Morgunblaðið - 22.04.2007, Page 67

Morgunblaðið - 22.04.2007, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2007 67 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Opið hús laugard. 5. maí og sunnud. 6. maí kl. 13-17. Munir sem þátttakendur í félagsstarfi hafa unnið að í vetur verða til sýnis. Á laugard. verður tískusýning og á sunnud. sýnir Út og suður línudans ásamt börnum úr Hlíðarskjóli. Ingvar Hólmgeirs. verður með nikkuna báða dag- ana. Veislukaffi. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan í Gull- smára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10- 12.30. S. 554-1226. Skrifstofa FEBK í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 13-14. S. 554-3438. Fé- lagsvist er spiluð í Gjábakka á miðvikudögum kl. 13 og í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur sunnu- dagskvöld kl. 20. Caprí-tríó leikur. Vorfagnaður verður haldinn föstudaginn 27. apríl kl. 20. Fjöl- breytt skemmtiatriði og dans. Félagsstarf Gerðubergs | Miðvikud. 25.apríl kl. 13 er lagt af stað á Sögusýningu Landsbankans, allir velkomnir. Skráning á staðnum og s. 575-7720. Fimmtud. 26. apríl kl. 13.15 ,,Kynslóðir saman í Breiðholti“ félagsvist, samstarf Seljaskóla og eldri borgara, Garðheimar veita verðlaun, allir velkomnir. Hæðargarður 31 | Allir velkomnir í félagsstarfið. Fastir liðir eins og venjulega. Komdu við í morg- unkaffi, skoðaðu dagskrána og hresstu síðan upp á skrokkinn með fótgönguliðinu eða farðu í heila- leikfimi með setuliðinu. Sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær. S. 568-3132, asdis.skuladott- ir@reykjavik.is. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun, mánudag, er ganga frá Grafarvogskirkju kl. 10. Kirkjustarf Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11 fyrir alla krakka. Söngur, sögur, brúðuleikhús o.fl. Almenn samkoma kl. 14. Sigrún Einarsdóttir prédikar. Tón- listarhópur kirkjunnar leiðir lofgjörð. Fyrirbænir í lok samkomu. Barnagæsla meðan á samkomu stendur og kaffisala að henni lokinni. Allir velkomn- ir. KFUM og KFUK | Afmælisfundur AD KFUK verður haldinn þriðjudaginn 24. apríl og hefst með kvöld- verði kl. 19. Verð kr. 3200. Á fundinum verða nýjar félagskonur boðnar velkomnar í félagið. Skráning í matinn er í s. 588-8899 til hádegis 23. apríl. 80ára afmæli. Mánudag-inn 23. apríl verður Þóra Þorleifsdóttir áttræð. Af því tilefni býður hún ættingjum og vinum að eiga með sér ánægjustund í Víkingasal Hót- els Loftleiða kl. 17–19. Gjafir eru vinsamlegast afbeðnar. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostn- aðarlausu. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum Hægt er að hringja í síma 569- 1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið ritstjorn- @mbl.is, Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti. Bréfið skal stíla á Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2 110 Reykjavík. dagbók Í dag er sunnudagur 22. apríl, 112. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yðar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.) Ílok mánaðarins sendir Trygg-ingastofnun ríkisins í fyrsta sinnút Græna umslagið svokallaða.Ágúst Þór Sigurðsson er fram- kvæmdastjóri líftryggingasviðs TR: „Græna umslagið inniheldur yfirlit yfir allar þær greiðslur sem lífeyris- þegar munu fá mánaðarlega á næsta 12 mánaða tímabili. Einnig eru birtar með skýrum og auðlæsilegum texta all- ar forsendur upphæða, s.s. upplýsingar úr tekjuáætlun og um hjúskapar- stöðu,“ segir Ágúst Þór. „Með þessu eiga lífeyrisþegar að geta fengið skýra sýn á greiðslur og lífeyristrygginga- réttindi. Einnig koma fram almennar upplýsingar, t.d. um upplýsingaskyldu bótaþega og þær kæruleiðir sem bóta- þegi getur nýtt sér.“ Græna umslagið er nú sent út í maí, en verður framvegis sent í desember og inniheldur greiðsluyfirlit næsta árs á eftir. Með tilkomu grænu umslaganna hættir Tryggingastofnun að senda líf- eyrisþegum mánaðarlegt greiðslu- yfirlit: „Fyrir um hálfum áratug var hætt að senda út greiðsluseðla vegna ótekjutengdra bóta eins og mæðra- launa og barnalífeyris og gaf það góða raun. Nú er svo komið að stór hluti skjólstæðinga Tryggingastofnunar nýtir sér aðgengi að upplýsingum um bóta- og lífeyrisgreiðslur á Netinu. Síð- ustu ár hefur Tryggingastofnun sent hátt í 44.000 greiðsluseðla mánaðar- lega til lífeyrisþega og kostar, eins og gefur að skilja, mikla peninga og mannskap að senda þetta magn seðla, sem nú verður hægt að nýta til betri hluta.“ Rafrænir greiðsluseðlar Mánaðarlegir greiðsluseðlar verða aðgengilegir rafrænt á síðunni www.skattur.is. „Það er rétt að taka það fram að greiðslurnar halda áfram að berast þó greiðsluseðillinn komi ekki inn um bréfalúguna. Þeir sem þess óska sérstaklega geta þó fengið greiðsluseðla áfram senda mánaðar- lega,“ segir Ágúst. Fá má nánari upplýsingar á vef Tryggingastofnunar ríkisins á slóðinni www.tryggingastofnun.is, eða í síma 560 4400 og hjá umboðsskrifstofum um land allt. Bótagreiðslur | Nýtt fyrirkomulag greiðsluseðla hjá Tryggingastofnun Græna umslagið  Ágúst Þór Sig- urðsson fæddist í Reykjavík 1963. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983, prófi í lög- fræði frá Háskóla Íslands 1988 og LLM í þjóðarétti frá University of London 1990. Ágúst Þór hóf störf hjá Tryggingastofnun ríkisins 1991 og hefur verið framkvæmdastjóri lífeyr- istryggingasviðs frá 1998. Ágúst er kvæntur Matthildi Aðalsteinsdóttur og eiga þau eina dóttur. Tónlist Hallgrímskirkja | Tónleikar á vegum List- vinafélags Hallgrímskirkju í dag kl. 17 Kammerhópurinn Camerarctica flytur „Kvartett um endalok tímans“ eftir Olivier Messiaen. Ármann Helgason leikur á klarin- ett, Hildigunnur Halldórsdóttir á fiðlu, Sig- urður Halldórsson á selló og Örn Magn- ússon á píanó. Miðasala við innganginn. Miðaverð kr. 1500/750 fyrir listvini, eldri borgara, öryrkja og námsfólk. Sjá nánar listvinafelag.is. Norræna húsið | Tónleikasyrpa í dag kl. 15.15: Katie Buckley hörpuleikari og Frank Aarnink slagverksleikari. Miðaverð er 1.500 kr. og 750 kr. fyrir eldri borgara og nem- endur. Þorlákskirkja | Kvartettinn Camerarctica flytur verkið „Kvartett fyrir endalok tím- ans“ eftir Olivier Messiaen kl. 20.30. Kvart- ettinn skipa þau Ármann Helgason, klarin- ett, Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðla, Sigurður Halldórsson selló og Örn Magn- ússon, píanó. Leiklist Félagsheimili Kópavogs / Hjáleigan | Kl. 20.30. Á borðinu í Bingósalnum hittist sama fólkið en svo kemur Nanna og sest í sæti Gísla. Þar með kemst hann nær Ólafíu. Unga parið situr á móti þeim. Hvaðan kem- ur þetta fólk og hvernig tengjast bingótöl- urnar lífi þess? Nýtt leikrit eftir Hrefnu Frið- riksdóttur í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Mannfagnaður Hóla- og Fellakirkja | Af óviðráðanlegum orsökum verða breytingar á auglýstu kirkjukaffi Dýrfirðingafélagsins sunnudag- inn 22.apríl n.k. Í stað Bústaðakirkju, eins og auglýst var í fréttablaði félagsins, verður kirkjukaffið í Fella- og Hólakirkju og hefst með guðsþjónustu kl. 14. Stjórnin. Fyrirlestrar og fundir Krabbameinsfélagið | Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar boðar til aðalfundar og fræðslufundar í Hásölum, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju við Strandgötu, þriðju- daginn 24. apríl kl. 20. Venjuleg aðalfund- arstörf. Ingólfur S. Sveinsson læknir ræðir um áhrif streitu á heilbrigði. Kaffi og kon- fekt í boði Góu. Fréttir og tilkynningar Ferðaklúbbur eldri borgara | Kynning á sumarferðum 2007 verður í Þróttarheim- ilinu við Engjaveg þriðjudaginn 24. apríl kl. 13.30. Allir eldri borgarar velkomnir. Upp- lýsingar í síma 892-3011. Börn Borgarbókasafn – aðalsafn | Borg- arbókasafnið býður börnum og fjölskyldum þeirra í bókmenntagöngu í miðbænum sunnudaginn 22. apríl kl. 15. Lagt verður af stað frá Tryggvagötu 15. Sigrún Eldjárn hitt- ir göngufólkið við Tjörnina. Í DAG, sunnudag, kl. 14, verður leiðsögn í fylgd Hannesar Lárussonar myndlistarmanns um sýningar á verkum Jóns Engilberts og Jóhanns Briem í Listasafni Íslands. Hannes mun í leiðsögn sinni um sýningu Jóns veita hinni erótísku sveiflu í verkunum sérstaka athygli. Til- tekin verða ýmis dæmi en sjónum einkum beint að tákn- fræði verksins Vorgleði, sem er frá byrjun sjötta áratug- arins. Einnig mun Hannes gera samanburð á blíðu og dulúð í verkum Jóhanns, svo og spennuþrungnum og út- hverfum myndheimi Jóns. Hannes Lárusson með leiðsögn í LÍ Erótísk sveifla í listaverkum Jóns Engilberts Skartgripir Fjallkonunnar Reynomatic Café Mílanó  YVONNE Kristín Fulbright brautskráðist með doktors- gráðu í alþjóð- legum lýðheilsu- vísindum, með áherslu á kynlífs- heilbrigði, frá New York Uni- versity í janúar 2007. Doktors- ritgerð hennar ber titilinn, ,,Ice- landic Women’s Experiences of Their Mothers as Sex Communica- tors“, og var unnin að hluta á Ís- landi. Yvonne Kristín dvaldi hér- lendis í fjóra mánuði árið 2005 og tók viðtöl við átta konur á milli tvítugs og fertugs. Aðalmarkmið hinnar eig- indlegu rannsóknar var að kanna þátt mæðra í því að fræða dætur sín- ar um kynlíf, m.a. hvernig mæður miðluðu kynfræðslu til dætra sinna, hvernig mæður lýstu kynlífi og hvað dæturnar upplifðu sem hindrun eða hvatningu þegar kom að því að ræða við mæður sínar um kynlíf. Yvonne Kristín lauk meistara- gráðu í kynfræðslu frá University of Pennsylvania og BS-gráðu í sálfræði og félagsfræði frá Penn State Uni- versity. Hún er höfundur þriggja bóka á sviði kynfræðslu. Yvonne Kristín er álitsgjafi um kynferðismál í fjölmiðlum vestanhafs. Árið 2004 setti hún á laggirnar þjónustusíðuna Sexuality Source, Inc. www.sexual- itysource.com sem sérhæfir sig í ráðgjöf og fræðslu um kynlíf og kyn- lífsheilbrigði. Auk ritstarfa og ráð- gjafar starfar Yvonne Kristín sem aðjúnkt í kynlífsheilbrigðisfræðum við Argos University. Yvonne Kristín fæddist árið 1975. Hún er dóttir Óskar Lárusdóttur Fulbright frá Stykkishólmi og Char- les G. Fulbright, og barnabarn Lár- usar Kristins Jónssonar og Guð- mundu Jónasdóttur, sem bæði eru fallin frá. Doktor í lýðheilsu- fræðum FRÉTTIR Árshátíð bridskvenna Árshátíð bridskvenna verður haldin í Ársal Hótel Sögu, laugar- daginn 28. apríl 2007. Hátíðin hefst kl. 11 með fordrykk og mat og svo er spilað fram eftir degi. Verð aðeins 5000 krónur. Allar konur sem spila brids eru velkomnar. Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst og ekki síðar en um hádegi 27. apríl. Skráning hjá Svövu (553-5061) og Gróu (551-0116). BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is ♦♦♦ Fréttir í tölvupósti KLAPPSTÝRULIÐ- IÐ Resses frá Japan keppir hér á asísku klappstýrumóti í To- kyo í gær. Það er ekki að sjá annað á stúlkunum en að pýramídinn hafi gengið upp og þær séu ánægðar með árangurinn. Klappstýruhefðin kemur frá Banda- ríkjunum þar sem hún er mjög vinsæl í kringum íþróttaleiki. Fleiri lönd hafa tekið það upp eftir Bandaríkjunum að vera með klappstýrulið og eins og sjá má er það orð- ið vinsælt í Asíu enda tók mikill fjöldi liða þátt í þessu opna meistaramóti klappstýruliða. Reuters Klapp- stýru- keppni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.