Morgunblaðið - 22.04.2007, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 65
Chiptuning - Unitronic
Aflaukning véla og endurforritun á
stjórnbúnaði. Endurstilli búnað fyrir
sparakstur. Allir evrópskir bílar og
Toyota 1,4 D4D. Bensínvélar 1,4 og
1,6. Sími 823 8046.
Jeppar
Útsala - Útsala Suzuki Vitara 1600
árg. ‘99, beinsk., skoðaður 08, drátt-
arkúla. Verð aðeins 395.000 stgr.
Sími 893 5201.
Bílar
VW Touareg V8 árg. 2006
Ek. 19 þús. Leðurinnrétting, loftpúða-
fjöðrun, vetrarpakki, fjarlægðarskynj-
ari, bakkmyndavél, dráttarkrókur,
navigation o.fl. 6.900 þús. Tilb.
staðgr. 6.200 þús.
Sími 899 7071.
Opel Vectra 2000 1600 CC.
Bíllinn minn er til sölu, 4 dyra, sjálf-
skiptur, álfelgur, ekinn 99 þús., silfur-
grár á litinn, skoðaður ‘08, mjög vel
með farinn bíll, listaverð er 590 þús.
Upplýsingar í síma 694 2326.
Hjólhýsi
LMC 520 Dominant til sölu. LMC
520 hjólhýsi til sölu. Fullbúið með
öllu, svefnpláss f. 4. Til sýnis í Aust-
urbergi 32. Uppl. í síma 868 1574.
Landhaus 2006 + Lóð
Þau eru komin Hobby Landhaus UML
Hægt að fá lóð á Laugarvatni.
Aukabúnaður f. ca. 600 þ. Alde ofna-
kerfi, gólfhiti, 10 ferm. heilsárs-for-
tjald með súlum, timburþaki og gólfi.
Myndir og nánari uppl. í s: 8984500
og 894 6000
www.vagnasmidjan.is
Húsbílar
Til sölu Ford Transit húsbíll. Ford
Transit 2,5TD, 100 hö, árg. ‘00. Ekinn
98 þ. Svefnpl. f. 6. Sæti f. 8. Verð
2.990 þ. S. 895 3810.
Glæsilegur húsbíll til sölu
stórglæsilegur húsbíll GMC 1994.
Túrbó diesel, ekinn 41 þúsund km.
Sjón er sögu ríkari, einn með öllu.
Verð 7.5 millj. Uppl. í s 897 0490.
Mazda 6 árg. 2003. Verð 1.730.000.
Sjálfskiptur, rafmagn í rúðum og spegl-
um, topplúga, hiti í sætum, sumar +
vetrardekk á felgum. Ekinn 42.000.
Mögul. að yfirtaka lán 1.300.000.
Sími 846 1187.
Ford árg. '02, ek. 75 þús. km. Ford
Escape XLT 2002, einn með öllu,
krókur, leður, sóllúga o.fl. Skoða
skipti á góðum fólksbíl dýrari/ódýrari.
Ásett verð 1.890.000. Sími 821 7615/
itv@go.is
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
569 1100
Pera vikunnar
Árið 2005 seldi bifreiðaumboð 60 bíla. Af þeim voru 30% silfurlitir.
Árið 2006 seldi þessi sami aðili jafnmarga silfurlita bíla og árið á
undan en nú voru silfruðu bílarnir aðeins 25% af heildarsölunni.
Hve marga bíla seldi bifreiðaumboðið árið 2006?
Skilafrestur fyrir réttar lausnir er til kl. 12 mánudaginn 30. apríl.
Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopavogur.is
en athugið að þessi Pera verður ekki virk þar fyrr en eftir hádegi
þann 23. apríl. Þessi þraut birtist á vefnum fyrir kl.16 þann sama dag
ásamt lausn síðustu þrautar og nöfnum vinningshafanna.
Stærðfræðiþraut Digranes-
skóla og Morgunblaðsins
Rangur starfstitill
Í FRÉTT um bensínverð í Morgun-
blaðinu í gær er Runólfur Ólafsson
sagður formaður Félags íslenskra
bifreiðaeigenda. Hið rétta er að
hann er framkvæmdastjóri. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
RÁÐSTEFNA um einkafram-
kvæmd á Íslandi verður haldin á
vegum Rannsóknarmiðstöðvar um
einkaframkvæmd við Háskólann í
Reykjavík mánudaginn 23. apríl kl.
15.30 – 18.15.
Markmið ráðstefnunnar er að
vekja athygli á möguleikum einka-
framkvæmdar á Íslandi til næstu
framtíðar og kynna hugmynd að
framtíðarsýn. Ráðstefnan er vett-
vangur umræðna um tækifæri á Ís-
landi, hvað vel hefur tekist erlend-
is, víti til varnaðar og lykilatriði til
árangurs. Meðal frummælenda er
Árni Mathiesen fjármálaráðherra
sem mun ræða um einkafram-
kvæmd á Íslandi í næstu framtíð.
Er einka-
framkvæmd
framtíðin?
MORGUNBLAÐINU barst eftir-
farandi yfirlýsing frá Háskólanum í
Reykjavík.
„Mishermt er í grein Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur um kynbund-
inn launamun í Morgunblaðinu í gær
að Svafa Grönfeldt, rektor Háskól-
ans í Reykjavík, hafi lýst yfir stuðn-
ingi við þær aðferðir sem lýst er í
stefnuskrá Samfylkingarinnar um
afnám launaleyndar.
Hið rétta er að Háskólinn í
Reykjavík mun verða eitt af fyrstu
fyrirtækjum og stofnunum landsins
til að sækja um vottun jafnra launa á
vegum félagsmálaráðuneytisins eins
og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum
undanfarna daga.
Háskólinn í Reykjavík vill vera í
fararbroddi í jafnréttismálum og
hefur HR valið þessa leið sem heppi-
legasta til að tryggja jafnrétti starfs-
manna sinna.“
Yfirlýsing
frá Háskól-
anum í
Reykjavík
MYNDASÝNING/ferðakynning
sem íslenskir fjallaleiðsögumenn
standa fyrir í samvinnu við 66°
norður verður miðvikudaginn 25.
apríl kl. 18-20 í verslun 66° norður í
Faxafeni 12. Boðið verður upp á
létta hressingu og 20% afslátt af
útivistarfatnaði fyrir fullorðna frá
66° norður.
Leifur Örn Svavarsson sérfræð-
ingur í snjóflóðavörnum á Veður-
stofunni og einn reyndasti fjalla-
leiðsögumaður á Íslandi fjallar um
2 spennandi ferðir: Mont Blanc og
Ammassalik á Grænlandi
Leifur hóf fjallamennskuferil
sinn með Alpaklúbbnum sem ung-
lingur og hlaut frekari þjálfun hjá
Flugbjörgunarsveitinni í Reykja-
vík, þar sem hann starfaði í tugi
ára.
Leifur á að baki fjölda leiðangra
og klifurferða hérlendis sem er-
lendis, þar ber hæst: Gunnbjörns-
fjall, Forell fjall og Liverpool land á
Grænlandi og Mt. Mckinley (hæsta
fjall norður Ameríku), Elbrus
(hæsta fjall Evrópu), Peak Lenina
og nýlega Aconcagua (hæsta fjall
suður Ameríku).
Íslenskir fjallaleiðsögumenn
í samstarfi við 66° norður
DAGANA 26. og 27. apríl verður
haldin árleg ráðstefna þroskaþjálfa-
brautar við Kennaraháskóla Íslands
og ber hún yfirskriftina: Horft til
framtíðar.
Þar kynna útskriftarnemar loka-
verkefni til BA-gráðu sem þeir hafa
unnið í nánu samstarfi við vænt-
anlegan starfsvettvang. Á dagskrá
eru áhugaverð verkefni sem gefa
innsýn í þá sérfræðiþekkingu og
möguleika til dýpkunar á völdu sviði
sem nemendum stendur til boða.
Verkefnin að þessu sinni eru á sviði
barna- og fjölskyldumála, skóla-
mála, heilbrigðismála og öldr-
unarþjónustu, réttinda og atvinnu-
mála og fullorðinsfræðslu og
búsetuþjónustu.
Ráðstefnan er haldin í Skriðu, fyr-
irlestrasal Kennaraháskóla Íslands í
Stakkahlíð og hefst kl. 9 með ávarpi
Vilborgar Jóhannsdóttur, lektors og
forstöðumanns þroskaþjálfabrautar.
Í fréttatilkynningu er bent er á að
efni ráðstefnunnar höfðar jafnt til
fagfólks og annars starfsfólks og
notenda þjónustunnar og aðstand-
enda þeirra. Aðgangur er öllum op-
inn og ókeypis og hægt er að sækja
einstaka fyrirlestra.
Ráðstefna
útskriftarnema
í þroska-
þjálfafræðum
STOFNUN Vigdísar Finnboga-
dóttur í erlendum tungumálum við
Háskóla Íslands (SVF) og Promens
hafa gert með sér samkomulag um
samstarf til ársins 2011. Framlag
Promens felst í fjárhagslegum
stuðningi sem varið verður til efl-
ingar starfsemi stofnunarinnar.
Samninginn undirrituðu Kristín
Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Ís-
lands, og Ragnhildur Geirsdóttir,
forstjóri Promens. Vigdís Finn-
bogadóttir var viðstödd undirrit-
unina ásamt stjórn stofnunarinnar.
Promens verður einn af helstu
bakhjörlum SVF og leggur þannig
sitt af mörkum svo mögulegt verði
að hrinda í framkvæmd framtíðar-
áformum stofnunarinnar um al-
þjóðlega þekkingarmiðstöð tungu-
mála á Íslandi.
SVF stundar rannsóknir í erlend-
um tungumálum og meðal helstu
fræðisviða eru málvísindi, bók-
menntir, þýðingar, menningarlæsi,
kennsla erlendra tungumála og
notagildi tungumála í atvinnulífinu.
Promens er alþjóðlegt fyrirtæki og
meðal stærstu plastframleiðenda
heims. Fyrirtækið starfrækir 64
verksmiðjur í 22 löndum og hefur á
að skipa 5.800 starfsmönnum. Áætl-
uð velta fyrirtækisins árið 2007 er
rúmlega 60 milljarðar íslenskra
króna.
Góð tungumálakunnátta og
menningarlæsi skipta miklu máli
fyrir starfsemi alþjóðlegs fyrirtækis
eins og Promens og oft ræðst ár-
angurinn af menntun starfsmanna á
þessu sviði. Stjórnendur Promens
eru áfram um að heiðra merkt
framlag Vigdísar Finnbogadóttur,
fv. forseta, til tungumála og vilja
leggja sitt af mörkum til að vekja
athygli á gagnsemi rannsókna og
menntunar á sviði tungumála og
menningarlæsis. Til lengri tíma litið
er það von stjórnenda Promens að
geta stuðlað að aukinni tungumála-
kunnáttu íslenskra ungmenna og
læsi þeirra á menningu annarra
þjóða. Slík menntun eykur víðsýni
þeirra og hæfni til að takast á við
ögrandi verkefni í alþjóðlegu um-
hverfi. Fyrirtækið sér hag í sam-
starfi við stofnun Vigdísar Finn-
bogadóttur og þeim tækifærum
sem felast í því að geta nýtt sér
þekkingu og reynslu sérfræðinga
hennar, segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu.
Stofnun Vigdísar Finnboga-
dóttur og Promens í samstarf
Morgunblaðið/G. Rúnar
Undirritun Forsvarsmenn Promens og Stofnunar Vigdísar Finnboga-
dóttur undirrituðu samstarfssamninginn á föstudag.