Morgunblaðið - 22.04.2007, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 25
H
elena Stefánsdóttir ólst upp í Hafnarfirði
og Reykjavík þangað sem hún flutti 12
ára gömul. Hún lítur á sjálfa sig sem
Reykvíking og myndu sumir segja mið-
bæjarrottu þar sem hún býr með fjöl-
skyldunni í bakhúsi við Grettisgötu og og
byrjar daginn í kaffihúsinu sínu, Hljóma-
lind við Laugaveg. Þetta er þó bara ein
hlið á henni því hún er líka mikið náttúrubarn og hefur barist öt-
ullega fyrir verndun hálendisins og hefur skemmtilega lífssýn,
sem gaman er að heyra hana útskýra.
Textinn heillar ekki
Helena státar af BA-prófi í frönsku og heimspeki og hefur
jafnframt sterka tengingu við Frakkland. Hún byrjaði að vera
með hálffrönskum manni 19 ára gömul en Nicolas á íslenska
mömmu og voru þau saman í bekk frá 12 ára aldri. Þau fluttu
saman til Frakklands þar sem Helena kláraði frönskunámið og
fór í framhaldinu í nám í því sem má kalla líkamlegt leikhús,
„physical theater“. „Ég byrjaði að dansa tíu ára og var að sýna
dans frá tólf, þrettán ára aldri. Mig langaði að bæta einhverju við
dansinn og fór því í þetta nám í París. Ég er ennþá að nota dans-
reynsluna í því sem ég geri. Til dæmis eru eiginlega allar myndir
mínar textalausar.“
Þrjár stuttmyndir eftir Helenu voru sýndar á franskri kvik-
myndahátíð í Háskólabíói sem var að klárast. „Ég þurfti að
kynna mig og fara yfir ferilinn og áttaði mig á því í undirbún-
ingnum hvað dansinn er fastur í mér og myndunum mínum. Í
myndunum skiptir kvikmyndatakan jafnmiklu máli og sagan.
Tónlistin og hljóð skipta miklu máli, hreyfingar og hið mynd-
ræna. Textinn heillar mig ekki í minni sköpun að svo stöddu.“
Leiklistin kom á undan kvikmyndagerðinni. „Ég var að leika í
menntaskóla og háskóla. Og eftir að ég kom heim úr náminu fór
ég strax í leikhúsið. Setti upp leikrit í Kaffileikhúsinu og sýndi
það tíu sinnum. Leikstýrði líka í menntaskólum og var víða að-
stoðarleikstjóri. Ég hef komið víða við, í Þjóðleikhúsinu, Loft-
kastalanum og Borgarleikhúsinu. Ég áttaði mig á því strax í
Kaffileikhúsinu að mig langaði ekki til að vera á sviði sjálf, var
orðin leið strax eftir fimm sýningar. Ég fann það að mig langaði
frekar að skapa sjálf.“
Heimur kvikmyndanna
Það var svo árið 1999 að Helena fékk vinnu sem aðstoðarleik-
stjóri í kvikmynd og féll algjörlega fyrir starfinu og þessum
heimi. „Starfið datt inn á borð til mín og ég er með það að mottói
konan
leiðir
Hún er náttúruverndarsinni, kvikmynda-
gerðarkona, listakona, kaffihúseigandi, dans-
ari, grænmetisæta og þriggja barna móðir.
Inga Rún Sigurðardóttir ræddi við Helenu
Stefánsdóttur um lífið, tilveruna og afann frá
Púertó Ríkó sem hún fann á fullorðinsaldri.
ALLT ANNAÐ LÍF! - með vinstri grænum
Álfheiður Ingadóttir
2. sæti Reykjavíkurkjördæmi Suður
Katrín Jakobsdótttir
1. sæti Reykjavíkurkjördæmi Norður
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
2. sæti Suðvesturkjördæmi
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir
2. sæti Norðvesturkjördæmi
Björg Gunnarsdóttir
3. sæti Norðvesturkjördæmi
Ragnheiður Eiríksdóttir
3. sæti Suðurkjördæmi
15:15 – 15:30 Skráning
15:30 – 15:40 Setning og kynning
15:40 – 15:50 Árni Mathiesen, fjármálaráðherra:
Einkaframkvæmdir á Íslandi í næstu framtíð
15:50 – 16:10 Davíð Þorláksson, lögfræðingur:
Ný skýrsla Viðskiptaráðs: Opinberar fasteignir
16:10 – 16:30 KPMG í Bretlandi kynnir skýrslu um árangur
einkaframkvæmda í Bretlandi 1997-2005
16:30 – 16:50 Kaffi
16:50 – 17:10 Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Inpro ehf.:
Einkaframkvæmdir í heilbrigðismálum
17:10 – 17:30 Margrét Pála Ólafsdóttir, formaður Samtaka sjálfstæðra skóla:
Einkaframkvæmdir í menntamálum
17:30 – 17:50 Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur
Einkaframkvæmdir í samgöngumálum
17:50 – 18:15 Pallborðsumræður
Auk frummælenda sitja í pallborði:
Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi og læknir
18:15 – 18:45 Kokteill
Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er ókeypis.
Fundarstjóri er Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Skráning er hjá Háskólanum í Reykjavík í síma 599 6200
og skraning@ru.is.
Dagskrá:
RÁÐSTEFNA UM
EINKAFRAMKVÆMDIR
Samstarfsaðilar:
Háskólinn í Reykjavík, Samtök atvinnulífsins,
Viðskiptaráð, KPMG, Glitnir, Þyrping, Nýsir, ÍAV,
Seltjarnarnesbær, Baugur, Sjóvá og Milestone.
Eru einkaframkvæmdir framtíðin á Íslandi?
Ráðstefna um einkaframkvæmdir á Íslandi verður haldin í Háskólanum í Reykjavík
mánudaginn 23. apríl kl. 15:30 – 18:15.
Markmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á möguleikum einkaframkvæmda
á Íslandi í nánustu framtíð og kynna hugmyndir að framtíðarsýn. Ráðstefnunni er ennfremur
ætlað að vera vettvangur umræðna um tækifærin á Íslandi, hvað hefur tekist vel erlendis,
hvaða víti ber að varast og hver eru lykilatriði þess að ná árangri.
MÁNUDAGINN 23. APRÍL 2007 Í HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK
OFANLEITI 2, STOFA 131 B
OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKI 9 • KRINGLAN 1
SÍMI: 599 6200 • www.hr.is
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
7