Morgunblaðið - 22.04.2007, Síða 40
lífslistamaður
40 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
E
iríkur Finnsson hefur
alla tíð verið uppá-
tækjasamur dellukarl.
Það er varla til það
farartæki eða tóm-
stundagaman sem hann hefur ekki
prófað. Hann byrjaði með mekk-
anó-sett og þríhjól og upp frá því
tók hver græjan við af annarri.
Skellinöðrur, sportbátar, óteljandi
fólksbílar, mótorhjól, talstöðvar,
tölvur, myndavélar, fjarstýrð mód-
el, græjur og gæludýr af öllum
stærðum og gerðum. Þessa dagana
ekur hann um á skærgulu fjórhjóli
sem er útbúið með veltigrind og öll-
um aukabúnaði sem hugsast getur
en það mun ekki líða á löngu áður
en hann kemur sér upp einhverju
nýju farartæki og áhugamáli. Hann
er líka vel þekktur í sínu fagi því
hann er guðfaðir pítunnar á Íslandi.
Hann stofnaði fyrsta pítustaðinn á
Bergþórugötu fyrir næstum 25 ár-
um og síðar stofnaði hann sósufyr-
irtæki sem ber hans nafn, E.
Finnsson.
Fyrir tæpum tveimur árum tók
hann til starfa í mötuneyti Breið-
holtsskóla og fljótlega sá hann að
kerfið sem skólinn notaði við af-
greiðslu skólamáltíðanna var
óhentugt. Því þróaði hann tölvu-
kerfi fyrir mötuneytið. Gamla kerf-
ið var svifaseint og kostaði mikla
vinnu og var að auki ekki mjög
sveigjanlegt. Það virkaði þannig að
starfsmaður á skrifstofu skólans
þurfti um hver mánaðarmót að út-
búa plöstuð skírteini og dreifa til
þeirra nemenda sem keyptu skóla-
máltíðir og skírteinin voru síðan
götuð fyrir hverja máltíð.
Gallinn á gamla kerfinu var að
börnin áttu það til að gleyma eða
týna þessum skírteinum og eins gat
það tekið tíma og vinnu að útbúa ný
skírteini.
Nýtt tölvukerfi þróað
í eldhúsinu
Nýja tölvukerfið reynist hins
vegar vel. „Mér datt í hug að útbúa
þyrfti kerfi þar sem börnin þyrftu
ekki að bera neitt á sér. Sex ára
krakkar sem fara heim til sín í
þriggja gráðu frosti og gleyma úlp-
unni í skólanum eiga erfitt að
henda reiður á eitthvert skírteini,“
sagði Eiríkur. Í stað skírteinis fá
börnin leyninúmer sem saman-
stendur af fæðingarári þeirra og
tveimur tölustöfum að eigin vali.
Börnin halda þessu sama númeri
upp allan grunnskólann sem er
ákaflega þægilegt.
Skólastjóri Breiðholtsskóla er
ákaflega ánægður með frumkvæði
Eiríks. „Hann er svo mikill frum-
kvöðull í sér hann Eiríkur, ég held
að hann ráði bara ekki alveg við
þetta,“ sagði Sigþór Magnússon
skólastjóri í samtali við Morgun-
blaðið.
Nýja kerfið virkar þannig að
þegar röðin kemur að nemanda í
mötuneytinu þá slær hann inn
leyninúmer sitt á lítið lyklaborð.
„Þá kemur mynd af honum upp á
tölvuskjá og þá fer ekkert á milli
mála hver er að fara að borða og
það er okkar hagur ef við getum
orðað það svo,“ sagði Sigþór. Ef
búið er að greiða máltíðir fyrir
barnið blikkar grænn rammi á
skjánum en ef ekki er búið að
greiða er ramminn rauður. „Það er
engum vísað frá þó að rauður
rammi blikki á skjánum en þá veit
barnið um leið ef ekki er búið að
borga. Skrifstofustjórinn fær einn-
ig yfirlit yfir hvern dag og þannig
veitir kerfið aðhald án þess að það
bitni á börnunum.“ Á skjánum birt-
ast einnig upplýsingar um hvort
viðkomandi nemandi hafi ein-
hverjar sérþarfir í mataræði. Kokk-
urinn útbýr lista yfir það hráefni
sem er í matarréttum dagsins inn í
tölvuna og þá blikkar viðvörun hjá
þeim nemendum sem hafa ofnæmi
eða óþol við hinum ýmsu hlutum.
Gagnlegt fyrir foreldra
Kerfið er ekki síst hagstætt að
því leyti að það gerir starfsfólki
mötuneytisins auðveldara fyrir að
skipuleggja máltíðir og áætla fjölda
matarskammta. Hægt er að skrá
inn veikindi og fjarvistir nemenda
og allt bókhald er bæði skilvirkara
og fljótlegra. Kerfið nýtur sín hvað
best þegar upp koma óvæntir hlutir
og matartímar riðlast eða hópar
barna þurfa að borða á öðrum tím-
um en venjulega. Þá er engin hætta
á að það gleymist að í hópnum er
barn með matarofnæmi eða sér-
þarfir. Eftir því sem líður á morg-
uninn getur starfsfólk mötuneyt-
isins séð í kerfinu hversu margir
matarskammtar hafa farið út og
áætlað mun nákvæmar en áður
hversu margir eru eftir.
Sigþór sagði að sér væri kunnugt
um að þetta kerfi væri einnig í
skóla á Álftanesi þar sem menn eru
einnig ákaflega ánægðir með
reynsluna af því.
„Foreldrar hafa einnig gagn af
þessu kerfi því auðvelt er að fylgj-
ast með mataræði barna sem eru í
áhættuhóp og hugsanlega með át-
röskunarsjúkdóma,“ sagði Sigþór.
Kerfið skráir nefnilega líka ef börn
koma og fá ábót og borða vel. „Við
skömmtum mátulega á diskana og
viljum frekar að krakkarnir komi
og fái sér ábót,“ sagði Eiríkur um
ástæðuna fyrir ábótinni, þannig
næst betri nýting. Hann sagðist
einnig eiga auðveldara með að
fylgjast með birgðastöðunni og hrá-
efnisnýtingu. „Næst þegar ég elda
sama rétt get ég athugað hvað fóru
margir skammtar af honum,“ sagði
Eiríkur.
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins heimsótti hann í mötuneytið fór
ekkert á milli mála að hann náði vel
til krakkanna. „Þetta er ákaflega
lifandi starf, maður er ekki bara
kokkur heldur oft og tíðum hálf-
gerður sálfræðingur. Hingað koma
500 viðskiptavinir á hverjum degi
allir með sínar þarfir og áhyggju-
efni,“ sagði Eiríkur.
Skólastjórinn tók undir það: „Við
höfum haft nokkra drengi á ungl-
ingastiginu sem líður svolítið illa og
Eiríkur hefur haft frumkvæði að
því að kynna þeim störfin í eldhús-
inu og leyfa þeim að vera með sér í
því starfi og þeir hafa fengið heil-
mikið út úr því. Hann setti á þá
svuntur, húfur og hanska og lét þá
taka til hendinni,“ sagði Sigþór.
Inni í mötuneytinu hangir gríð-
arlega stórt líkan af gulri flugvél.
Það er fjarstýrt flugmódel af gerð-
Matreiðslumaðurinn Eiríkur Finnsson sér um mötuneyti fyrir um það bil sexhundruð og fjörutíu nemendur og starfsfólk í
Breiðholtsskóla í Reykjavík. Eiríkur er litrík persóna og uppfinningamaður og því fer fjarri að hann fari troðnar slóðir.
Dagur Gunnarsson hitti Eirík í skólamötuneytinu og fræddist um tölvuforrit, flugvélamódel og fjórhjól. Á vefvarpinu á mbl.is
má einnig sjá myndskeið þar sem rætt er við Eirík.
Ræður ekki við
frumkvöðulinn í sér
Morgunblaðið/ÓmarVígalegur Eiríkur ferðast um borg-
ina á öflugu fjórhjóli sem er hlaðið
öllum hugsanlegum aukabúnaði.
Áhugamál Eiríkur á
mörg áhugamál, fjarstýrð
flugvélamódel er eitt
þeirra og hangir eitt mód-
elið í lofti mötuneytisins.