Morgunblaðið - 22.04.2007, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
31.400.000 - AÐEINS 2 ÍBÚÐIR EFTIR
ALLT AÐ 90% FJÁRMÖGNUN. Erum með í
einkasölu 2 glæsilegar nýjar 4ra herbergja
íbúðir í lyftuhúsi með stæðum í bílageymslu til
afhendingar strax, fullkláraðar með gólfefnum
og vönduðum innréttingum.
Þórarinn sölumaður Draumahúsa
tekur á móti gestum s. 530 1811
Fr
u
m
Akurhvarf 1 - 203 Kóp
Opið hús í dag kl. 14:00 - 15:00
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu mjög góða neðri
hæð í tvíbýli 163,8 fm, þar af er bílskúr 28,9 fm. Eignin er mjög vel
staðsett í Norðurbæ Hafnarfjarðar í nálægð við skóla, leikskóla og alla
þjónustu. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús með
þvottahúsi innaf, gang, þrjú barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi,
geymslu og bílskúr með geymslu innaf. Gólfefni eru
parket og flísar. Fallegur garður. Verð 34,9 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Blómvangur - Hf. Sérhæð
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu mjög gott 214 fm
einbýli á einni hæð, þar af er 52 fm bílskúr. Einnig eru tvö óskráð rými,
22 fm sólskáli og milliloft upp á ca 85 fm. Húsið er vel staðsett þar
sem er stutt í skóla, leikskóla og alla þjónustu. Eignin skiptist í forstofu,
gestasnyrtingu, hol, eldhús, stofu með arni, borðstofu, fjölskyldurými,
tónlistarherbergi, sólstofu, gang, þrjú barnaherbergi, hjónaherbergi,
baðherbergi, milliloft, geymslu, þvottahús og bílskúr.
Fallegur gróinn garður. Frábær staðsetning. Verð 55 millj.
Upplýsingar gefur Þorbjörn Helgi s. 896-0058.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hörgslundur - Gbæ. Einbýli
VALLAKÓR 1-3 KÓPAVOGI
www.borgir.is
Ægir Breiðfjörð
Löggiltur fasteignasali
Ármúli 1, 108 ReykjavíkSími: 588-2030 | www.borgir.is
Vandaðar íbúðir í hinu fjölskylduvæna Kórahverfi í Kópavogi.
www.heimili.is
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 13-14
NÖKKVAVOGUR 52 - REYKJAVÍK
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími
530 6500
Fallegt og vel hannað einbýlishús með bílskúr. Húsið er bakhús og stendur í
enda botnlanga í fallegum garði í góðri rækt. Húsið er skráð 168,7 fm og
sérstandandi bílskúr 24,2 fm. Alls 192,7. Húsið stendur í 600 fm skjólgóðri
lóð. Húsið er vel hannað með hagkvæma nýtingu í huga og afstöðu til sólar.
Gangar innandyra eru litlir og afstaða herbergja innbyrðis góð. Svefnher-
bergi eru fjögur til fimm í tveggja hæða svefnálmu húsins.
Rúmgott eldhús með borðkrók. Stofa björt til suðurs með út-
gang út í garðinn og út af henni sólstofa. Fallegt hús á barn-
vænum rólegum stað.
Bogi Molby Pétursson löggiltur fasteignasali
og sölumenn sýnir húsið í dag frá kl. 13-14.
Bogi Molby
Pétursson
FJÓRIR þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins hafa um nokkurt skeið átt
í mjög góðum og árangursríkum við-
ræðum við fulltrúa
Landsambands eldri
borgara og Samtaka
eldri sjálfstæðismanna.
Við vorum sammála um
að sérstaklega þyrfti að
bæta kjör þeirra aldr-
aðra sem væru verst
settir og var það mat
manna að það væru
helst þeir sem af ýms-
um ástæðum ættu lít-
inn eða engan rétt í líf-
eyrissjóði. Þetta væru
t.d. konur sem voru
meira eða minna
heimavinnandi, fólk yfir 80 ára og
fatlaðir, sem aldrei voru á vinnu-
markaði. Fólk sem átti þess aldrei
kost að afla sér réttinda. Í þessum
hópi væru einnig þeir, sem ekki hefðu
sinnt lagaskyldu frá 1974 um að
greiða í lífeyrissjóð. Í þessum við-
ræðum kviknaði sú hugmynd að
tryggja sérhverjum öldruðum að lág-
marki 25 þ.kr. greiðslur frá lífeyr-
issjóði á mánuði til hliðar við
greiðslur almannatrygginga. Sam-
kvæmt okkar gögnum munu um
10.500 aldraðir njóta þessarar kjara-
bótar, sem er um þriðjungur aldr-
aðra. Þá vorum við einnig sammála
um að bæta hag aldraðra almennt
með því að minnka skerðingar TR og
að skoða sérstaklega
mál þeirra sem vilja og
geta unnið.
Uppistaðan í velferð-
arkafla ræðu Geirs H.
Haarde á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins tók
mið af þessum hug-
myndum og voru einu
kosningaloforðin sem
hann gaf sem formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Hann nefndi þrjú atriði
sem verða framkvæmd
fljótt ef Sjálfstæð-
isflokkurinn verður við
stjórn eftir kosningar.
Skerðingar bóta Tryggingastofn-
unar verða minnkaðar úr tæpum 40%
í 35% og kemur það meginhluta aldr-
aðra til góða sem hafa tekjur af
vinnu, úr lífeyrissjóði eða af fjár-
magni. T.d. er meðallífeyrir úr lífeyr-
issjóði um 80 þ.kr. Skerðingar vegna
slíks lífeyris minnka um 4 þ.kr. á
mánuði.
Sátt á að ríkja um það með þjóð-
inni að þeir, sem eru 70 ára eða eldri,
hafi skilað sínu framlagi til þjóð-
félagsins og atvinnutekjur þeirra eigi
ekki að skerða lífeyri frá Trygg-
ingastofnun. Þetta kemur þeim öldr-
uðum til góða, sem vilja og geta unnið
og hefur verið baráttumál aldraðra.
25 þ.kr. lágmark úr lífeyrissjóði
sem ofan er nefnt.
Í viðræðunum var að sjálfsögðu
rætt um samspil þessarar síðustu
kjarabótar við lífeyri Trygg-
ingastofnunar og áhrif skatta á þess-
ar tekjur eins og aðrar tekjur. Nið-
urstaðan er sú að aldraður sem býr
einn og hefur í dag engar tekjur frá
lífeyrissjóði fengi 25 þ.kr. á mánuði
sem skerðir tekjutryggingu frá
Tryggingastofnun um 35% og heim-
ilisuppbótina um 11,78%, alls um
11.695 kr. Við þessa breytingu
myndu lægstu tekjur ellilífeyrisþeg-
ans hækka úr 126 þ.kr. í tæpar 140
þ.kr. á mánuði og verður engin aldr-
aður, sem býr einn, með minna í
tekjur fyrir skatt. Lægstu tekjur
hvors hjóna mun hækka úr 103 þ.kr.
á mánuði í tæpar 120 þ.kr. ef maki er
með lífeyri en rúm 121 þ.kr. ella.
Lægstu tekjur sem hjón munu fá,
sem bæði eru á lífeyri, mun hækka
samanlagt úr 206 þ.kr. á mánuði í
tæpar 240 þ.kr. eða um 34 þ.kr. Þessi
trygging á lægstu tekjum aldraðra
má bera saman við lægstu laun í
landinu sem eru um 125 þ.kr. en af
þeim launum eru greitt 5% til lífeyr-
issjóðs og stéttarfélags.
Í grein í Morgunblaðinu hinn 18.
apríl reynir Jóhanna Sigurðardóttir
þingmaður Samfylkingarinnar að
gera lítið úr þessum hugmyndum
sem Geir flutti glæsilegum lands-
fundi sjálfstæðismanna og þjóðinni
allri. Það er svo sem í stíl við kvört-
unartón hennar en ég vona að þessar
upplýsingar mínar leiði fólk í sann-
leikann um áhrif þessara hugmynda.
Það er reyndar með öllu óskiljanlegt
hvernig hún blandar saman hug-
myndum um 25 þ.kr. lágmarkslífeyri
og því hvaða áhrif minni skerðingar,
sem gagnast öllum öldruðum, muni
hafa á 10 þ.kr. lífeyri (sem þá er ekki
til) og fær út 215 kr.
Örlæti Geirs, framhald
Pétur H. Blöndal skrifar um
hag aldraðra og svarar Jó-
hönnu Sigurðardóttur
»…sú hugmynd aðtryggja sérhverjum
öldruðum að lágmarki
25 þ.kr. greiðslur frá líf-
eyrissjóði á mánuði til
hliðar við greiðslur al-
mannatrygginga.
Pétur H. Blöndal
Höfundur er þingmaður.