Morgunblaðið - 22.04.2007, Síða 16

Morgunblaðið - 22.04.2007, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ ● Do you want to study in Denmark? ● Do you want to study in Denmark in an international environment? ● Are you looking for a programme which gives you good job opportunities? ● Are you interested in Mechanical Engineer? ● Are you looking for a short education at university level? Do as Thomas Hansen and other young students. Every year The Academy of Southern Denmark in Søn- derborg welcomes students from Iceland. Come and join us! Sønderborg has an active ”Íslendingafélag”. Visit our website www.sdes.dk to read more about your future in Denmark. Do you want to study Mechanical Engineer? Grundtvigs Allé 88 DK-6400 Sønderborg Tlf. +45 7412 4141 www.sdes.dk 1. Ákvarðanir um stjórnarskrá virð- ast nærtækastar í þessu efni, og síð- an sérstök álitamál sem forseti Ís- lands eða Alþingi kýs að vísa til þjóðarinnar. Erlendis eru reyndar kunn dæmi um að þjóðaratkvæða- greiðsla, eða allsherjaratkvæði í sveitarfélagi, sé virkur hluti stjórn- kerfisins yfirleitt. Nefna má Sviss og einnig nokkur ríki Bandaríkja Norð- ur-Ameríku. Kalifornía er eitthvert frægasta dæmið um beint lýðræði í róttækri og víðtækri mynd. 2. Nefna má skipulagsmál, en þá verður að gera ráð fyrir að slíkar ákvarðanir séu teknar þegar svæð- isskipulag er í fyrstu mótun, – en ekki löngu síðar, eftir að fyrirtæki hafa þegar varið miklum fjármunum í undirbúning framkvæmda. Erlend dæmi má nefna um miklu víðtækara beint lýðræði í nærsamfélögum. 3. Slíkt er óhjákvæmilegt ef menn vilja nýta beint lýðræði að einhverju ráði. En einnig kemur til greina að sveitarstjórn hafi vald til að vísa máli til allsherjaratkvæðagreiðslu. 4. Slíkt er óhjákvæmilegt ef beint lýðræði á að hafa virka stöðu í stjórnkerfinu. 5. Slíkt kemur til greina. En ef ætl- unin er að nýta beint lýðræði að ein- hverju ráði verður að hafa skýr laga- ákvæði um það. 6. Þetta er eitt þeirra atriða sem hljóta að koma til skoðunar ef menn vilja leggja inn á braut beins lýðræð- is. 7. Kemur til álita. Jón Sigurðsson B | Framsóknarflokkurinn Eftirfarandi spurn- ingar voru lagðar fyrir formennina: 1. Í hvaða málum er tilefni til þjóðaratkvæðagreiðslu? 2. Hvaða mál á að ákvarða með atkvæðagreiðslum inn- an sveitarfélaga eða af- markaðri svæða s.s. lands- hluta? 3. Ættu kjósendur að hafa sér- stök úrræði til að kalla eftir slíkri atkvæðagreiðslu? 4. Ber að setja ákvæði í lög um hvaða mál ber að leggja í dóm kjósenda? 5. Eiga sveitarfélög að hafa sjálfdæmi um hvaða mál innan þeirra eigi að koma til kasta kjósenda? 6. Ættu reglur að kveða á um lágmarksþátttöku í slíkum kosningum til að niður- stöður þeirra séu bindandi? 7. Ætti aukinn meirihluta að þurfa til, svo niðurstöður teljist bindandi? Hvað segja kosnir fulltrúar Formenn stjórnmála- flokka voru spurðir að því hvaða útfærslum þeirra flokkar væru fylgjandi á beinu lýðræði. Ekki barst svar frá formanni Baráttusamtaka eldri borgara og öryrkja. 1. Málum þar sem verið er að breyta aðstæðum komandi kynslóða óaft- urkræft. (Dæmi: Kárahnjúkavirkj- un.) Málum sem varða sjálfstæði þjóð- arinnar og yfirráð yfir auðlindunum sem og ákvæði stjórnarskrár. Stærri málum sem ganga þvert á flokkslínur. Stórum málum, sem virðast vera sveitarstjórnarmál en varða í raun alla þjóðina. (Dæmi: Álver í anddyri landsins.) 2. Skipulagsmál og hliðstæð mál sem ganga þvert á flokkslínur. Svipuð mál og hafa verið ákveðin á þennan hátt hingað til svo sem opn- un áfengisútsölu. 3. Já. Ef t.d. 20 prósent kjósenda krefjast þess. 4. Já. Þar má hafa til hliðsjónar og lærdóms löggjöf annarra þjóða, t.d. Finnlands. 5. Já, – en þó ekki um mál sem varða sannanlega alla þjóðina eins og til- greint er í fjórða lið svars við spurn- ingu númer eitt. 6. Já. 7. Þegar þessu er svarað þarf að hafa í huga að venjulega á ekki að þurfa aukinn meirihluta í þjóð- aratkvæðagreiðslum. Hins vegar held ég að ástæða sé til að kanna rækilega löggjöf ann- arra þjóða þar sem kveðið er á um aukinn meirihluta, t.d. 60 prósent í öðrum atkvæðagreiðslum sem geta verið margs konar. Ég minni á ákvæði í hlutafélagalögum um auk- inn meirihluta, 2⁄3, í atkvæðagreiðslu, en eftir þessu fordæmi var t.d. farið í atkvæðagreiðslu um það hvort Framtíðarlandið ætti að verða stjórnmálaflokkur. I | Íslandshreyfingin – lifandi land Ómar Þ. Ragnarsson 1. Í mikilvægum grundvallarmálum sem varða þjóðina alla. Augljóst er að hugsanleg aðild Íslands að Evr- ópusambandinu er slíkt mál. 2. Mál sem hafa verulega þýðingu fyrir íbúa á umræddum svæðum samkvæmt nánari skilgreiningu í lögum. 3. Já, en setja þarf skýrar reglur um slíkt í lögum, t.d. um lágmarksfjölda kjósenda. 4. Almenn lagasetning um þetta er óhjákvæmileg ef fara á inn á þessa braut í ríkari mæli en tíðkast hefur. Þar þarf m.a. að kveða á um eðli þeirra mála sem unnt á að vera að fara með í dóm kjósenda, hvernig á að kalla fram atkvæðagreiðslur og um almennar málsmeðferðarreglur. Reynsla annarra, t.d. Kaliforníubúa, sýnir að beita verður heimildum til slíkra kosninga af varfærni. 5. Já, innan þess ramma sem lög ákveða. 6. Já, þannig reglur ættu heima í al- mennum lögum um slíkar kosningar. 7. Í mikilvægustu málum gæti svo verið, en um það þurfa að vera ákvæði í lögum eða stjórnarskrá. D | Sjálfstæðisflokkurinn Geir H. Haarde 1. Í mörgum málum er nægt tilefni til þjóðaratkvæðagreiðslu. Ákveðinn hluti kosningabærra manna á að geta krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um öll meiriháttar stefnumarkandi mál. Gera þarf kröfu um að 15% kosningabærra manna geti náð fram rétti sínum um þjóðaratkvæða- greiðslu í einstökum málum. Í mál- um sem snúa að tekjum og út- gjöldum ríkisins, þ.e. fjárlögum hvers árs og skattamálum sem þeim tengjast, er hins vegar ekki tilefni til þjóðaratkvæðagreiðslu, enda verða ríkisstjórnir væntanlega dæmdar af verkum sínum. Frjálslyndi flokk- urinn telur að örva eigi íbúalýðræði. 2. Skipulagsmál viðkomandi byggð- arlaga og svæða og ákveðin sam- göngumál sem eru viðkomandi byggðarlögum mikilvæg. Málefni sem varða þjónustu sveitarfélaga ættu einnig að koma til atkvæða- greiðslu, t.d. málefni sem varða gjaldtöku fyrir þjónustu, s.s. hvort leikskólinn eigi að vera gjaldfrjáls. 3. Já, kjósendur eiga að hafa sérstök úrræði og geta kallað eftir atkvæða- greiðslu um mál sem þeir vilja að kosið sé um. Ákveðinn fjöldi íbúa í sveitarfélagi og íbúaþing á að geta krafist atkvæðagreiðslu. 4. Já, það þarf að vera stoð í lögum um hvaða mál ber að leggja í dóm kjósenda. Eins og áður sagði þá gengur það ekki að kosningar verði um tekjustofna og fjárlög hvers árs. Kjörnir fulltrúar taka ákvarðarnir um fjárlög og skatta. Landsmenn ættu hins vegar að geta kosið um áherslur á einstökum landssvæðum eins og t.d. um skipulagsmál, friðun ákveðinna landsvæða, náttúrunýt- ingu eða meiriháttar framkvæmdir sem snúa að nýtingu náttúrunnar. 5. Nei. Íbúarnir eiga að hafa ein- hvern rétt um hvaða mál koma til at- kvæðagreiðslu. Sveitarfélög eiga hins vegar að geta mótað stefnu um hvaða mál verði kosið um, þ.e. hvaða mál komi til atkvæðagreiðslu. 6. Já. Það er algert lágmark að 20- 25% þátttaka sé í kosningum til þess að niðurstöður séu bindandi og til þess að meirihlutaákvörðun náist og sé marktæk. Það gengur ekki að lít- ill minnihluti geti afgreitt mál. 7. Nei. Ég tel svo ekki vera. Það nægir að setja reglur um lágmarks- þátttöku, þ.e. að einfaldan meiri- hluta þurfi til þess að niðurstöður teljist bindandi. Guðjón A. Kristjánsson F | Frjálslyndi flokkurinn 1. Samfylkingin vill að þjóðin greiði atkvæði um allar stjórnarskrárbreyt- ingartillögur frá Alþingi. Þá eru nokkur mál sérstaklega tiltekin í stjórnarskránni sem tilefni slíkrar atkvæðagreiðslu, en ég tel ekki ástæðu til að útiloka nein mál til þjóð- aratkvæðagreiðslu nema með al- mennum hætti (í Danmörku er t.d. ekki heimilt að vísa fjárlögum og skattalögum til slíkrar atkvæða- greiðslu). Æskilegt er að tiltekinn fjöldi þingmanna eða kjósenda geti farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslu. Slíkt er mikilvægur varnagli gagn- vart því að stjórnvöld fari offari. Eðli- legt er að stjórnvöld undirbúi atkvæðagreiðslu þannig að upplýs- ingar allar liggi fyrir og að samtök sem myndast í aðdraganda slíkra kosninga standi sem jöfnust gagn- vart kjósendum. 2. Hér gildir sama og um fyrri spurn- ingu, að ekki er rétt að útiloka fyr- irfram nein málasvið. Samfylkingin leggur sérstaka áherslu á sem allra mesta þátttöku almennings í ákvörð- unum um umhverfis- og skipulags- mál og telur í ljósi reynslunnar heppi- legt að sveitarstjórnir taki sig saman um að skipuleggja slíka atkvæða- greiðslu þegar málið varðar fleiri en íbúa eins sveitarfélags. Gera þarf skýran greinarmun á ráðgefandi og bindandi atkvæðagreiðslu. Bindandi atkvæðagreiðsla eykur líkur á góðri þátttöku og kemur í veg fyrir ágrein- ing um túlkun niðurstaðna, en sjálf- sagt er að sveitarstjórn geti einnig leitað til íbúa um afstöðu með ráðgef- andi könnun. 3. Já. Tiltekinn hluti kjósenda, til dæmis 20%, á að geta farið fram á al- menna bindandi atkvæðagreiðslu. Við skipulag og framkvæmd verður að tryggja að óvilhallur aðili taki vandasamar ákvarðanir, svo sem um endanlega orðun spurningarinnar sem kjósendum er ætlað að taka af- stöðu til. 4. Nei, en í stjórnarskrárákvæði um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu er þó rétt að geta um undantekn- ingar sem ég vísaði til í svari við fyrstu spurningu. Svipað á við um reglur sveitarfélaga. Í lögum eiga hins vegar að vera ákvæði um fram- kvæmd slíkra atkvæðagreiðslna, eins og er um kosningar almennt. – Tryggja þarf að atkvæðagreiðsla fylgi málskoti forseta Íslands sam- kvæmt 26. grein stjórnarskrárinnar S | Samfylkingin Ingibjörg Sólrún Gísladóttir LÝÐRÆÐI 21. ALDAR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.