Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 22.04.2007, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 59 ✝ Þorvaldur Jó-hannesson fæddist á Arnarhóli í Gaulverjabæj- arhreppi 30. mars 1961. Hann varð bráðkvaddur í Sarpsborg í Noregi miðvikudaginn 4. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans eru hjónin Borghildur Þorgrímsdóttir og Jóhannes Guð- mundsson, þá bú- andi á Arnarhóli. Foreldrar Borghildar voru hjónin Þorgrímur Grímsson og Guðrún Guðmundsdóttir í Borgarholti í Biskupstungum, síðast í Odda- görðum í Stokkseyrarhreppi. For- eldrar Jóhannesar voru hjónin Guðmundur Jóhannesson og Ingi- björg Árnadóttir, sem bjuggu á Arnarhóli. Systkini Þorvaldar eru: 1) Ingibjörg, gift Valgeiri nema, f. 10.11. 1987 og Emil Brynjar, f. 24.3. 2002. Þorvaldur ólst upp í foreldra- húsum á Arnarhóli. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða- skólanum á Selfossi og vélstjóra- prófi frá Vélskólanum í Reykja- vík. Árið 1985 fluttust þau Rósa og Þorvaldur til Fredrikstad í Noregi, þar sem Þorvaldur starf- aði hjá fyrirtækinu Brattås Rør A/S og frá 1. ágúst 2006 hjá Gass- nett. Árið 1989 komu þau aftur til Íslands og áttu heima á Arn- arhóli. Árið 1995 afréðu þau að flytjast aftur utan og áttu síðan heima í Slevik, nálægt Fredriks- tad. Rósa rak snyrtistofu í nokkur ár en er nú verslunarstjóri í barnafataverslun og er meðeig- andi Lára systir hennar. Minningarathöfn um Þorvald var í Selfosskirkju 9. apríl og hann var jarðsunginn frá Onsøy kirkju í Noregi föstudaginn 13. apríl. Jónssyni, þau eiga þrjár dætur. 2) Guð- mundur, í sambúð með Sigurlínu Rósu Helgadóttur, þau eiga tvö börn; áður eignaðist Guð- mundur fjögur börn og Sigurlína þrjú. 3) Eiríkur, kvæntur Ás- rúnu Traustadóttur; þau eiga tvo syni; Ásrún eignaðist áður tvær dætur. 4) Þor- grímur Rúnar, lést 4ra ára. 5) Kjartan, í sambúð með Katrínu Helgadóttir; þau eiga einn son, áður eignaðist hún tvo syni. Kona Þorvaldar er Rósa Krist- rún Kristófersdóttir, f. 25.11. 1965. Foreldrar hennar eru Svan- hildur Sigtryggsdóttir og Krist- ófer Reykdal Magnússon, búsett í Noregi. Þorvaldur og Rósa eign- uðust tvö börn, Svanhildi Diljá, Segja má að fyrstu kynni okkar Þorvalds Jóhannessonar frá Arnar- hóli í Gaulverjabæjarhreppi hafi verið á Sjúkrahúsinu á Selfossi en þar fæddumst við, hann 30. mars en ég degi síðar árið 1961. Við gengum saman í Barnaskóla Gaulverjabæj- arhrepps, Barnaskólann á Selfossi og Gagnfræðaskólann á Selfossi. Það var á þessum árum sem vinátta okkar mótaðist. Þorvaldur var glað- vær og góður vinur, hrekklaus, ein- lægur og í minningunni er hann brosandi og léttur í lund. Hann tók þátt í verkefnum og leikjum í skól- anum af lífi og sál og ekki spillti að við deildum sameiginlegu áhuga- máli á þessum árum en það var út- varps- og rafeindatækni ýmiskonar. Við söfnuðum gömlum útvarps- tækjum og kepptumst við að ná í sem best tæki og búa til sem best loftnet, renndum með athygli yfir stuttbylgjusviðið, hlustuðum á er- lendar stöðvar en mest þó líklega Radio Luxembourg og útvarp Bandaríkjamanna á Keflavíkurflug- velli. Við rifum lélegustu útvarps- tækin í frumeindir sínar og notuð- um partana úr þeim sem efnivið í annað. Ég gleymi ekki hrifningunni þegar við náðum að búa til einfalt útvarpstæki úr einni spólu, loftneti, jarðsambandi og heyrnartóli og heyrðum í langbylgjunni. Við lásum um þetta eins og færi gafst og spjölluðum. Í þessum málum hafði Valdi nokkurt forskot. Hann eign- aðist sérlega gott og næmt stutt- bylgjutæki og bjó til langt loftnet. Mig minnir að það hafi náð frá íbúð- arhúsinu á Arnarhóli og yfir í súr- heysturninn, síðan var bætt við loft- netsmagnara. Þannig útbúið náði þetta tæki þeim evrópskum, afrísk- um eða jafnvel enn fjarlægari stöðvum sem hægt var að ná með góðu móti og það var mikill fjöldi á þeim árum. Síðan komu CB tal- stöðvarnar og Arnarhólsbræður komu sér upp einni slíkri heima. Ég eignaðist ekki talstöð þá en átti þeim mun auðveldara með að gera mér erindi að Arnarhóli til að hlusta á útvarpið eða tala í talstöðina með Valda, eða bara spjalla og bralla eitthvað skemmtilegt. Við bjuggum einnig til útvarpssenda skv. teikn- ingu í bók og gerðum tilraunir til útsendinga. Aftur hafði Valdi for- skotið því sendirinn hans náðist á Galtastöðum en minn sendir dró ekki sömu vegalengd. Eftir á að hyggja þá þykir mér ekki ólíklegt að tilraunirnar með út- varpstækin hafi endurspeglað ákveðna útþrá sem bjó með okkur báðum, löngun til að kanna nýja og forvitnilega heima, löngun til að brúa bil og gera vegalengdir milli staða og fólks að engu. Valdi átti því sinn þátt í því að gera þennan tíma í sveitinni ógleymanlegan og það er mikil birta yfir þessum minningum, svo mikil reyndar að sólríka daga á sumrin þegar sólin skín á Flóann og sjórinn merlar í tí- bránni niðri við ströndina, þá leitar hugurinn á þessar lendur og minn- ingar um fréttir frá fjarlægum heimshornum eða stef í bland við fjarrænt stuttbylgjusuð úr tækinu hans Valda gerir vart við sig. Mér er því mikið þakklæti í huga á þess- ari kveðjustund og ég sendi mínar innilegustu samúðarkveðjur til fjöl- skyldu hans, foreldra, systkina, vina og ættingja. Megi Guð geyma Þorvald Jó- hannesson og minning hans lifa. Ragnar Geir Brynjólfsson frá Galtastöðum. Jæja, þetta var nú alltof snöggt, of fljótt og óvænt sem kallið kom hjá vini mínum og jafnaldra Þor- valdi. Þó dauðinn sé reyndar það eina sem við göngum að vísu í þessu lífi var margt ógert og ósagt hjá duglegum og heilsteyptum fjöl- skyldumanni á besta aldri sem aldr- ei kenndi sér meins. Ég man fyrst eftir Valda á barna- ballinu í Félagslundi. Mér var strax starsýnt á hve brosleitur hann var með Boggu mömmu sinni. Síðar á fyrsta skóladegi árgangsins 1961 hjá Þórði í Gaulverjaskóla mætti Valdi með pabba sínum. Við vorum þá sest inn í stofu á tréstólana í þessu rammbyggða musteri að okk- ur fannst. Virðuleg og prúð. En Valdi kom jafn brosandi opinn og alls ófeiminn líkt og á jólaballinu. Það var ekki dauflegur dagur og á við ævintýri ef leyfi fékkst til að heimsækja Valda að Arnarhóli. Þar úði og grúði af bílum allra gerða og aldursskeiða ásamt rafmagnstækj- um og tólum af öllum gerðum. Þessu öllu hafði Valdi ánægju af að grúska í. Honum dugði ekki að nota hlutinn, nauðsynlegt var að skilja samhengið og hvernig hann virkaði. Einn vordag kom ég í hlaðið og sá að rykið þyrlaðist milli bæjarhús- anna. Þá voru bræðurnir Gummi og Valdi að draga gamlan dreka sem skyldi nú í gang. Stýrishjólið var stórt en handleggir Valda ekki komnir í fulla lengd. Við þurfum því í eitt skiptið að hjálpast að við að leggja hratt á stýrið til að lenda ekki á gömlu skemmunni. Það tókst að forðast árekstur að mestu. Og bíllinn hrökk í gang. Auðvitað. Leiðir okkar lágu oft saman og margt var brallað. Deildum við m.a. herbergi í Kópavoginum einn vetur þegar Valdi hóf nám í vélskólanum. Oft hlógum við þegar við þurftum að kasta vatni en gátum það ekki standandi nema með höfuðið uppúr kvistherberginu og horfðum þá yfir Fossvogsdalinn. Hagleikur hans var einstakur. Var þar sama hvort var á járn, timbur eða vélar. Það vafðist ekki fyrir honum að innrétta vistlega og snotra íbúð í risinu á Arnarhóli. Síð- ar er íbúðarhús var reist á Selfossi var minn maður í essinu sínu og vann að sjálfsögðu mestallt sjálfur. Kannski var brosið ekki jafn oft á vörum og í bernsku, líkt og gengur í amstri hversdagsins. En geðprýði, dugnaður og hressleiki var óbreytt- ur. Þorvaldur var lítið fyrir að ræða fánýti eða opna á hvað sem var. Stundum í miðri samræðu kúventi hann í annað umræðuefni sem hann taldi frekar umræðuvert. Þetta stuðaði suma en sýndi einungis hreinskilni hans. Hann var nefni- lega aldrei að sýnast eða þykjast hafa vit á því sem hann þekkti ekki neitt. Happið í lífinu var þegar Þor- valdur kynntist Rósu og aldrei brosti hann breiðar en þegar hann kynnti hana fyrir mér. Leiðir okkar skildu síðar er þau fluttu með Svan- hildi til Noregs og undu hag sínum þar vel. Heimsókn þeirra feðga Þorvaldar og Emils litla til okkar sl. sumar verður dýrmæt í minningabankan- um. Kæra Rósa og fjölskylda, vinir okkar í Noregi. Það er í anda Valda að brosa samt gegnum tárin. Við Stína og allir í Gaulverjabæ sendum ykkur samúðarkveðjur. Valdimar Guðjónsson. Þorvaldur Jóhannesson Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ESTHER SIGURBJÖRG VALDIMARSDÓTTIR, Kóngsbakka 1, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 11. apríl. Hún verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju þriðju- daginn 24. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á SOS barnaþorp eða ABC barnahjálp. Valdimar Viðar Leifsson, Charlotta Björk Leifsdóttir, Sigurjón Örn Leifsson, Guðlaug Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, HERDÍS ÓLAFSDÓTTIR, Dvergasteini, síðast til heimilis á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést mánudaginn 16. apríl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 24. apríl kl. 14.00. Elín Hannesdóttir, Þorsteinn Þorvaldsson, Helgi Hannesson, Valdís Einarsdóttir, Guðmundur Hannesson, Margrét Gunnarsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir og ömmubörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGRÍÐUR RÓSMUNDSDÓTTIR, síðast til heimilis á Hrafnistu í Hafnarfirði, lést föstudaginn 23. mars. Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey. Ingibjörg Sigurðardóttir, Kristinn H. Kristinsson, Sigurjón H. Sigurðsson, Theodór Sigurðsson, Ragnhildur G. Júlíusdóttir, Guðrún Sæmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar og amma, SÓLVEIG GÍSLADÓTTIR hjúkrunarkona frá Skógargerði, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 4. apríl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til ættingja og vina fyrir samúð og stuðning. Þorvaldur Kristmundsson, Urður, Eir og Sigríður Dagný Þorvaldsdætur, Þorvaldur Skúli, Ingigerður Sólveig og Máni Veigar. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, INGVI BRYNJAR JAKOBSSON fyrrv. lögregluvarðstjóri á Keflavíkurflugvelli, sem lést þriðjudaginn 17. apríl, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 24. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Ragnheiður Elín Jónsdóttir, Eva Bryndís Ingvadóttir, Þórunn Elísabet Ingvadóttir, Eyrún Jóna Ingvadóttir, Aðalheiður Ingvadóttir, Anna Ingvadóttir, Erla Ingvadóttir, Brynjar Ragnar Ingvason, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.