Morgunblaðið - 22.04.2007, Side 38

Morgunblaðið - 22.04.2007, Side 38
heimspeki 38 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Það undarlegasta við aðstanda augliti til auglitis viðSlavoj Žižek er að hann er íallri viðkynningu nákvæm- lega eins og maður ímyndaði sér hann. Hjá þeim sem hafa séð myndir á borð við Žižek! eða The Pervert’s Guide to Cinema hefur ímyndunarafl- inu kannski verið hjálpað svolítið. En þegar Slavoj Žižek kútveltist með töskuna sína innum dyrnar á Hótel Fróni er hann þegar byrjaður að greina umhverfið, óðamála, með hlið- sjón af sálgreiningu Jacques Lacan. Slavoj virðist ekki taka eftir neinu öðru en talandanum í sjálfum sér – vöðlar einhverju út úr sér um Coke Light, sýpur hveljur, og spyr mig hvar hann geti keypt nýjustu ensku þýðinguna af Arnaldi Indriðasyni. Ég hef 45 mínútur til að ræða við manninn og vandanum verður best lýst sem lúxusvanda. Žižek hefur gef- ið út eina til tvær bækur árlega frá falli Berlínarmúrsins og þær spanna vítt svið. Heimspeki, þjóðfélags- gagnrýni, lacanísk sálgreining og kvikmyndarýni eru sérsvið Žižeks. Hvar á að byrja? Žižek er reyndar þegar byrjaður að tala, og hefur talað linnulaust sl. tíu mínútur án þess ég hafi svo mikið sem kynnt mig, svo ég ákveð að það sé best að kveikja á tæk- inu, láta kylfu ráða kasti og spyrja að því fyrsta sem mér dettur í hug … Útópískt brjálæði klámsins Íslendingar úthýstu nýlega klám- ráðstefnunni „Snow Gathering“. Sem kvikmyndarýnir, hvert er álit þitt á klámmyndum og klámmyndaiðn- aðinum? „Ég sem manneskja veit of mikið um klám og hvernig það er gert til að geta fordæmt það á þann hátt sem landar þínir virðast hafa gert. Ég hef talað við fólk sem hefur rannsakað og gert klám. Vandinn er ekki sá að það sé verið að pynda konur í klámi, að klám sé þrælahald eða eitthvað slíkt. Það er engu að síður mjög dapurlegt að horfa á „hardcore“ klám. Kon- urnar með sílikon-brjóstin og karl- arnir notaðir sem verkfæri, þetta er of dapurlegt í gervileika sínum. Því er ekki að furða að nýja trendið í klám- inu er amatör-klám, þ.e.a.s. klám þar sem menn myndast við að halda í ein- hverja upprunahugmynd, hugmynd- ina um eitthvað „ekta“. En ég get náttúrulega ekki að því gert að minn illi marxíski hugur fer alltaf að spyrja: Hvernig gerðu þeir þetta? Það sem ég hef áhuga á í klámi er ákveðið útópískt brjálæði sem þar er sóst eftir, enda getur þar verið um fegurð að ræða þegar vel tekst til. Hin ósjálfráða sameining uppleystra líkama heillar mig, og kemst kannski næst því sem Deleuze átti við með kenningu sinni um „líkama án líf- færa“. Hins vegar er alltaf eitthvað sem stíflar þetta flæði löngunnar, öf- ugt við það sem Deleuze heldur fram. Vekur mér mestan viðbjóð Það sem hins vegar skelfir mig frekar en klámið er þessi nýja hreyf- ing, „kappfróun“, þar sem fólk safn- ast saman, má ekki snertast og fróar sér. Þarna er þessi algjörlega narsiss- íska athöfn gerð að einhvers konar góðgerðastarfsemi, vegna þess að þátttakendur safna áheitum sem renna til fátækra barna í þriðja heim- inum, eitthvað slíkt, líkt og til sönn- unar á því að þetta sé ekki afsökun fyrir kynsvalli, heldur hugsjón. Þetta vekur mér mestan viðbjóð. Skilningur þessa fólks á kynlífi og sjálfsfróun er væntanlega sá að á þessu tvennu sé einhver verulegur munur, og að hið síðarnefnda sé ein- hvern veginn hreinna og feli ekki í sér „klám“. Það sem þarna vantar inn í myndina segir okkur mikið um form- gerð sjálfsverunnar, því auðvitað er sjálfsfróun uppistaðan í kynlífi hvort eð er. Hinn raunverulegi bólfélagi er aldrei annað en leikmunur í órum hins, líkt og ég sagði áðan. Þetta sjálfsfróunaræði er dæmigert fyrir ákveðna löngun sem Adorno greindi fyrir löngu síðan. Þú vilt reyna að hreinsa veru þína af mengun hins, þú villt koffínlaus samskipti. Við viljum nágranna, en nágranna sem er ekki lykt af og hefur ekki hátt.“ Umburðarlyndi að vilja fjarlægð Þetta leiðir hugann að erindi þínu um umburðarlyndi sem dyggð í frjálslyndu samfélagi. „Já, þetta ræddi ég í fyrirlestri mínum. Umburðarlyndi er það að vilja fjarlægð. Í samskiptum fólks með ólíkan uppruna á þetta að þýða einhvers konar yfirborðskenndan áhuga á menningu hvors annars. En ef ég ætla í raun að vingast við ein- hvern, að verða vinur hans, þá þurf- um ég og hann að skiptast á dóna- bröndurum. Mér er það alveg ljóst: við þurfum að fara yfir strikið í sam- einingu til að verða vinir. Pólitísk rétthugsun og umburðarlyndið sem henni fylgir er ótti við hinn, sem er í raun skortur á umburðarlyndi. Umburðarlyndi hefur nýverið yf- irtekið skilning okkar á vandamálum sem hafa verið fyrir hendi lengi. Hér hef ég einkum í huga rasisma. Nú á dögum er litið á rasisma sem vanda sem einkum snúist um umburð- arlyndi. En ég hef gert dulitla sögu- Engin lausn und- an fargi óranna Slavoj Žižek er einn af forvitnilegustu heim- spekingum samtímans. Viðar Þorsteinsson ræddi við hann um sér- stök áhugamál hans, klám og vinstrirót- tækni. BMW3 lína www.bmw.is Sheer Driving Pleasure Með bílinn handa þér Bíll á mynd: BMW 318i með 17” álfelgum og krómlistum. * BMW 318i kr. 3.750.000. Útborgun 30%. Lán í 84 mánuði. Kr. 35.300* á mánuði. B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - Sími 575 1200 - www.bl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.