samþykktum teikningum
fyrir 6 ca. 200 fm raðhús með innbyggðum bílskúr. Lóðin er staðsett neðst í suð-
urhlíðum Úlfarsfells og ekkert verður byggt þar fyrir neðan þar sem þetta svæði er
skipulagt sem útivistarsvæði. Í gegnum þetta útivistarsvæði rennur svo Úlfarsá.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
HAGAMELUR 10
EINSTÖK EIGN
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Mjög falleg 183,6 fm neðri sérhæð ásamt 20,6 fm bílskúr. Íbúðin skiptist í
forstofu, hol, tvær stofur, eldhús, svefnherbergisgang, tvö svefnherbergi og
baðherbergi. Í kjallara eru tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan. Hér er um að ræða eina af
þessum eftirsóttu hæðum í Vesturbænum. 6575
Jörð á Suðurlandi
falleg fjallasýn
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Vorum að fá í einkasölu jörð á fallegum stað á Suðurlandi.
Jörðin er um 750 ha á stærð. Húsakostur: Tvö íbúðarhús, hesthús
fyrir a.m.k. 40 hesta o.fl. Ræktað land er um 20 ha. Fallegt um-
hverfi. Falleg fjallasýn. Jörðin hentar fyrir hrossabúskap, skóg-
rækt o.fl. Jörðin er í u.þ.b. 110 km akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson og Þorleifur Guðmundsson.
ÞETTA er dæmi um íslenskan
veruleika – samfélag sem mismunar
fólki og kynnt var í
Kringlunni á laug-
ardaginn 14. apríl sl.
Þar komu fram ófatl-
aðir og fólk með fötlun
undir lýsingum þular á
hinum ýmsu að-
stæðum sem fötluðum
er boðið upp á hér á
landi. Meðal annars er
fötluðum oft gert erfitt
að stofna fjölskyldur
þar sem þeir missa við
það réttindi og hús-
næði sem þeim er út-
hlutað býður ekki upp
á sambúðarform,
tekjuskerðingar
hindra þá í að vera
þátttakendur í at-
vinnulífi, mennt-
unarmál blindra barna
eru í ólestri sem og
túlkaþjónusta heyrn-
arlausra. Fatlaðir eru
að jafnaði fátækari en
aðrir í þjóðfélaginu og
stór hluti þeirra er
hindraður í aðgangi að opinberum
stöðum.
Hið kerfisbundna óréttlæti sem
mætir fötluðum kallar á samstillt
átak stjórnvalda og samfélags.
Breyta þarf lögum um almanna-
tryggingar þannig að þau standi
undir nafni og þjóni hlutverki sínu.
Við þurfum líka að víkja til hliðar
stofnanahugsun sem gegnsýrt hefur
málefni fatlaðra. Fatlaðir eru ekki
hópur eða hópar. Þeir
eru einstaklingar með
ólíkar þarfir og vænt-
ingar. Á undanförnum
árum hefur ein-
staklingsmiðuð þjón-
usta og liðveisla aukist
og er skilningur mjög
að aukast um þessi mik-
ilvægu mál. Hins vegar
gerast breytingarnar
allt of hægt. Við erum
enn föst í hugmyndum
um að lausnin felist í
einhverjum kerfum.
Kerfi hafa tilhneigingu
til að múra sig inni og
verjast þjónustuþegum.
Frá þessu þarf að
hverfa.
Nútíminn kallar á
sveigjanleika og ein-
staklingsmiðaða nálgun
sem miðar að því að
mæta hinum fötluðu
þar sem þeir eru. Mæta
óskum þeirra og styðja
þá til aukinna lífsgæða.
Auknum réttindum fylgja auknar
skyldur og með meiri stuðningi og
endurhæfingu eru fatlaðir kallaðir
til aukinnar þátttöku. Hreyfingar
fatlaðra um heim allan leggja höf-
uðáherslu á lífsgæði sem inntak í
stefnu sinni. Það næst ekki með fé-
lagslegri einangrun og búsetustofn-
unum fyrir fatlaða heldur sjálfstæðri
búsetu með öðrum í samfélaginu.
Ekki í jaðri samfélagsins heldur inni
í því. Í fimmtán ár höfum við haft lög
um málefni fatlaðra sem eiga að
tryggja jafnrétti og það er engin
ástæða til að bíða í fimmtán ár í við-
bót eftir því að þeim verði framfylgt.
Kýst þú eitt samfélag fyrir alla?
Til hamingju með
67 ára afmælið
Sigursteinn R. Másson skrifar
um kerfisbundið óréttlæti fatl-
aðra
Sigursteinn Másson
» Í dag missirþú tekjur og
réttindi í tilefni
dagsins því
samkvæmt lög-
um ert þú ekki
lengur öryrki
heldur öldruð.
Höfundur er formaður ÖBÍ.
smáauglýsingar
mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn