Morgunblaðið - 22.04.2007, Qupperneq 57
þáttatekjur, laun starfsmanna,
rekstrarhagnað, vexti af fjármagni
og rentu af þeim auðlindum sem
nýttar eru, sem er sá hluti tekna
sem er umfram endurgjald fyrir
aðra framleiðsluþætti. Við aðgrein-
ingu rentu frá öðrum þáttatekjum
er gengið út frá markaðsvirði ann-
arra framleiðsluþátta, þ.e. mark-
aðslaunum, markaðsvöxtum af
lánsfé og að rekstrarhagnaður sé
eðlileg ávöxtun á fé í rekstrinum.
Virðisaukinn af starfsemi álvers
og orkuvers sbr. framangreint
kemur fram sem hagnaður álfyr-
irtækisins, vaxtagreiðslur þess,
laun starfsmanna og þjónustuaðila,
hagnaður orkusalans, vaxta-
greiðslur hans og laun starfs-
manna og þjónustuaðila. Alla þessa
liði er unnt að meta allvel. Það
verður þó ekki gert hér heldur
reynt að greina tvennt nánar. Ann-
ars vegar hversu stór hluti virð-
isaukans verður eftir hér á landi
og hins vegar hversu stór hluti
virðisaukans er renta af auðlind-
inni og hvað verður um hana.
Stóriðja og orkuframleiðsla er
að mestu fjármögnuð með erlendu
fé. Aðföng önnur en rafmagn koma
að mestu frá útlöndum og launa-
kostnaður er jafnan lítill hluti
kostnaðar í stóriðju og orkufram-
leiðslu og álitamál hvort telja á
með við mat á áhrifum stóriðju í
efnahagskerfi þegar full vinna er
fyrir alla. Stærsti hluti virðisauk-
ans felst í vaxtagreiðslum og hagn-
aði álversins og orkusalans. Hlutir
erlendra aðila í virðisaukanum eru
vaxtagreiðslur álversins og orku-
versins og hagnaður álversins eftir
skatta. Hlutdeild innlendra aðila
eru launagreiðslur fyrirtækjanna,
hagnaður orkusalans og skattur af
hagnaði álversins. Hlutur inn-
lendra aðila í virðisaukanum er því
ekki stór og hefur líklega farið
minnkandi á undanförnum.
Síðara atriðið sem greina átti er
þáttur auðlindarinnar í virðisauk-
anum og að kanna hverjum hún
fellur í skaut. Verður það gert með
því að athuga hvort renta af auð-
lindinni felist í þeim þáttatekjum
sem ræddar hafa verið, launum,
vaxtatekjum og rekstrarhagnaði
og ef svo er hvert hún rennur. Ef
gert er ráð fyrir markaðslaunum
fyrir vinnu og að vextir af fjár-
magni til orkuversins og álversins
lúti markaðslögmálum taka þessir
framleiðsluþættir ekki til sín hluta
af auðlindarentunni og á það líka
við um hráefni og önnur aðföng til
starfseminnar. Er því ljóst að auð-
lindarentan felst í hagnaði orku-
versins og álversins. Til þess að
meta hvaða rentu auðlindin skilar
og hvert hún skilar sér er þrennt
afgerandi. Í fyrsta lagi það heims-
markaðsverð orku, í öðru lagi sölu-
verð hins íslenska orkusala og í
þriðja lagi framleiðsluverð rafork-
unnar.
Í næstu grein verður reynt að
gera grein fyrir rentunni og ráð-
stöfun hennar.
Höfundur er hagfræðingur.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 57
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS GRENIMELUR 13 E.SÉRH.
Glæsileg og björt 4ra herbergja mikið end-
urnýjuð efri sér hæð við Grenimel í Reykja-
vík. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús,
baðherbergi, stofu, borðstofu og tvö her-
bergi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús
og sér geymsla. EIGNIN VERÐUR TIL
SÝNIS Í DAG SUNNUDAG) FRÁ KL. 15-16.
V. 34,9 m. 6565
OPIÐ HÚS KRISTNIBRAUT 51 205
Nýleg og falleg íbúð á 2.hæð í litlu fjölbýlis-
húsi.búðin skiptist í forstofuhol, eldhús með
borðkrók, stofu, þvottaherbergi, baðher-
bergi, og tvö svefnherbergi. Útsýni. Eiguleg
og falleg íbúð. EIGNIN VERÐUR TIL SÝNIS
Í DAG (SUNNUDAG) FRÁ KL. 14-15. V.
24,4 m. 6500
Bólstaðarhlíð-Gott útsýni Um er að
ræða 98,7 fm 3ja herbergja íbúð á 3. hæð
auk 5,9 fm geymslu. Samtals er eignin 104,6
fm. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, stofu, tvö
svefnherbergi og baðherbergi. Sér geymsla
fylgir í kjallara. Einnig er sameiginlegt þvotta-
hús í kjallara sem og sameiginleg vagna og
hjólageymsla V. 21,9 m. 6539
Dofraborgir - verönd og heitur
pottur Um er að ræða 77,0 fm 3ja her-
bergja íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli ásamt 20,
8 fm bílskúr og 11,2 fm geymslu. Íbúðin
skiptist þannig: stofa, tvö herbergi, eldhús,
baðherbergi og hol, auk geymslu. Bíl-
skúrinn er á jarðhæð og innaf honum er
geymsla. Samtals er eignin 109,0 fm. Stór
verönd og heitur pottur. V. 25,4 m. 6491
Ásholt m. bílageymslu 2ja herbergj
48 fm íbúð á 3. hæð i eftir sóttu lyftuhúsi
ásamt 26,8 fm bílskýli sem innangengt í
Húsið er byggt árið 1990 og er steinsteypt.
Fallegur lokaður garður. Mjög góð sameign
er í húsinu. Laus strax. Húsvörður. V. 16,9
m. 6576
Berjarimi - m. bílageymslu 2ja herb.
mjög falleg 58 fm íbúð á jarðhæð ásamtt
stæði í bílageymslu. Sérverönd sem hægt er
að byggja sólpall á. Lögn fyrir þvottavél á
baði. Getur lostnað fljótlega. V. 17,5 m.
6563
Hlíðarhjalli 2ja - Björt og vel
staðsett Mjög góð 60,5 fm íbúð á 2.hæð
t.v. Íbúðin skiptist í forstofuhol, eldhús, stof-
ur, baðherbergi og svefnherbergi. Vel stað-
sett og góð íbúð. Laus strax - lyklar á
Eignamiðlun. V. 16,8 m. 6574
Háagerði - Raðhús Um er að ræða
gott 125,2 fm endaraðhús á góðum stað í
smáíbúðahverfinu. Húsið skiptist í 5 her-
bergi, 2 stofur, eldhús, 2, baðherbergi og
þvottahús. GÓÐ KAUP, SÉRBÝLI V. 33,5
m. 6569
Lækjarvað - Efri sérhæð + Bíl-
skúr Efri sérhæð í tvíbýlishús. Húsið er
endahús og er um að ræða tengihús á
tveimur hæðum. Bílskúr fylgir íbúðinni. Húsið
er timburhús og er það klætt að utan með
fallegri málmklæðningu. Hiti er í gólfi. Skiptist
í búðin í stofu, eldhús, þvottahús, baðher-
bergi, sjónvarpshol og þrjú svefnherbergi.
Innréttingar og skápa vantar í lokafrágagn.
V. 39,0 m. 6392
Þorragata - fyrir eldri borgara -
Laus strax. Falleg 2ja herbergja 58,2 fm
íbúð á jarðhæð með sér garði í þessu vin-
sæla húsi við Þorragötu. Íbúðin skiptist í for-
stofu, baðherbergi, stofu/eldhús og svefn-
herbergi. Sér geymsla fylgir á hæðinni. Sam-
eiginlegt þvottahús. Um er að ræða íbúð fyrir
borgara. V. 18,0 m. 6330
Stokkseyri - Sumarhús á sjávarl-
óð Nýkomið í sölu sumarhús á sjávarlóð við
Stokkseyri. Húsið er skráð 58,0 fm og skipt-
ist í stofu, eldhúskrók, tvö svefnherbergi,
milliloft og baðherbergi. Húsið stendur á
sjávarlóð með stórfenglegu útsýni. Óskað er
eftir tilboðum í eignina. 6512
Álfhólsvegur - Fallegt útsýni Um er
að ræða 3ja herbergja bjarta og fallega íbúð
á góðum stað í Kópavogi. Eignin skiptist í
hol, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottaher-
bergi og tvö svefnherbergi. Mjög góð sér
geymsla fylgir í kjallara. 6572
Á sjávarlóð á Álftanesi Nýtt glæsilegt
einbýli sem stendur nær upp við sjáv-
arkambinn en einnig er óbyggt svæði vestan
megin hússins og má því segja að lóðin sé
óvenju velstaðsett. Húsið í heild er 307 fm en
þar af er um 50,5 fm bílskúr og 62 fm sér
íbúðarrými. Byggingaraðili hefur lagt mikinn
metnað í húsið og vinnubrögð eru vönduð.
Húsið selt tilb. til innréttinga. Laus nú þegar.
V. 85 m. 6577
Grasarimi - Góð eign Um er að ræða
155,4 fm einbýlishúsmeð 20,7 fm innbyggð-
um bílskúr. Bílskúr hefur verið stækkaður og
því er hann aðeins stærri en uppgefinn fm
fjöldi hjá FMR. Eignin skipstist í forstofu, 3
svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu,
stofa, borðstofa, sjónvarpshol, eldhús og
þvottahús. Garður við húsið er sérstaklega
skemmtilegur og góður. Stórglæsileg timbur-
verönd með tengi fyrir heitann pott. Bílskúr
er fullbúinn og góður. V. 46,5 m. 6578
Bæjargil - Garðabær Mjög gott ein-
býlishús með innbygðum bílskúr, húsið er
hæð og ris á góðum stað í Garðabænum,
húsið er 191,1fm. Húsið skiptist í hol, stofur,
eldhús, sólskála, þrjú svefnherbergi gesta-
baðherbergi, baðherbergi og bílskúr með
þvottahúsi V. 49 m. 6561
Hranubær- Útsýni Mjög góð 2ja her-
bergja 60,8 fm íbúð á annari hæð, með góð-
um suður svölum og útsýni yfir elliðadalinn.
Íbúðin skiptist í hol, eldhús, stofu, baðher-
bergi og svefnherbergi, geymsla í kjallara. V.
14,9 m. 6558
Efstasund - standsetning Um er að
ræða 99,6 fm eign sem er hæð og ris í
þessu gróna hverfi. Íbúðin skiptist í 2 stórar
stofur, svefnherbergi, eldhús, baðherbergi
og óinnréttað risloft. V. 27 m. 6571
OPIÐ HÚS Í DAG
OPIÐ HÚS Í DAG
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Opið hús í dag milli
kl. 16:00 og 17:00
Þórðarsveigur 18 íbúð 401
Lyfta / Útsýni / Bílgeymsla
Glæsileg 86,8 fm 3ja herb. enda-
íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Parket á
gólfum, fallegar samstæðar innrétt-
ingar. Opið eldhús inn í borð-
stofu/stofu. Bjartar svalir og
skemmtilegt útsýni (Esjan og uppá
Skaga). Rúmgott flísalagt baðher-
bergi með baðkeri og sturtuað-
stöðu. Lítið herbergi/geymsla með glugga innan íbúðar sem í dag er nýtt
sem tölvuherbergi. Góður skápur í anddyri og báðum svefnherbergjum.
Opin og skemmtileg íbúð í nýlegu lyftuhúsi með stæði í lokaðri bílgeymslu.
Geymsla á 1. hæð. Mjög falleg eign. Verð 21,9 millj.
Valdimar tekur á móti gestum milli kl. 16 og 17 í dag sunnudag.
Bjalla merk 401. Teikningar á staðnum
ÁHRIF af áratugalangri
óstjórn í umferðar- og skipulags-
málum höfuðborgarsvæðisins
verður nú æ augljósari. Hlutar
borgarinnar breytast í bílaeyði-
mörk á hverjum degi með tilheyr-
andi mengun og slysahættu.
Skuggi einkabílismans teygir sig
yfir borgarhverfin og börnin okk-
ar eru hætt að ganga.
Þá rísa bæjarstjórar á höf-
uðborgarsvæðinu upp og krefjast
7–9 milljarða til aukinna vega-
framkvæmda. Þannig á að koma á
móts við aukna umferð og fjölgun
bíla. Í stað 4-falds ljósorms á leið
inn til Reykjavíkur á hann að
verða 6-faldur eða 8-faldur. Hvílík
framtíðarsýn! Fleiri bílar munu
einnig þurfa sitt pláss á leið-
arenda og blikkið mun leggja mið-
borgina enn frekar undir sig. Eða
þá að suðvesturhornið verður loks
alvöru bílaborg, án nokkurs
kjarna. Eitt atkvæði í hverjum bíl,
takk fyrir, og við setjum svifrykið
í stokk!
Ó, þið náttúrubörn Íslands sem
sitjið á kaffihúsunum, hvar er
rödd ykkar nú? Munuð þið slást í
för með þessum hugumstóru
mönnum sem nú banka uppá hjá
fjárlaganefnd í aðdraganda kosn-
inga og biðja um 7-9 milljarða í
malbik og steypu? Mönnum sem
af einskærri umhyggjusemi fyrir
útsvarsgreiðendum tímdu ekki að
láta örfáar milljónir í almennings-
samgöngukerfið í fyrra?
Mannkynssagan kennir okkur
að á þrengingatímum eru það
frumlegar og djarfar lausnir sem
skilja eftir sig spor. Frambúð-
arlausn á umferðarvanda höf-
uðborgarsvæðisins fæst ekki með
því að byggja stærri umferð-
armannvirki fyrir fleiri bíla, þar
sem einn maður tekur með sér
tonn af blikki í vinnuna. Hún felst
í því að ráðast nú einusinni í raun-
verulegar endurbætur á almenn-
ingssamgöngukerfinu, laga það að
þörfum notenda og gefa því for-
gang framyfir einkabílinn. En til
þess þarf pólitískan kjark og á
honum er mikill skortur um þess-
ar mundir.
Áskell Örn Kárason
Umferðarhnútur
Höfundur er sálfræðingur, býr í
Reykjavík en er að flytja út á land.