Morgunblaðið - 22.04.2007, Side 66
66 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Stór-bruni varð í mið-borg
Reykjavíkur á miðviku-daginn.
Rúm-lega 200 ára gamalt
hús, Austur-stræti 22,
gjöreyði-lagðist og
Lækjar-gata 2, sem var reist
fyrir meira en 150 árum,
stór-skemmdist. Saman
mynduðu þessi hús eina
elstu varð-veittu götu-mynd í
Reykjavík.
„Mér finnst bæði dapurt og
sárt að þurfa að upp-lifa
brunann og átökin við eldinn
og sjá smám saman þessar
af-leiðingar,“ sagði Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson borgar-stjóri.
Það þykir lík-legt að
kviknað hafi í út frá loft-ljósi í
sölu-turni sem stendur á milli
bygginganna. Þaðan
breiddist eldurinn hratt út til
beggja átta. Rann-sókn á
elds-upp-tökum stendur nú
yfir og er ekki úti-lokað að
kveikt hafi verið í.
Milli 80 og 100 manns
unnu að slökkvi-starfinu.
Ágæt-lega gekk að ráða
niður-lögum eldsins í
Lækjar-götu 2. Verr gekk í
Austur-stræti og að lokum
varð að rífa þakið af húsinu.
Stór-bruni í mið-borginni
Morgunblaðið/Sverrir
Húsið við Austur-stræti 22 er ónýtt. Þar var Pravda til húsa.
Aur-flóð varð á Sauðárkróki á
sunnudags-morgun. Flóðið
lenti á 7 íbúðar-húsum og 2
bílum. Það var snar-ræði
starfs-manna RARIK að
þakka að ekki fór verr. Það
liðu aðeins 15–20 mínútur
frá því að lekans varð vart þar
til lokað var fyrir
vatns-rennslið sem kom frá
sprunginni pípu.
Hreinsunar-starf fór fram alla
vikuna.
Jón Arnar Berndsen,
bæjar-verk-fræðingur hjá
Sveitar-félaginu Skaga-firði,
segir að erfitt sé að meta
tjónið. Íbúðar-húsin
skemmdust mikið, líka
innanstokks-munir.
Aur-flóð á
Sauðárkróki
Morgunblaðið/ÞÖK
Frönsku
forseta-kosningarnar
Fyrri um-ferð frönsku
forseta-kosninganna fer fram
í dag. Skoðana-könnun, sem
birt var á miðvikudag, sýndi
að Nicolas Sarkozy,
fram-bjóðandi hægri-manna,
fengi 29,5% at-kvæða,
Segolene Royal,
fram-bjóðandi sósíal-ista,
24,5% og miðju-maðurinn
Francois Bayrou 18,5%.
Hægri-öfga-manninum Le
Pen er spáð 13,5%.
Sam-kvæmt þessu fær
enginn fram-bjóðenda
til-skilinn meirihluta og því
verði kosið á milli tveggja
efstu 6. maí. Er því spáð, að
þá fái Sarkozy 53% en Royal
47%. Enn er um þriðjungur
kjósenda óákveðinn eða 17
milljónir manna.
Konur í meiri-hluta
Matti Vanhanen var kjörinn
forsætis-ráðherra á þingi
Finnlands á miðvikudag.
Ráðherra kynnti nýja
samsteypu-stjórn.
Konur eru í meiri-hluta í
stjórninni, eiga að gegna 12
ráðherra-embættum og
karl-menn 8. Konurnar eiga
meðal annars að fara með
dóms-, atvinnu-, fjar-skipta-,
Evrópu-, mennta-,
sam-göngu- og
landbúnaðar-mál.
Tarja Halonen, for-seti
Finnlands – sem einnig er
kona – skipaði ráð-herrana
formlega á fimmtu-daginn.
Erlent
Á miðvikudags-kvöld komu 7
manns á slysa-deild
Land-spítalans í Foss-vogi.
Þeir höfðu brennst af völdum
sjóð-heits vatns-flaums sem
rann niður Vatns-stíg. Yfir-leitt
var um 1.–2. stigs bruna að
ræða. Tveir þurftu að dvelja
nokkra daga á spítalanum.
Lögregla fékk til-kynningu
kl. 21.42 þegar heita vatnið
tók að streyma. Vatnið varð
aldrei mjög djúpt, krafturinn
var tölu-verður og það var
80°C heitt. Vatn lak inn í
kjallara verslunar við
Vatnsstíg 12 og olli miklum
skemmdum. Um 40 mínútur
tók að stöðva lekann.
Vatns-
flaumur
brennir illa
Mann-skæðasta skot-árás í nútíma-sögu
Banda-ríkjanna varð á mánu-daginn.
Náms-maður í Há-skóla í Virginíu-fylki skaut á
fólk í heima-vist og kennslu-stofum. Hann
myrti 32 manns og síðan sjálfan sig.
Morðinginn hét Cho Seung-hui og var 23 ára
gamall Suður-Kóreu-maður, sem kom til
Banda-ríkjanna ásamt for-eldrum sínum
þegar hann var 8 ára. Hann þótti ákaf-lega
ein-rænn og ljóst að mikil, inni-byrgð reiði
þjakaði hann. Hann var sendur í
geð-rannsókn síðla árs 2005. Cho skildi eftir
sig langt bréf, fullt af bræði, þar sem hann
kenndi ríkum krökkum og sið-spillingu um
skot-árásina.
Sama dag og harm-leikurinn átti sér stað,
sendi Cho pakka með 28 mynd-skeiðum og
43 ljós-myndum til
NBC-sjónvarps-stöðvarinnar. Þar beinir hann
skot-vopni að mynda-vélinni. Birting
stöðvarinnar á myndunum er mjög um-deild.
Mann-skæð
skot-árás
Reuters
Minningar-reitur um fórnar-lömb árásar-innar.
Sumar-dagurinn fyrsti var
haldinn hátíð-legur á
fimmtu-daginn um allt land.
Skátar, lúðra-sveitir og
skrúð-göngur voru á sínum
stað, og lista-menn landsins
skemmtu börnum sem
full-orðnum í besta veðri.
Gleði-legt sumar!
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Það er vinsælt að fá sér andlits-málningu.
Fríða Rún Einarsdóttir
úr Fimleika-félaginu
Gerplu varð sex-faldur
Norður-landa-meistari
á Norður-landa-móti
ung-linga í fim-leikum
sem haldið var í
Kaupmannahöfn í
Danmörku um
seinustu helgi. Fríða
Rún sigraði í
fjöl-þrautinni og vann
sigur á öllum 4
áhöldunum: í stökki, á
tví-slá, jafnvægis-slá
og í gólf-æfingum.
Hún var í sigur-sveit Íslands
sem vann liða-keppnina og
það er í fyrsta skipti sem
Ísland hrósar sigri í
liða-keppni á
Norðurlanda-móti.
„Ég bjóst alls ekki við
þessu þar sem ég var að
keppa gegn mjög sterkum
stelpum,“ sagði Fríða Rún.
Sex gull-verðlaun
Morgunblaðið/Kristinn
Fríða Rún Einarsdóttir
Netfang: auefni@mbl.is