Morgunblaðið - 22.04.2007, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 45
15:15 – 15:30 Skráning
15:30 – 15:40 Setning og kynning
15:40 – 15:50 Árni Mathiesen, fjármálaráðherra:
Einkaframkvæmdir á Íslandi í næstu framtíð
15:50 – 16:10 Davíð Þorláksson, lögfræðingur:
Ný skýrsla Viðskiptaráðs: Opinberar fasteignir
16:10 – 16:30 KPMG í Bretlandi kynnir skýrslu um árangur
einkaframkvæmda í Bretlandi 1997-2005
16:30 – 16:50 Kaffi
16:50 – 17:10 Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Inpro ehf.:
Einkaframkvæmdir í heilbrigðismálum
17:10 – 17:30 Margrét Pála Ólafsdóttir, formaður Samtaka sjálfstæðra skóla:
Einkaframkvæmdir í menntamálum
17:30 – 17:50 Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur
Einkaframkvæmdir í samgöngumálum
17:50 – 18:15 Pallborðsumræður
Auk frummælenda sitja í pallborði:
Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi og læknir
18:15 – 18:45 Kokteill
Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er ókeypis.
Fundarstjóri er Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Skráning er hjá Háskólanum í Reykjavík í síma 599 6200
og skraning@ru.is.
Dagskrá:
RÁÐSTEFNA UM
EINKAFRAMKVÆMDIR
Samstarfsaðilar:
Háskólinn í Reykjavík, Samtök atvinnulífsins,
Viðskiptaráð, KPMG, Glitnir, Þyrping, Nýsir, ÍAV,
Seltjarnarnesbær, Baugur, Sjóvá og Milestone.
Eru einkaframkvæmdir framtíðin á Íslandi?
Ráðstefna um einkaframkvæmdir á Íslandi verður haldin í Háskólanum í Reykjavík
mánudaginn 23. apríl kl. 15:30 – 18:15.
Markmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á möguleikum einkaframkvæmda
á Íslandi í nánustu framtíð og kynna hugmyndir að framtíðarsýn. Ráðstefnunni er ennfremur
ætlað að vera vettvangur umræðna um tækifærin á Íslandi, hvað hefur tekist vel erlendis,
hvaða víti ber að varast og hver eru lykilatriði þess að ná árangri.
MÁNUDAGINN 23. APRÍL 2007 Í HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK
OFANLEITI 2, STOFA 131 B
OFANLEITI 2 • HÖFÐABAKKI 9 • KRINGLAN 1
SÍMI: 599 6200 • www.hr.is
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
7
Á sumardaginn fyrsta fengu 30 börn á Íslandi og 10 börn í
Bandaríkjunum styrk til þess að fara í draumaferð til útlanda með
allri fjölskyldu sinni. Vegna gjafmildi farþega Icelandair, sem gefa
smámynt sína þegar þeir fljúga, fá þessar fjölskyldur tækifæri til
að njóta þeirra lífsgæða að ferðast og skemmta sér. Einnig gefa
félagar í Vildarklúbbi Icelandair vildarpunkta í sjóðinn.
Í tilefni af 70 ára afmæli Icelandair fara á þessu ári 70 fjölskyldur í
slíka ferð, en alls hafa á annað hundrað börn fengið styrk frá því að
sjóðurinn var stofnaður árið 2003. Tilgangur sjóðsins er að gefa
langveikum börnum og börnum sem búa við sérstakar aðstæður
tækifæri til að fara í ferð sem þau annars ættu ekki kost á.
+ Icelandair þakkar framlag ykkar - látum ennþá fleiri drauma
rætast í framtíðinni.
HÚN var svo sannarlega áhuga-
verð ræða formanns Sjálfstæð-
isflokksins við setningu
landsfundarins. Þar
gerði hann ekki lítið úr
samstarfi fulltrúa LEB
og þingflokksins. Það
er sannarlega rétt að
þessir hópar hittust
nokkrum sinnum, en
það er ekki rétt að þeir
hafi komist að ein-
hverri sameiginlegri
niðurstöðu varðandi
lagfæringar á kjörum
aldraðra. Það ber síst
að lasta það sem vel er
gert en mér finnst nú
afskaplega þunnur sá
boðskapur sem fram
kom.
Í ljósi þessa birti ég
hér þær kröfur sem
hafa verið settar á odd-
inn, og fengust ekki
ræddar í svokallaðri
„Ásmundarnefnd“,
með von um að þær
verði skoðaðar í fullri
alvöru núna.
Störf lands-
sambandsins hafa síð-
astliðið ár einkum
beinst að kjara-
málaþætti eldri borg-
ara og í því skyni hafa
eftirfarandi kröfur verið settar á odd-
inn:
1. Hækkun grunnlífeyris til
þeirrar upphæðar, sem honum
ber að vera í, eða um 70 þús-
und krónur á mánuði. (Hann er
í dag aðeins 24.831 krónur, og
er skertur við ákveðnar
tekjur.)
2. Grunnlífeyrir verði skil-
greindur sem hluti af eft-
irlaunum sem allir eiga að fá.
3. Tekjutengingar vegna lífeyr-
istekna verði afnumdar.
4. Tekjutengingar við tekjur
maka verði afnumdar.
5. Atvinnutekjur hafi ekki áhrif á
greiðslur frá Tryggingastofn-
un ríkisins.
6. Staðið verði við gerða samn-
inga og yfirlýsingar varðandi
hjúkrunar- og þjónustuíbúðir.
7. Greiðslur úr líf-
eyrissjóðum verði
skattlagðar að
hluta til sem fjár-
magnstekjur.
8. Hafin verði nú
þegar endur-
skoðun á lífeyr-
istryggingakafla
almannatrygg-
inga, m.a. með
eftirfarandi atriði
að markmiði:
– Að einfalda kerfi líf-
eyristrygginga svo það
verði sem virkast fyrir
þá sem byggja meg-
inafkomu sína á því.
– Að grunnlífeyrir
verði hækkaður veru-
lega og verði ekki tekju-
tengdur, en að tekju-
trygging verði
tekjutengd vegna um-
talsverðra annarra
tekna.
– Að tryggja að ör-
yrkjar sem ná ellilífeyr-
isaldri haldi áfram ald-
urstengdum, óskertum
örorkubótum.
– Að endurskoða
ákvæði um endurkröfu
lífeyrisgreiðslna frá TR.
Núverandi tryggingakerfi og lög
sem að því lúta eru svo flókin og tor-
skilin að nauðsyn ber til að allt kerfið
verði stokkað upp frá grunni.
Til að ná fram þessum kröfum hafa
verið haldnir fundir og ráðstefnur
með þingmönnum, bæði einstakra
flokka svo og sameiginlega með þing-
mönnum heilla kjördæma. Stefnt er
að því að ná fram ákveðnum lausnum
núna fyrir kosningarnar, sem fara
fram í byrjun maí næstkomandi, og
að fá ákveðin loforð varðandi framtíð-
ina.
Kröfur Landssam-
bands eldri borgara
varðandi kjaramál
Helgi K. Hjálmsson tíundar hér
kjarakröfur eldri borgara
Helgi K. Hjálmsson
» Það er rétt aðþessir hópar
hittust nokkrum
sinnum, en það
er ekki rétt að
þeir hafi komist
að einhverri
sameiginlegri
niðurstöðu varð-
andi lagfæringar
á kjörum aldr-
aðra.
Höfundur er viðskiptafræðingur og
varaformaður LEB.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn